Síða 1 af 1
365 access point
Sent: Þri 26. Sep 2017 08:53
af mainman
Sælir vaktarar.
Við lentum í því hérna í vinnuni hjá mér að þegar einn starfsmaðurinn ætlaði að kveikja á access point á símanum sínum þá komu skilaboð "contact currier" eða eitthvað svoleiðis.
Við hringdum í 365 og þá kom spurning hvort þetta væri iphone sem við játuðum og þá fengum við það svar að það væri ekki opið fyrir þessa þjónustu í iphone á kortunum þeirra.
Engin frekari útskýring gefin á því.
Þetta virkar allt fínt í android en ekki séns að koma þessu í gegn í iphone.
Vitið þið eitthvað af hverju þetta er og hvers vegna iphone fær ekki að gera þetta en android má ?
Kv.
Re: 365 access point
Sent: Þri 26. Sep 2017 13:38
af einarhr
Kanski af því að Iphone bíður uppá þetta en ekki Andriod. Þetta er alveg á pari við aðra viðskiptahætti hjá 365, banna fólki að nota 4g síman sinn sem router svo þeir geti selt 4G punga.
Re: 365 access point
Sent: Þri 26. Sep 2017 13:58
af mainman
Android býður alveg upp á að vera þráðlaus aðgangspunktur eins og iphone.
Re: 365 access point
Sent: Þri 26. Sep 2017 14:39
af hagur
Hann á við að iPhone býður uppá að þetta sé disabled. Kannski er ekki hægt að disable-a þetta í Android.
Re: 365 access point
Sent: Þri 26. Sep 2017 15:15
af Hizzman
mar gæti alveg trúað apple til að vera að selja enable lykla fyrir þetta
Re: 365 access point
Sent: Þri 26. Sep 2017 15:27
af mainman
einarhr skrifaði:Kanski af því að Iphone bíður uppá þetta en ekki Andriod. Þetta er alveg á pari við aðra viðskiptahætti hjá 365, banna fólki að nota 4g síman sinn sem router svo þeir geti selt 4G punga.
Sorry, fatta núna hvað þú meinar, ég misskildi þig aðeins.
Kv.
Re: 365 access point
Sent: Þri 26. Sep 2017 15:37
af wicket
Apple sendir carrier stillingar á símtækin út frá SIM kortum.
Hvernig er þetta hjá Hringdu, Símafélaginu og hinum sýndarfyrirtækjunum sem kaupa aðgang að öðrum kerfum og eru ekki í neinum carrier samskiptum við Apple?
Re: 365 access point
Sent: Þri 26. Sep 2017 15:58
af Vaktari
Ég hef ekki heyrt að þetta eigi að vera eitthvað lokað sérstaklega á iphone hjá 365.
Þarft bara að setja upp teathering APN
Hinsvegar er eitthvað um notkun á hot spot í skilmálum 365 sem þú ættir að skoða.
Re: 365 access point
Sent: Þri 26. Sep 2017 16:48
af Hizzman
wicket skrifaði:Apple sendir carrier stillingar á símtækin út frá SIM kortum.
Hvernig er þetta hjá Hringdu, Símafélaginu og hinum sýndarfyrirtækjunum sem kaupa aðgang að öðrum kerfum og eru ekki í neinum carrier samskiptum við Apple?
eru þessi fyrirtæki ekki að skaffa/gefa út SIM kort sjálf?