Síða 1 af 1
"Dauðadæmd" framboð ..?
Sent: Mán 18. Sep 2017 20:16
af Stuffz
Dauðadæmd framboð og áhrif þeirra á möguleika annarra framboða.
Hvaða framboð telji þið að eigi ekki eftir að ná þeim 5% sem þarf til að koma flokki á þing og borgar það sig fyrir þau að reyna.
5,7% atkvæða fóru til spillis* hjá 5 Framboðum 2016, Kjörsókn var 79,2%
https://is.wikipedia.org/wiki/Al%C3%BEi ... ingar_201611,9% atkvæða fóru til spillis* hjá 9 Framboðum 2013, Kjörsókn 81,4%
https://is.wikipedia.org/wiki/Al%C3%BEi ... ingar_20132,8% atkvæða fóru til spillis* hjá 2 Framboðum 2009, Kjörsókn 85,1%
https://is.wikipedia.org/wiki/Al%C3%BEi ... ingar_20093,3% atkvæða fóru til spillis* hjá 1 Framboði 2007, Kjörsókn 83,6%
https://is.wikipedia.org/wiki/Al%C3%BEi ... ingar_2007*kjósendur þeirra fengu 0 fulltrúa.
E.S. ætti kannski að lækka 5% múrinn sem 4 Flokka kerfið setti upp á sínum tíma aftur niður í 3% ?
Re: "Dauðadæmd" framboð ..?
Sent: Mán 18. Sep 2017 20:20
af Viktor
Er búið að gefa það út hvaða flokkar verða í framboði?
Af þeim sem ég hef séð í könnunum held ég, kalt mat, að allir flokkar eigi eftir að ná manni inn.
Þessi dauðu atkvæði eru algjör skandall í íslensku stjórnkerfi, og það bitnar mest á vinstri flokkunum. Samfylkingin var ágætis tilraun til að sameina vinstrið en er komið í þvílíkar ógöngur með óhæfu fólki í fararbroddi og ómerkileg stefnumál sem eiga engan vegin við.
Re: "Dauðadæmd" framboð ..?
Sent: Mán 18. Sep 2017 20:45
af Revenant
Hvað ætlar flokkur með 1-2 þingmenn á Alþingi að gera? Það er ekki nægjanlega margir þingmenn til að sitja í öllum nefndum Alþingis og það er ólíklegt að svoleiðis flokkar myndi hluta af stjórnarmeirihluta.
Re: "Dauðadæmd" framboð ..?
Sent: Mán 18. Sep 2017 20:58
af Stuffz
doublepost!
Re: "Dauðadæmd" framboð ..?
Sent: Mán 18. Sep 2017 21:00
af Stuffz
Sallarólegur skrifaði:Er búið að gefa það út hvaða flokkar verða í framboði?
Af þeim sem ég hef séð í könnunum held ég, kalt mat, að allir flokkar eigi eftir að ná manni inn.
Þessi dauðu atkvæði eru algjör skandall í íslensku stjórnkerfi, og það bitnar mest á vinstri flokkunum. Samfylkingin var ágætis tilraun til að sameina vinstrið en er komið í þvílíkar ógöngur með óhæfu fólki í fararbroddi og ómerkileg stefnumál sem eiga engan vegin við.
Framboð sem hefur áður mistekist að skila atkvæðum sínum inná þing síðan 2007 eru eftirfarandi:
x2 Dögun 2013, 2016
x2 Húmanistaflokkurinn 2013, 2016
x2 Alþýðufylkingin 2013, 2016
x1 Íslandshreyfingin 2007
x1 Frjálslyndi flokkurinn 2009
x1 Lýðræðishreyfingin 2009
x1 Flokkur heimilanna 2013
x1 Lýðræðisvaktin 2013
x1 Hægri grænir 2013
x1 Regnboginn 2013
x1 Landsbyggðarflokkurinn 2013
x1 Sturla Jónsson 2013
x1 Flokkur fólksins 2016
x1 Íslenska þjóðfylkingin 2016Revenant skrifaði:Hvað ætlar flokkur með 1-2 þingmenn á Alþingi að gera? Það er ekki nægjanlega margir þingmenn til að sitja í öllum nefndum Alþingis og það er ólíklegt að svoleiðis flokkar myndi hluta af stjórnarmeirihluta.
kannski þörf á að auka þingmannafjölda úr 63 í 75
..og stækka salinn í leiðinni?
Re: "Dauðadæmd" framboð ..?
Sent: Mán 18. Sep 2017 22:01
af Viktor
Revenant skrifaði:Hvað ætlar flokkur með 1-2 þingmenn á Alþingi að gera? Það er ekki nægjanlega margir þingmenn til að sitja í öllum nefndum Alþingis og það er ólíklegt að svoleiðis flokkar myndi hluta af stjórnarmeirihluta.
Greiða atkvæði um mál og minnka alræðisvald stærri flokka og "meirihlutans" hvers tíma.
Re: "Dauðadæmd" framboð ..?
Sent: Þri 19. Sep 2017 10:03
af Hauxon
Sallarólegur skrifaði:Þessi dauðu atkvæði eru algjör skandall í íslensku stjórnkerfi, og það bitnar mest á vinstri flokkunum. Samfylkingin var ágætis tilraun til að sameina vinstrið en er komið í þvílíkar ógöngur með óhæfu fólki í fararbroddi og ómerkileg stefnumál sem eiga engan vegin við.
Mér lýst reyndar nokkuð vel á núverandi formann Samfylkingarinnar. Ég hélt kannski að BF myndi taka við keflinu sem fulltrúi þeirra sem vilja balans á milli viðskiptalífs og samfélags en varð fyrir miklum vonbrigðum þegar þau komu sjöllunum aftur til valda eftir kosningar (eins og BF gerir reyndar í flestum sveitafélögum landsins). Helst myndi vilja að BF og Samfó biðu fram saman með það að markmiði að sameinast eftir kosningar. ...en það verður aldrei. :/
Re: "Dauðadæmd" framboð ..?
Sent: Þri 19. Sep 2017 10:17
af jericho
Taka upp nýju
stjórnarskránna:
stjornlagarad.is skrifaði:39. gr. Alþingiskosningar
Á Alþingi eiga sæti 63 þjóðkjörnir þingmenn, kosnir leynilegri kosningu til fjögurra ára.
Atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vega jafnt.
Heimilt er að skipta landinu upp í kjördæmi. Þau skulu flest vera átta.
Samtök frambjóðenda bjóða fram lista, kjördæmislista eða landslista eða hvort tveggja. Frambjóðendur mega bjóða sig fram samtímis á landslista og einum kjördæmislista sömu samtaka.
Kjósandi velur með persónukjöri frambjóðendur af listum í sínu kjördæmi eða af landslistum, eða hvort tveggja. Honum er og heimilt að merkja í stað þess við einn kjördæmislista eða einn landslista, og hefur hann þá valið alla frambjóðendur listans jafnt. Heimilt er að mæla fyrir um í lögum að valið sé einskorðað við kjördæmislista eða landslista sömu samtaka.
Þingsætum skal úthluta til samtaka frambjóðenda þannig að hver þeirra fái þingmannatölu í sem fyllstu samræmi við heildaratkvæðatölu.
Í lögum má mæla fyrir um að tiltekinn fjöldi þingsæta sé bundinn einstökum kjördæmum, þó ekki fleiri en 30 alls. Tala kjósenda á kjörskrá að baki hverju bundnu sæti skal ekki vera lægri en meðaltalið miðað við öll 63 þingsætin.
Í kosningalögum skal mælt fyrir um hvernig stuðla skuli að sem jöfnustu hlutfalli kvenna og karla á Alþingi.
Breytingar á kjördæmamörkum, tilhögun á úthlutun þingsæta og reglum um framboð, sem fyrir er mælt í lögum, verða aðeins gerðar með samþykki 2/3 hluta atkvæða á Alþingi. Slíkar breytingar má ekki gera ef minna en sex mánuðir eru til kosninga, og gildistaka þeirra skal frestast ef boðað er til kosninga innan sex mánaða frá staðfestingu þeirra.
Re: "Dauðadæmd" framboð ..?
Sent: Þri 19. Sep 2017 20:05
af beatmaster
Væri ekki Björt framtíð nær að sameinast Viðreisn?
Re: "Dauðadæmd" framboð ..?
Sent: Þri 19. Sep 2017 20:37
af GuðjónR
beatmaster skrifaði:Væri ekki Björt framtíð nær að sameinast Viðreisn?
Breyta þeim úr "same shit different names" í "same shit same name" ?
Re: "Dauðadæmd" framboð ..?
Sent: Þri 19. Sep 2017 20:39
af Moldvarpan
Já, sammála. Mörg þessara litlu framboða gætu í raun sameignast, það er ekki það mikið sem ber á milli.