Síða 1 af 1

Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 15:09
af GuðjónR

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 15:28
af rbe
Sorry, this video cannot be played on this browser or device.
vivaldi tekur ekki þátt í svona monkey bisness ?

virkar í edge var snöggur að forða mér !

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 15:51
af Moldvarpan
Um hvað er verið að tala um?

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 16:06
af Stuffz
humm fallegar óskir.

er þetta flokkur heimilanna?, allaveganna hljóðið virkar ekki hjá mér.

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 16:15
af lukkuláki

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 16:26
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:Um hvað er verið að tala um?

Fjármál, vaxtaokur og verðtrygging.

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 18:07
af Moldvarpan
GuðjónR skrifaði:
Moldvarpan skrifaði:Um hvað er verið að tala um?

Fjármál, vaxtaokur og verðtrygging.

Já, heyrði að þetta var um verðtrygginguna, og pólitíkusar að gefa sína stefnu í þeim efnum. Þá ákvað ég að hlusta á þetta.

Verð nú að segja að mér leyst eiginlega best á manninn sem var í forsvari fyrir Flokk fólksins :wtf

Samfó og vg frekar óskýr og loðin.

Sjálfstæðis bara röflandi í hringi eins og þeir eru bestir í.

Miðflokkurinn hljómaði ekkert stupid fyrir marga eflaust, en treysti því engan veginn

Framsókn reyndi að tefla fersku spili, i aint buyin it

Píratar... minn flokkur síðustu tvö kjörtímabil... Fannst mér virka frekar áttavilltir á kafla. Sumt hálfgerð þversögn, drífa sig en vanda sig. Hvernig virkar það? Ég veit ekki enn hvort ég kjósi þá aftur.

Mér finnst Píratar og þeirra hugmyndafræði hinsvegar nauðsynleg á Alþingi og mér finnst ég sjá skýran mun eftir að þeir komu í stjórnmál.

Svo, einhverjir besserwissserar með ráðleggingar? :roll:

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 18:15
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:Verð nú að segja að mér leyst eiginlega best á manninn sem var í forsvari fyrir Flokk fólksins :wtf

Sammála,(þú meinar konuna sem er í forsvari).
Fjórflokkurinn og þeirra hliðarflokkar eru margbúnir að sanna getuleysi sitt. Löngu tímabært að gefa öðrum séns.

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 19:04
af ZiRiuS
Guð blessi þá sem kjósa flokk fólksins...

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 19:24
af Moldvarpan
ZiRiuS skrifaði:Guð blessi þá sem kjósa flokk fólksins...

Afhverju? Miklu skemmtilegra að vera málefnalegur en með svona barnaskap.

En Guðjón, kannski hefði verið betra að nota orðið málsvari. Það var þarna karl í málsvari fyrir flokk fólksins.

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 20:24
af ZiRiuS
Barnaskap? Hví að fara í svona hrikalega vörn þegar ég skrifa eitthvað eins saklaust og þetta?

Finnst bara alltaf jafn fyndið þegar fólk kolgleypir þvælu frá einhverjum flokki. Þetta er alveg eins og þegar Framsókn lofaði endurgreiðslu til landans. Rámar meira að segja í umræðu hérna (ekki alveg 100% viss) þar sem fólk var alveg að missa sig yfir því hvað Framsókn væri mikið æði. Fengu þið ávísun í pósti áður en Simmi hröklaðist frá völdum eftir að hafa verið böstaður við að fela peninga í skattaskjóli? Svo er exem flokkurinn að mælast með 10% fylgi? Íslendingum er ekki viðbjargandi...

En já varðandi flokks fólksins, mér dettur ekki í hug að kjósa flokk sem notar "björgum öryrkjunum, gamla fólkinu og heimilunum" til að fela þá staðreynd að þessi flokkur er stútfullur af fordómum og útlendingahatri. Og það að fólk sem almennt eru ekki með fordóma og útlendingahatur skuli styðja þennan flokk veldur mér virkilega áhyggjum. Nennir engin lengur að kynna sér hlutina?

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 20:39
af Hjaltiatla
ZiRiuS skrifaði:Barnaskap? Hví að fara í svona hrikalega vörn þegar ég skrifa eitthvað eins saklaust og þetta?

Er þetta fólk að fara að kjósa flokk fólksins :wtf

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Lau 07. Okt 2017 21:27
af ZiRiuS
Hjaltiatla skrifaði:

Nákvæmlega :)

Mynd

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Sun 08. Okt 2017 22:20
af KristinnK
ZiRiuS skrifaði:En já varðandi flokks fólksins, mér dettur ekki í hug að kjósa flokk sem notar "björgum öryrkjunum, gamla fólkinu og heimilunum" til að fela þá staðreynd að þessi flokkur er stútfullur af fordómum og útlendingahatri.

Heimsveldi munu rísa og falla, stríð og friður mun koma og fara, en eitt mun aldrei breytast: Ef þú hefur skoðun aðra en ,,hina réttu" á innflytjendamálum munt þú alltaf vera ásakaður um ,,útlendingahatur".

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Sun 08. Okt 2017 23:04
af littli-Jake
Strákar mínir. Ég skal útskýra þetta allt saman með einföldum og góðum lagi á hreinni íslensku

https://m.youtube.com/watch?v=g3Al9fcif9c

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Sun 08. Okt 2017 23:10
af ZiRiuS
KristinnK skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:En já varðandi flokks fólksins, mér dettur ekki í hug að kjósa flokk sem notar "björgum öryrkjunum, gamla fólkinu og heimilunum" til að fela þá staðreynd að þessi flokkur er stútfullur af fordómum og útlendingahatri.

Heimsveldi munu rísa og falla, stríð og friður mun koma og fara, en eitt mun aldrei breytast: Ef þú hefur skoðun aðra en ,,hina réttu" á innflytjendamálum munt þú alltaf vera ásakaður um ,,útlendingahatur".

Það er nefnilega málið, það er engin "rétt leið" í innflytjenda og flóttafólksmálum (mikill munur á innflytjenda og flóttamanni t.d.). En það er ein röng leið, og það er að hafa fordóma fyrir fólki sem á ekki fordóma skilið. Auðvitað er flóttafólk og innflytjendur hérna sem og annarstaðar sem eru svartir sauðir, en mér dettur ekki í hug að setja allt þetta fólk undir einn hatt, eins og útlendingahatarar...

Re: Guð blessi heimilin

Sent: Sun 08. Okt 2017 23:32
af Klemmi
Strákar, haldið þessari umræðu á viðeigandi þræði, nenni ekki að hafa þetta alls staðar :s