Síða 1 af 1

EM Kvenna

Sent: Mán 24. Júl 2017 20:27
af Moldvarpan
Djöfull er leiðinlegt að horfa á kvennaboltann... gæti alveg eins horft á málningu þorna... það gerist bara akkurat ekkert.

Vantar allan kraft, hraða og snerpu. Ég trúði því ekki fyrst að þetta væri EVRÓPUKEPPNIN sem ég var að horfa á.... þetta var eins brösulegt og 16 ára krakkar í frammhaldskóla að leika sér. Hrikalega misheppnað sport fyrir kvenmenn.
Það mætti minnka völlinn um 30-40%, þá væri kannski aðeins meira fútt í þessu.

Aðeins að pústa út...

Re: EM Kvenna

Sent: Mán 24. Júl 2017 20:39
af svanur08
hehe svo satt hjá þér. HM karla næsta sumar, það verður fjör.

Re: EM Kvenna

Sent: Mán 24. Júl 2017 21:23
af MeanGreen
Fyrir átta árum var ég sullandi í Kool-Aidinu. Trúði því að kvennafótboltinn væri ekkert verri en karla. Horfði á of marga leiki, bæði landsleiki og í efstu deild hér á landi. Hef meira að segja farið á leiki, í rigningu og roki. Alltaf leið mér illa í hausnum og það ágerðist með hverjum leik sem ég horfði á. Kom að því að ég gat ekki meir.

Núna veit ég að þetta var líklegast Cognitive dissonance. Ég trúði því að það væri enginn munur að horfa á karla- og kvennabolta. En það sem ég sá var allt annað. Moldvarpan nefnir nokkur dæmi um muninn í OP.

Eftir að ég sætti mig við það að það er munur get ég horft á kvennafótbolta án þess að fá hausverk. Hins vegar get ég ekki horft lengi því mér finnst hann ekki skemmtilegur. :baby

Re: EM Kvenna

Sent: Mán 24. Júl 2017 21:25
af jonsig
Þær eru langt frá því að vera jafn miklir aumingjar og karlkyns flottræflarnir, alltaf liggjandi grenjandi í grasinu.

Re: EM Kvenna

Sent: Mán 24. Júl 2017 21:34
af Moldvarpan
jonsig skrifaði:Þær eru langt frá því að vera jafn miklir aumingjar og karlkyns flottræflarnir, alltaf liggjandi grenjandi í grasinu.


Það er líka engin hætta á að detta,,, þær labba/skokka þetta flestar bara í rólegheitum.

Ég er þó sammála að leikaraskapur eins og að láta sig detta er mjöööög lame.
En menn virðast komast upp með það, og það getur ráðið úrslitum í leik.

Re: EM Kvenna

Sent: Mán 24. Júl 2017 21:38
af littli-Jake
Ástæðan fyrir að það er minni óheiðarleiki í kvennaboltanum en karla er að það er minna undir. Svo einfalt er það.

Re: EM Kvenna

Sent: Mán 24. Júl 2017 22:12
af jonsig
littli-Jake skrifaði:Ástæðan fyrir að það er minni óheiðarleiki í kvennaboltanum en karla er að það er minna undir. Svo einfalt er það.


Eða margur verður að aurum api.

Re: EM Kvenna

Sent: Mán 24. Júl 2017 22:14
af svanur08
Hvaða lið tekur þetta á HM næsta sumar? Portúgal? efast um það unnu EM með heppni alltaf jafntefli. Þýskaland eða eitthvað suður ameríku lið.

Re: EM Kvenna

Sent: Mán 24. Júl 2017 22:29
af littli-Jake
jonsig skrifaði:
littli-Jake skrifaði:Ástæðan fyrir að það er minni óheiðarleiki í kvennaboltanum en karla er að það er minna undir. Svo einfalt er það.


Eða margur verður að aurum api.


Önnur leið til að orða þetta

Re: EM Kvenna

Sent: Þri 25. Júl 2017 11:00
af chaplin
jonsig, hvað kom eiginlega fyrir þig? Varst almennt málefnalegur og skemmtilegt að flygjast með en í dag skal enginn voga sér að hafa aðra skoðun en þú því sá aðili er þá bara fífl.

Leiðinleg þróun, vonandi leysir þú úr þínum málum og kemur aftur sterkur til leiks því það hefur enginn gaman af svona stælum.

Re: EM Kvenna

Sent: Þri 25. Júl 2017 12:09
af rapport
Leikurinn spilast öðruvísi hjá stelpunum og er oft ekki jafn skemmtilegur að horfa á.

Eru liðin ekki bara upp til hópa spilandi eins og Grikkland á EM karla 2004?

Re: EM Kvenna

Sent: Fim 27. Júl 2017 13:29
af Moldvarpan
Svaka árangur (kaldhæðni)

http://www.visir.is/g/2017170729051/island-atti-eitt-skot-a-mark-allt-motid-i-hollandi

Maður fær alveg kjánahroll við að hugsa um og fylgjast með þessari vitleysu.