Síða 1 af 1
Panta batterí að utan
Sent: Mán 01. Jan 2018 16:24
af Tonikallinn
Er hægt að panta vape batterí að utan? Ef svo, hvað er besta síðan? Mig langar að kaupa 2 stykki 20700 batterí en það eina sem ég finn hér á landi er í Djáknanum og það er 2500kr stykkið. Mig langar nefnilega að fá mér 20700 mecha og ég fann mér einn clone sem virðist alveg fínn. Bæði 3fvape og fasttech senda ekki batterí til íslands
Re: Panta batterí að utan
Sent: Mán 01. Jan 2018 18:14
af frappsi
Þessar verslanir virðast selja þessi batterý og senda til Íslands:
https://www.intaste.de/https://www.lepetitvapoteur.comhttp://www.vapvip.com/tienda/gb/Og þessi virðist reyndar bara selja 18650 batterý:
https://vapewild.eu/Síðan er það náttúrulega [url]ru.nkon.nl[/url] , en það kostar €30 að senda lithium batterý og tekur laaaaaangan tíma, þannig að það er ekki að borga sig nema maður sé að kaupa meira en 2 stk af rafhlöðum og sé tilbúinn að bíða í 1 - 1,5 mánuð. Þyrftir sennilega að kaupa lágmark alveg 5 batterý til að fara undir 2500/stk. Spurning hvort sparnaðurinn sé þess virði. Ef maður myndi kaupa 10 stk þá væri verðið kannski 1500-1600/stk.
Hraðsendingarfyrirtæki taka oftast 1200-1400 kall í gjald fyrir tollkrít þ.a. það gæti bæst 600 kall á stykkið.
Re: Panta batterí að utan
Sent: Mán 01. Jan 2018 18:25
af Tonikallinn
frappsi skrifaði:Þessar verslanir virðast selja þessi batterý og senda til Íslands:
https://www.intaste.de/https://www.lepetitvapoteur.comhttp://www.vapvip.com/tienda/gb/Og þessi virðist reyndar bara selja 18650 batterý:
https://vapewild.eu/Síðan er það náttúrulega [url]ru.nkon.nl[/url] , en það kostar €30 að senda lithium batterý og tekur laaaaaangan tíma, þannig að það er ekki að borga sig nema maður sé að kaupa meira en 2 stk af rafhlöðum og sé tilbúinn að bíða í 1 - 1,5 mánuð. Þyrftir sennilega að kaupa lágmark alveg 5 batterý til að fara undir 2500/stk. Spurning hvort sparnaðurinn sé þess virði. Ef maður myndi kaupa 10 stk þá væri verðið kannski 1500-1600/stk.
Hraðsendingarfyrirtæki taka oftast 1200-1400 kall í gjald fyrir tollkrít þ.a. það gæti bæst 600 kall á stykkið.
Já, það væri ábyggilega bara best að kaupa hérna. 5k fyrir tvö batterí er samt bara rugl. Þessi batterí sem eru í Djáknanum eru nú samt helvíti fín batterí. Rate-uð 3000mAh og 30A af Mooch. Ampking 20700. Gæti buildað niður í .17 sem hefur þá about ''recommended headroom'' sem er 20%. Langar að sjá hvernig það færi með Fused Clapton vírnum sem er að koma.... Kærar þakkir fyrir þetta
Re: Panta batterí að utan
Sent: Mán 01. Jan 2018 19:16
af einarn
Er ekki bannað að senda stök batterí í pósti? búinn að vera dáldið í pósthúsinu undanfarið og þeir eru með eitthvað spjald um hvað má og má ekki fara í póst og stök batterí eru víst bönnuð.
Re: Panta batterí að utan
Sent: Mán 01. Jan 2018 19:19
af Tonikallinn
einarn skrifaði:Er ekki bannað að senda stök batterí í pósti? búinn að vera dáldið í pósthúsinu undanfarið og þeir eru með eitthvað spjald um hvað má og má ekki fara í póst og stök batterí eru víst bönnuð.
Það er líka það sem ég var að hugsa um. Hvort það væri leyft, í fyrsta lagi
Re: Panta batterí að utan
Sent: Mán 01. Jan 2018 19:25
af ColdIce
Reyndi þetta fyrir jól og það var stöðvað
Finnst reyndar sáralítill verðmunur á þeim hér og úti þegar þú tekur sendingarkostnað og toll í dæmið
Re: Panta batterí að utan
Sent: Mán 01. Jan 2018 19:53
af frappsi
Getur verið að Pósturinn sé með einhverjar reglur, en ætti ekki að vera neitt mál hjá hraðsendingarfyrirtækjunum, svo framarlega sem ákveðnar reglur séu uppfylltar. Ég pantaði slatta af rafhlöðum frá nkon um daginn og það var ekkert mál. Þegar ég deildi sendingarkostnaðinum niður á alla hlutina þá var ég að fá rafhlöðu sem kostar kannski 1800 hér á 600 kall. Sömu sögu var að segja af öðrum rafhlöðum sem ég pantaði - töluverður verðmunur. Veit um fleiri aðila sem hafa pantað með góðum árangri.
Ef þetta eru bara fá stykki þá er málið að kaupa hér heima. Annars er besti kosturinn að ná saman í hóp þ.a. það séu pantaðar kannski 15-20 rafhlöður minimum, eða fá að komast inní pöntun hjá einhverjum sem er að fara að panta. Svo er líka tilvalið að kaupa nokkur stykki þegar maður fer til útlanda.
Re: Panta batterí að utan
Sent: Mán 01. Jan 2018 20:18
af Viggi
Var samt fyrir ári síðan en ég hef keypt 2 og 4 18650 battery og ekkert mál