Síða 1 af 1
Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fim 16. Nóv 2017 14:08
af emmi
Sælir, veit einhver hvar ég fæ eimað vatn (distilled water)? Þá er ég ekki að tala um afjónað vatn sem virðist vera til á nokkrum stöðum en ég hef ekki fundið neinn ennþá sem selur eimað vatn.
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fim 16. Nóv 2017 14:45
af worghal
öll apótek
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fim 16. Nóv 2017 16:17
af russi
Eima það bara sjálfur, pottur, trekt, rör og annar pottur.. já og helluborð
Annars er worghal með svarið, fékk mitt eimaða vatn þar fyrir nokkrum árum.
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fim 16. Nóv 2017 16:31
af olihar
Ertu að fara að nota þetta í vatnskælingu?
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fim 16. Nóv 2017 19:07
af jonsig
Heitir afjónað vatn minnir mig. 5L á 800kr sumthin
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fim 16. Nóv 2017 21:44
af olihar
jonsig skrifaði:Heitir afjónað vatn minnir mig. 5L á 800kr sumthin
Eimað (distilled) og afjónað (deionized) er ekki það sama.
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fim 16. Nóv 2017 22:41
af jonsig
olihar skrifaði:jonsig skrifaði:Heitir afjónað vatn minnir mig. 5L á 800kr sumthin
Eimað (distilled) og afjónað (deionized) er ekki það sama.
Okey gáfaður, til að afjóna vatn. Þurfum við að losna við öll steinefnin í vatninu..sölt .. það er gert með filterum síðan notað reverse osmosis til að hreinsa það sem filterar náðu ekki að gera
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fim 16. Nóv 2017 22:55
af emmi
Ég þarf þetta til að calibrate'a CO2 mælitæki. Þau apótek sem ég hef farið í eru bara með svokallað "Sterile water", veit ekki hvort það dugi, þarf að spyrja framleiðandann að því en best væri auðvitað að komast í distilled water.
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fim 16. Nóv 2017 23:05
af jonsig
ég notaði deionized til að calibratea co2 sensor. þú ert með ph7 með fersku batchi af DI water. Síðan færðu co2 úr andrúmslofinu sem byrjar að lækka ph
báðar týpur eru notaðar fyrir calibration standard. samt fer alltaf eftir gæðum
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fim 16. Nóv 2017 23:21
af emmi
Framleiðandinn heimtar topquality distilled water. Þarf að spyrja hann betur útí þetta sem er til hér.
Takk fyrir ábendingarnar.
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fös 17. Nóv 2017 00:43
af Squinchy
jonsig skrifaði:olihar skrifaði:jonsig skrifaði:Heitir afjónað vatn minnir mig. 5L á 800kr sumthin
Eimað (distilled) og afjónað (deionized) er ekki það sama.
Okey gáfaður, til að afjóna vatn. Þurfum við að losna við öll steinefnin í vatninu..sölt .. það er gert með filterum síðan notað reverse osmosis til að hreinsa það sem filterar náðu ekki að gera
Það er reyndar skilvirkara að nota RO hlutann á undan DI, þar sem RO membran er töluvert endingar betri og ódýrari heldur en að skipta út DI kvoðu á fullu, og ending membru lengist slatta við "flush kit".
Ég er t.d. að fá um 37-40PPM TDS beint úr krana, lækkar niður í 3-4PPM eftir RO og DI sér svo um að taka vatnið niður í 0PPM, 2.5dl af kvoðu er þá að endast í um 6 mánuði áður en ég fer að mæla 1PPM.
Sterílt vatn er ekki það sama og eimað, það inniheldur Sodium Chloride.
Ef þetta er ætlað fyrir lab grade umhverfi sem krefst hámarks nákvæmni þá go á eimað, fyrir persónuleg not sem þolir skékkjumörk eins og bruggun eða eitthvað þá RODI, en það er bara mitt álit
Vínkjallarinn seldi nú einhvertíman vatns eimingar tæki en það væri mun ódýrara að smíða einfaldan búnað í það
Mynd af mínum RODI búnaði til gamans
- rodi.jpg (40.83 KiB) Skoðað 3817 sinnum
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fös 17. Nóv 2017 13:08
af jonsig
Vandamálið er með allt þetta að eimingin er ekkert endilega sú besta í hverju tilfelli, með eimingunni geturu fengið flúor og rokgjörn lífræn efni með í pottinn.
Ef þú ert með deionized geta lumast með vírusar og annað slíkt með.
Báðar útfærslur geta verið calibration standard. Maður þarf bara að velja í hverju tilfelli.
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Mán 23. Des 2019 14:05
af mercury
Hvar eru menn að fá eimað vatn þessa dagana? . Búinn að fara í 2 apótek í dag og nenni ekki fleiri fíluferðum
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Mán 23. Des 2019 21:22
af Longshanks
Leitaði út um ALLT!
Best að panta frá Amazon eða panta nokkra lítra af tilbúnum vökva frá EK, jafnvel eima þetta bara sjálfur eða nota bara afjónað sem er í góðu lagi.
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Mán 23. Des 2019 21:55
af mercury
Longshanks skrifaði:Leitaði út um ALLT!
Best að panta frá Amazon eða panta nokkra lítra af tilbúnum vökva frá EK, jafnvel eima þetta bara sjálfur eða nota bara afjónað sem er í góðu lagi.
Ég endaði með að fynna sterílt vatn í apóteki. Það ætti að vera í lagi miðað við það litla sem ég hef lesið.
https://mypurewater.com/blog/2019/01/09 ... ifference/Kostaði um 300kr / 500ml
Re: Eimað vatn (distilled water)
Sent: Fös 27. Des 2019 13:26
af trytill
Hefur þú ATH í Ámunni