Síða 1 af 1

Eng­in sönn­un sé fyr­ir því að ólög­legt niður­hal hafi áhrif

Sent: Mán 25. Sep 2017 11:28
af Farcry

Re: Eng­in sönn­un sé fyr­ir því að ólög­legt niður­hal hafi áhrif

Sent: Mán 25. Sep 2017 11:51
af worghal
það eina sem kemur í veg fyrir sölu er hátt verð til neitenda.

Re: Eng­in sönn­un sé fyr­ir því að ólög­legt niður­hal hafi áhrif

Sent: Mán 25. Sep 2017 12:10
af Hizzman
worghal skrifaði:það eina sem kemur í veg fyrir sölu er hátt verð til neitenda.


ja, þetta er spurning um aðgang og verð, flestum finnst ekkert mál að borga fyrir netflix eða aðra svipaða þjónustu. En fólk er oftast ekki til í að borga fyrir fleiri en eina streymisþjónustu. þetta er vandamál í augnablikinu, kapal-tv-veitur eru að opna sínar eigin streymisþjónustur, eru svo einir með eina eða örfáar vinsælar þáttaraðir.

Fáir vilja kaupa ásrkift fyrir svo lítið efni, sjóræningjaaðferðin til að horfa er notuð.

Re: Eng­in sönn­un sé fyr­ir því að ólög­legt niður­hal hafi áhrif

Sent: Mán 25. Sep 2017 12:13
af urban
worghal skrifaði:það eina sem kemur í veg fyrir sölu er hátt verð til neitenda.


og vöntun á framboði, bæði á efninu og hvernig því er dreift.

Ég var tók gríðarlegan þátt í alls kyns skráarskiptarstöðlum, downloadaði mjög mikið sjálfur og var í raun alger download sjúklingur.

Það voru 3 ástæður fyrir því að ég downloadaði.

Ég komst ekki í efnið eftir löglegum leiðum, samanber t.d. músík.
Ég komst ekki í efnið eftir löglegum leiðum, fyrr en mörgum mánuðum eftir að mig langaði til þess, samanber t.d. bíómyndir og þættir.
Verðið var gersamlega út í hött á því efni sem að maður komst í.


Ég downlaoda bara varla í dag, allt í hinum og þessum streymisveitum sem að ég borga alveg hiklaust fyrir efnið og þægindin.

Re: Eng­in sönn­un sé fyr­ir því að ólög­legt niður­hal hafi áhrif

Sent: Mán 25. Sep 2017 12:15
af urban
Hizzman skrifaði:
worghal skrifaði:það eina sem kemur í veg fyrir sölu er hátt verð til neitenda.


Fáir vilja kaupa ásrkift fyrir svo lítið efni, sjóræningjaaðferðin til að horfa er notuð.


Mér finnst ekkert mál að borga Netflix og amazon prime.

Borga einmitt amazon prime bara fyrir The grand tour, fylgja síðan reyndar aðrir kostir, en ég er með þann reiknings samt eingöngu vegna grand tour.

Re: Eng­in sönn­un sé fyr­ir því að ólög­legt niður­hal hafi áhrif

Sent: Mán 25. Sep 2017 13:15
af Viggi
Ég er nú sjálfur algjör download fíkill og aðal ástæðan að allt efnið er á of mörgum stöðum. Er samt með íslenska netflix sem er helvíti fínt en bara of lítið af efni en tónlistina hlustar maður á spotify og mixcloud. Manni fynst bara voða þægilegtað opna torrentsíðurnar á morgnana og ná í skamt kvöldsins. En allt draslið sem maður horfir á er á öllum hugsanlegu platformum og torrent er þægilegasta leiðin til að fá það