Síða 1 af 1

Vantar þokkalega góð heyrnartól í ræktina

Sent: Mið 06. Des 2017 10:45
af elri99
Vantar þokkalega góð heyrnartól í ræktina. Þessi koma til greina:
https://elko.is/beats-powerbeats3-ra-laus-sv-beatspow3wbk
https://elko.is/bose-heyrnatol-soundsport-svartur
Eitthvað sem þið mælið með?

Re: Vantar þokkalega góð heyrnartól í ræktina

Sent: Mið 06. Des 2017 13:10
af Viktor
Bose frekar en Beats alla daga vikunnar.

Re: Vantar þokkalega góð heyrnartól í ræktina

Sent: Mið 06. Des 2017 13:29
af Gsig
Ef þú ert með iPhone mæli ég með Apple airpods.

Já þau eru á dýrari kantinum og eru frá Apple en þægindin eru fáránleg. Ekkert vesen, tengjast bara um leið og þú setur í eyrun, hleðslan dugar mér í mánuð til tvo.

Re: Vantar þokkalega góð heyrnartól í ræktina

Sent: Mið 06. Des 2017 13:44
af elri99
Síminn er Galaxy S7

Re: Vantar þokkalega góð heyrnartól í ræktina

Sent: Mið 06. Des 2017 13:57
af wicket
Ég er með þessi : https://vefverslun.siminn.is/vorur/auka ... /#pv_13173

Eru að vera 2 ára og eru eins og ný. Þola ræktina 2x í viku ca. og yfir þúsund km í hjólreiðum, lifðu af WOW cyclothon í fyrra og allskonar svita, mold og hamagang. Virka líka vel til að tala í símann sem koma mér vel á óvart.

Re: Vantar þokkalega góð heyrnartól í ræktina

Sent: Mið 06. Des 2017 14:55

Líst vel á þessi. Hvað með snúruna að aftan, er hún ekki að slást til og valda óþægindum?

Re: Vantar þokkalega góð heyrnartól í ræktina

Sent: Mið 06. Des 2017 15:11
af wicket
Hún hefur bara aldrei truflað mig,bara týpisk neckbuds :)

Re: Vantar þokkalega góð heyrnartól í ræktina

Sent: Mið 06. Des 2017 15:49
af Lexxinn
Hef ekki reynslu af þessum Bose en líta ekki út fyrir að haldast vel í eyrum í rækt. Sjálfur er ég búinn að nota Powerbeats3 síðan í fyrra haust og hleðslan dugar 2-3 vikur eftir hversu mikið ég hamast á tökkunum. Fyrir utan Powerbeats er ég reyndar algjör anti-beats maður en þessi litu allra best út fyrir rækt þegar ég var að velja.

Edit; mín eru "apple" edition og eiga því að virka með iPhone en ekki Samsung, notaði S6 með þeim í fyrra og S8 síðan í sumar og ekkert vesen.

Re: Vantar þokkalega góð heyrnartól í ræktina

Sent: Mið 06. Des 2017 15:50
af nidur
Ég kaupi mér alltaf eitthvað svipað og þessi, sem eru samt með 20klst endingu
https://www.amazon.co.uk/Technology-Can ... s+wireless

Re: Vantar þokkalega góð heyrnartól í ræktina

Sent: Mið 06. Des 2017 16:18
af kizi86
https://www.aliexpress.com/item/AWEI-A9 ... 56906.html Vinur minn gaf mér svona headphones, og ég elska þau! hræ ódýr, en mjög gott og tært hljóð í þeim, svo endist batteríið í þeim að minnsta kosti 10klst (nota þau í vinnunni, til að bæði nota sem handfrjálsan búnað og til að hlusta á hljóðbækur meðan ég er að keyra) og aldrei lent í að verði batteríslaus. svo eru þau súper létt, finnur ekkert fyrir þeim (oft að lenda í því að ég held að ég hafi misst þau því ég finn ekki fyrir þeim utanum hálsinum á mér :P svo heldur þessi "spöng" vel, krækir henni inni í eyrað og þetta mun aldrei detta út. svo er snilldar fítus í þessu, magnetic on/off setur snúruna utanum hálsinn, smellir buddunum saman (með segli) og það slökknar á græjunni, svo ef síminn hringir, þá tekurru buddana í sundur, og um leið kviknar á græjunni, hún tengist strax við símann og svarar símtalinu um leið. og btw mjög góður mic í þessari græju