Síða 1 af 1
Hvernig jólatré?
Sent: Mán 11. Des 2017 12:47
af littli-Jake
Ætla að prófa að fara í lifandi tré í ár. Er einhver munur á þessu? Er þá að meina upp á að maður þurfi ekki að vera að riksuga barr öll jólin
Re: Hvernig jólatré?
Sent: Mán 11. Des 2017 13:05
af blitz
Fura og normannsþinur eru almennt barrheldin tré.
Mikilvægt að vökva þau vel (hafa alltaf vatn í fætinum).
Þegar þú tekur það inn til þess að setja það upp er gott að saga aðeins af fætinum, setja í smá stund í heitt vatn (til þess að opna æðarnar á trénu sem hjálpar við upptöku á vatni).
Re: Hvernig jólatré?
Sent: Mán 11. Des 2017 13:17
af dori
Ég er með rauðgreni, það er fíngerðara og mér finnst það fallegra en normannsþinur sérstaklega í minni stærðunum (ég er með svona 120-140cm tré, normannsþinir í þeirri stærð eru yfirleitt rosalega ræfilslegir).
Veit ekki varðandi muninn með hvernig barr helst á trjám. Þar hrynur alltaf eitthvað af því hjá mér þegar ég geng frá því eftir jól en man ekki eftir að barrið sé að dreifa úr sér út fyrir teppið sem það er á.
Hérna er eitthvað um mismunandi tré sem eru seld á landinu:
http://www.gardheimar.is/jolin/jolatre/ ... egundirnar
Re: Hvernig jólatré?
Sent: Þri 12. Des 2017 10:32
af littli-Jake
Takk fyrir svörin
Re: Hvernig jólatré?
Sent: Þri 12. Des 2017 10:41
af HalistaX
Ekkert skíta neitt, bara að pæla:
Hvernig nenniði þessu samt? Að vera að finna greni nálar í sófasettinu langt fram eftir sumri?
Það var bara plast heima hjá mér í gamla daga og í dag er það bara smá plast kríli sem er stungið í vegg hahahaha
Re: Hvernig jólatré?
Sent: Þri 12. Des 2017 11:04
af dori
Lyktin og fílingurinn í alvöru grenitré er indæll. Ég kannast ekki við það að finna greninálar út um allt. Það hefur aldrei verið vandamál hjá mér.
Eina vesenið er að losa sig við þetta eftir jól en það bara eitthvað sem maður lætur sig hafa.
Re: Hvernig jólatré?
Sent: Þri 12. Des 2017 15:15
af HalistaX
dori skrifaði:Lyktin og fílingurinn í alvöru grenitré er indæll. Ég kannast ekki við það að finna greninálar út um allt. Það hefur aldrei verið vandamál hjá mér.
Eina vesenið er að losa sig við þetta eftir jól en það bara eitthvað sem maður lætur sig hafa.
Jaaaaá true, líklega wort it.. Skilðig!