Síða 1 af 1
Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Mán 31. Júl 2017 14:09
af brain
Re: Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Mán 31. Júl 2017 15:34
af KermitTheFrog
Mér finnst þessi punktur einna áhugaverðastur:
Autonomous cars: In 2018 the first self driving cars will appear for the public. Around 2020, the complete industry will start to be disrupted. You don't want to own a car anymore. You will call a car with your phone, it will show up at your location and drive you to your destination. You will not need to park it, you only pay for the driven distance and can be productive while driving. Our kids will never get a driver's licence and will never own a car.
Nú er ég á þeim stað í lífinu að ég kemst af án þess að eiga bíl. Ég nenni ekki að eiga og reka bíl, og ég sé ekki fram á að fá mér bíl á næstu árum.
En hvað verður um alla bílana? Situr fólk uppi með verðlausa málmhauga? Verða núverandi bílar eitthvað endurnýttir í sjálfkeyrandi flotann?
Re: Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Mán 31. Júl 2017 15:41
af Frussi
Margir bílar framleiddir í dag og síðustu ár verða hvort sem er verðlausir málmhaugar eftir einhver ár
Re: Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Mán 31. Júl 2017 16:42
af Viktor
KermitTheFrog skrifaði:En hvað verður um alla bílana? Situr fólk uppi með verðlausa málmhauga?
Eins og allir bílar - alltaf?
Re: Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Mið 02. Ágú 2017 07:28
af HalistaX
Held að minn hafi meira að segja verið verðlaus málmhaugur þegar ég keypti hann. Because, lets be honest, þá stór efast ég um að bíla framleiðendur séu að ætlast til þeas að við séum að nota þetta og braska með þetta rusl eftir 10+ ár, hvað þá að verðlauna þá sem eiga 20+ ára gamla bíla... Minn er til að mynda 13 ára.
Miðað við hvernig þetta er út í t.d. London og Köben, þá er bara enginn á bíl þar þar sem framleiðsluábyrgðin er runnin út. Hvað verður um bílana þá? Ég veit það ekki... Ætli þeir fari ekki á bílasölur í úthverfum, sveitina eða fátækrahverfum.
Og svo er ég alltaf að pæla í því hví allt er að detta í sundur og úr sambandi í bílnum mínum...
Heyrði einhvern tímann að fyrir utan Norður Kóreu, þá eigum við Íslendingar elsta bílaflota heims.
Það er löngu kominn tími á að einkabíllinn verði lagður á hilluna.
Pælið í því, á meðan við erum í þessum pælingum, hvernig það verður þegar borgir verða orðnar svo stórar að mörkin milli borgar og sveitar verða nánast engin, eða jafnvel bara engin. Þegar Hveragerði verður partur af Höfuðborgarsvæðinu eins og Mosfellsbær... Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri, Þorlákshöfn og Hveragerði verður allt sami staðurinn að nafni Þelestgerði. Það er svakalegt að hugsa útí! Það eru kannski alveg 200 ár í það hérna heima, en úti? Hafiði horft útum gluggann í flugvélinni yfir Danmörku? Það er svona 1-2km á milli nokkur þúsunda manna byggða útum allt "meginlandið". Þar verður þetta að veruleika innan 50 ára! Lofa því!
Litli heimurinn okkar stækkar og stækkar, án þess að stækka. Bráðum rennur allt pláss út. Og miðað við hvar við erum stödd hvað varðar geimferðir og eitthvað FTL-esque þá er ég hálf feginn að vera ekki lífi eftir 200 ár...
Re: Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Fim 03. Ágú 2017 21:28
af KristinnK
HalistaX skrifaði:Pælið í því, á meðan við erum í þessum pælingum, hvernig það verður þegar borgir verða orðnar svo stórar að mörkin milli borgar og sveitar verða nánast engin, eða jafnvel bara engin.
Frjósemishlutfall (e. fertility rate) Íslendinga, þ.e. hversu mörg börn hver kona á að meðaltali,
er milli 1.8 or 2. Til þess að fólksfjöldi vaxi þarf sú tala að vera um og yfir 2.1. Íslendingar munu líklega aldrei verða fleiri en þessi ~330 þúsund í dag.
Varðandi bíla þá held ég að það muni alltaf vera til hefðbundnir bílar. Stór hluti fólks vill sitja sjálft við stýrið, hvort sem það sé vegna þess að það hafi ánægju af því að keyra, vegna þess að það vill hafa meir stjórn á ferðinni eða vegna frelsistilfinningarinnar við það að keyra. Margir munu eflaust kalla eftir því að gera hefðbundna bíla ólöglega, en ég held ekki að það verði nógu stór hópur.
Re: Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Fös 04. Ágú 2017 01:20
af ZiRiuS
Bíll er ein versta fjárfesting í heimi svo hvenær eru bílar ekki verðlausir málmhaugar?
Re: Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Fös 04. Ágú 2017 08:41
af KermitTheFrog
KristinnK skrifaði:Stór hluti fólks vill sitja sjálft við stýrið, hvort sem það sé vegna þess að það hafi ánægju af því að keyra, vegna þess að það vill hafa meir stjórn á ferðinni eða vegna frelsistilfinningarinnar við það að keyra.
Og þessi stóri hluti fólks mun þá minnka umferðaröryggi töluvert. Áfram þau...
Auðvitað verður erfitt að fá fólk sem hefur keyrt sjálft alla sína ævi og vill keyra sjálft, til að hætta að keyra. Það mun heldur ekki gerast. Enginn verður neyddur til að leggja bílnum. En með komandi kynslóðum mun þetta fjara út. Það eru t.d. færri og færri unglingar að taka bílpróf 17 ára. Margir þættir spila eflaust þarna inn í, t.d. hvað það er fjandi dýrt. En vonandi er ungt fólk líka að hugsa raunsærra og átta sig á því hvað einkabíllinn er löngu sprungið konsept.
Re: Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Fös 04. Ágú 2017 08:42
af worghal
ZiRiuS skrifaði:Bíll er ein versta fjárfesting í heimi svo hvenær eru bílar ekki verðlausir málmhaugar?
veltur allt á bílnum, hversu mikinn pening þú átt og pláss til geymslu.
ferrari F40 kostaði 400k þegar hann kom út 1987 en kostar hátt í 1.3mil í dag
Re: Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Fös 04. Ágú 2017 11:56
af Viktor
worghal skrifaði:ZiRiuS skrifaði:Bíll er ein versta fjárfesting í heimi svo hvenær eru bílar ekki verðlausir málmhaugar?
veltur allt á bílnum, hversu mikinn pening þú átt og pláss til geymslu.
ferrari F40 kostaði 400k þegar hann kom út 1987 en kostar hátt í 1.3mil í dag
400.000 kr. árið 1987 eru ~2,3 mills.
Mjög slæm fjárfesting.
- verðlag.PNG (43.4 KiB) Skoðað 961 sinnum
https://hagstofa.is/verdlagsreiknivelTil samanburðar, góð fjárfesting, kaup í hlutabréfum Apple 400.000 kr. árið 1987:
Date Open High Low Close Volume
Aug 5, 1987 0.00 1.55 1.50 1.54 32,592,000
Date Open High Low Close Volume
Aug 3, 2017 157.05 157.21 155.02 155.57 27,097,296
400.000 => 41.922.666 kr.https://www.google.com/finance/historic ... Dg&start=0
Re: Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Fös 04. Ágú 2017 13:24
af worghal
Sallarólegur skrifaði:worghal skrifaði:ZiRiuS skrifaði:Bíll er ein versta fjárfesting í heimi svo hvenær eru bílar ekki verðlausir málmhaugar?
veltur allt á bílnum, hversu mikinn pening þú átt og pláss til geymslu.
ferrari F40 kostaði 400k þegar hann kom út 1987 en kostar hátt í 1.3mil í dag
400.000 kr. árið 1987 eru ~2,3 mills.
Mjög slæm fjárfesting.
verðlag.PNG
https://hagstofa.is/verdlagsreiknivelTil samanburðar, góð fjárfesting, kaup í hlutabréfum Apple 400.000 kr. árið 1987:
Date Open High Low Close Volume
Aug 5, 1987 0.00 1.55 1.50 1.54 32,592,000
Date Open High Low Close Volume
Aug 3, 2017 157.05 157.21 155.02 155.57 27,097,296
400.000 => 41.922.666 kr.https://www.google.com/finance/historic ... Dg&start=0
dollarar, ekki krónur.
Re: Hvað skeður næstu 20 ár ?
Sent: Fös 04. Ágú 2017 15:47
af Viktor
worghal skrifaði:Sallarólegur skrifaði:worghal skrifaði:ZiRiuS skrifaði:Bíll er ein versta fjárfesting í heimi svo hvenær eru bílar ekki verðlausir málmhaugar?
veltur allt á bílnum, hversu mikinn pening þú átt og pláss til geymslu.
ferrari F40 kostaði 400k þegar hann kom út 1987 en kostar hátt í 1.3mil í dag
400.000 kr. árið 1987 eru ~2,3 mills.
Mjög slæm fjárfesting.
verðlag.PNG
https://hagstofa.is/verdlagsreiknivelTil samanburðar, góð fjárfesting, kaup í hlutabréfum Apple 400.000 kr. árið 1987:
Date Open High Low Close Volume
Aug 5, 1987 0.00 1.55 1.50 1.54 32,592,000
Date Open High Low Close Volume
Aug 3, 2017 157.05 157.21 155.02 155.57 27,097,296
400.000 => 41.922.666 kr.https://www.google.com/finance/historic ... Dg&start=0
dollarar, ekki krónur.
Lítur skárra út í dollurum. Samt ekkert mjög merkileg fjárfesting mv. 30 ár
Ansi mikið gamble fyrir 4% ávöxtun.
- inflation.PNG (12.24 KiB) Skoðað 886 sinnum
- compound interest.PNG (12.51 KiB) Skoðað 881 sinnum