Síða 1 af 1

Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 00:44
af appel
Ég viðurkenni það að hafa aldrei pantað af amazon, en er að skoða það núna.

Eitt sem ég skil ekki er verðið sem birtist.

Þeir segja "free shipping to Iceland", gott og vel.

Vinnufélagi minn sagði mér að verðið sem birtist hjá þeim sé allt og sumt sem þarf að borga, engin aðflutningsgjöld. Ég stórefast einhvernveginn um slíkt. Hef aldrei getað pantað á netinu án þess að greiða aðflutningsgjöld og póstgjöld og hvaðeina, þannig að ég veit ekki hvað verðið á amazon þýðir í raun og veru.

Getur einhver sagt mér hvernig þetta er í raun?

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 00:51
af rickyhien
hef pantað á amazon og verðið sem birtist er verðið sem maður borgar...nema tollur þegar varan er komin til lands

edit: (litlar vörur...veit ekki með stórar)

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 00:54
af einarhr
rickyhien skrifaði:hef pantað á amazon og verðið sem birtist er verðið sem maður borgar...nema tollur þegar varan er komin til lands

edit: (litlar vörur...veit ekki með stórar)

Ertu ekki að meina virðisauka? það er td enginn tollur á tölvuvörum.

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 01:00
af rickyhien
einarhr skrifaði:
rickyhien skrifaði:hef pantað á amazon og verðið sem birtist er verðið sem maður borgar...nema tollur þegar varan er komin til lands

edit: (litlar vörur...veit ekki með stórar)

Ertu ekki að meina virðisauka? það er td enginn tollur á tölvuvörum.

pantaði einhverjar supplement pillur :P hef aldrei pantað tölvuvörur

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 01:05
af chaplin
Ef það stendur "+ $XXX Shipping & Import Fees Deposit to Iceland" að þá er ekkert sem er eftir að greiða fyrir vöruna þegar hún er komin, ég hef þó fengið hluta af þessum gjöldum endurgreidd.

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 01:09
af appel
chaplin skrifaði:Ef það stendur "+ $XXX Shipping & Import Fees Deposit to Iceland" að þá er ekkert sem er eftir að greiða fyrir vöruna þegar hún er komin, ég hef þó fengið hluta af þessum gjöldum endurgreidd.

Ah, þarna kom þetta. Náði að stilla þetta svo þetta birtist á vörunni, og bamm...:

Price: $119.59 + $273.00 Shipping & Import Fees Deposit to Iceland Details

Hlaut að vera maðkur í mysunni.

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 01:25
af chaplin
appel skrifaði:Ah, þarna kom þetta. Náði að stilla þetta svo þetta birtist á vörunni, og bamm...:

Price: $119.59 + $273.00 Shipping & Import Fees Deposit to Iceland Details

Hlaut að vera maðkur í mysunni.

Má ég forvitnast hvaða vara þetta er? :)

Það er ekki mjög hagkvæmt að senda allar vörur, en prufaðu að gera verðsamanburð á fleiri vörum áður en þú efast Amazon. :)

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 01:31
af appel
chaplin skrifaði:

https://www.amazon.com/gp/product/B01LE111X8

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 01:35
af kiddi
Maður gleymir stundum að Amazon er að vissu leiti eins og eBay, þeas. ekki sjálfgefið að vörurnar komi frá einu vöruhúsi. Þannig getur karfa með nokkrum vörum verið með mjög mismunandi kostnað á bak við sig, t.d. ætlaði ég að panta þónokkra LEGO motors parta til að geta smíðað fjarstýrða LEGO lest handa drengnum mínum og til þess þurfti ég ýmsa varahluti sem fengust ekki neinsstaðar allir á sama stað, og sumir hlutir voru með rándýru DHL shipping á meðan annað var með 3-4 vikna standard flutningskostnaði. Maður þarf að vera vökull og dobbeltékka allt, stundum er Amazon hræódýrt en stundum bara alls, alls ekki.

En þetta með að staðgreiða flutning og VSK strax getur verið afskaplega þægilegt og það er ekki bara Amazon sem eru farnir að bjóða upp á það heldur fjölmargar netverslanir, þá fær maður bara vöruna beint upp að dyrum og enginn posi til að renna kortinu í gegn, jafnvel fær maður stundum endurgreitt þegar netverslunin hefur ofmetið toll / vsk kostnað.

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 01:53
af chaplin

Haha, okey þetta útskýrir verðið, þetta eru tæp 10 kg með öllu og aðeins free shipping innan US. :)

Ef það stendur Free Shipping og Ships to Iceland, að þá er það frítt sending á því svæði sem þú ert að versla á, í þessu tilviki .com svo Bandaríkjunum, en þeir geta líka sent til Íslands, en það kostar. Það er bara mjög eðlilegt. ;)

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 02:02

Ég nálgaðist þetta bara einsog venjuleg manneskja. Ef það stendur "free shipping" og "ships to iceland" þá ætti nú maður að halda að maður fengi "free shipping to iceland". Svona er maður plataður þarna.
Haldið þið að netverslun á Íslandi kæmist upp með svona? "ókeypis sending" og "sendi til akureyrar"... svo þegar það kemur að því að confirma pöntun þá kemur í ljós að það kostar 2x meira en verðmæti vörunnar að senda hana til akureyrar. :)

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 02:14
af chaplin
appel skrifaði:Haldið þið að netverslun á Íslandi kæmist upp með svona? "ókeypis sending" og "sendi til akureyrar"... svo þegar það kemur að því að confirma pöntun þá kemur í ljós að það kostar 2x meira en verðmæti vörunnar að senda hana til akureyrar. :)

Haha, ég skil að það sé hægt að misskilja þetta, en Akureyri er á Íslandi og Free Shipping hjá Amazon er frí sending innanlands. :)

Ég er mest að panta vörur sem eru dýrar og litlar eins og myndavélar og linsur. Ódýrt að senda og allt að 50% ódýrar en hérna heima. :)

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 02:55
af Stuffz
ef ætlar að panta eitthvað af ráði þá gott að vera með amazon prime, getur sparað slatta á sendingarkosnaði sérstaklega ef pantar marga prime eligable hlutum í einu

skilst þeir séu meira að segja viljandi að tapa á þessu prime dæmi, til að venja fólk á áframhaldandi viðskipti við þá.

https://www.technologyreview.com/s/6018 ... till-wins/

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 08:51
af Tiger
Stuffz skrifaði:ef ætlar að panta eitthvað af ráði þá gott að vera með amazon prime, getur sparað slatta á sendingarkosnaði sérstaklega ef pantar marga prime eligable hlutum í einu

skilst þeir séu meira að segja viljandi að tapa á þessu prime dæmi, til að venja fólk á áframhaldandi viðskipti við þá.

https://www.technologyreview.com/s/6018 ... till-wins/

Já ef þú býrð í USA, var með þetta í ár og panta slatta þarna en græddi að mér fannst ekkert á þessu með sendingar til íslands.

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 10:06
af GuðjónR
appel skrifaði:Price: $119.59 + $273.00 Shipping & Import Fees Deposit to Iceland Details

Ekki leita langt yfir skammt.
Kostar yfir 40k að panta að utan með gjöldum.
Kostar 24.995.- hérna heima.
https://www.tl.is/product/carbide-400q-quiet-svartur

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 10:13
af axyne
Passaði þig að ekki nota gjaldeyrisbreytinn í gegnum Amazon-> óhagstæðara
Borgaðu í þeim gjaldeyri sem varan er auglýst á, notar þannig vísa gengið -> hagstæðara

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 10:21
af GuðjónR
axyne skrifaði:Passaði þig að ekki nota gjaldeyrisbreytinn í gegnum Amazon-> óhagstæðara
Borgaðu í þeim gjaldeyri sem varan er auglýst á, notar þannig vísa gengið -> hagstæðara

Sama á við þegar þú notar PayPal. :happy

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Sun 07. Jan 2018 14:03
af jonsig
Gef gjörsamlega skít í amazon eftir að hafa séð myndina um þrælahaldið þeirra.

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Mán 08. Jan 2018 15:00
af Drilli
Verðið sem er gefið upp á Amazon þegar kemur til greiðslu hefur alltaf staðist í mínum tilfellum (og oft fylgt smá endurgreiðsla seinna). Reyndu að kaupa vöruna af 'Warehouse' og þá færðu hana fljótt og ekki eins mikill sendingarkostnaður innifalinn.
Ég hef verið að kaupa marga tölvu- og rafvörur frá Amazon.

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Mán 08. Jan 2018 16:22
af Póstkassi
Síðan er líka gott að skoða breska amazon, þar fann ég kassan og það er 25 þúsund sem maður þarf að borga fyrir allt, kassan, sendingu og toll.

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Mán 08. Jan 2018 16:37
af ZoRzEr
Ég hef sjálfur pantað ýmislegt í gegnum Amazon.com og co.uk í gegnum árin. Aflgjafa, örgjörva, M.2 SSD disk, móðurborð og fleira tölvutengt. Verðið + innflutningsgjöldin hafa alltaf staðist. Í flestum tilvikum hef ég fengið endurgreidda nokkra hundrað kalla þegar varan er komin í hendurnar. DHL eða UPS afhendir svo vöruna hér heima. Læt senda í vinnuna þannig ég fái hana pottþétt afhenta þar sem þeir eru að keyra út fljótlega eftir hádegi.

Er með Amazon Prime þannig það er 2 day shipping sem hefur alltaf staðist.

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Mán 08. Jan 2018 17:14
af kjartanbj
Ég nota Amazon mikið, þægilegra en ebay upp á að maður fær uppgefið verð og sent heim að dyrum, með Ebay þarf ég oft að standa í því að vera senda póstinum kvittanir og svo sækja á pósthúsið , eina við Amazon er að maður þarf stundum aðleita að einhverjum sem sendir til íslands og ekki mjög margir sem gera það af einhverjum ástæðum

Re: Panta á amazon.. óviss með verð til landsins

Sent: Mán 08. Jan 2018 19:03
af blitz
Mæli einnig með að menn skoði Amazon.de. Oft er heilmikill munur á henni og .co.uk / .com