Síða 1 af 1
Kaupa í útlöndum
Sent: Mán 24. Júl 2017 17:07
af agust1337
Sæl(ir)
er staddur í filippseyjum og vil bara spyrja þá sem hafa gert það sama.
Hefur einhver keypt eitthvað af Apple? Ég meina ég hef lesið að það virkar ekki að kaupa á netinu ef kortið er ekki frá sama landi, en það var hjá US svo ég er ekki viss um hvort það sé það sama annars staðar
Re: Kaupa í útlöndum
Sent: Mán 24. Júl 2017 18:54
af ColdIce
Allir símar frá Apple beint eru unlocked. Það var mér allavega sagt af apple.com þegar ég keypti minn í Skotlandi.
Re: Kaupa í útlöndum
Sent: Mán 24. Júl 2017 21:07
af agust1337
ColdIce skrifaði:Allir símar frá Apple beint eru unlocked. Það var mér allavega sagt af apple.com þegar ég keypti minn í Skotlandi.
Ég var að spá í macbook Pro, það er næstum því 100 þúsund kall munur
1 pesó = ~2 kr
- IMG_6262.PNG (269.36 KiB) Skoðað 1183 sinnum
- IMG_6263.PNG (195.39 KiB) Skoðað 1183 sinnum
Re: Kaupa í útlöndum
Sent: Þri 25. Júl 2017 09:58
af Televisionary
Ég hef getað keypt vélbúnað beint frá Apple á netinu án vandræða í UK. Get ekki verslað tónlist eða sjónvarpsefni af þeim. Geri ráð fyrir því að þetta vera eins í NZ.
En það hefur komið betur út fyrir mig að versla af Apple í verslun frekar en af netinu því að þeir hafa boðið upp á t.d. Tax Free (Global Blue) og þá eru UK verðin orðin mjög góð.
Re: Kaupa í útlöndum
Sent: Þri 25. Júl 2017 10:36
af Pandemic
Þú hefur alltaf getað keypt gjafakort fyrir nákvæmlega upphæðina sem tölvan kostar í apple búðinni og notað á apple.com til að fá custom vélar eins og t.d með dönsku lyklaborði.
Starfsmenn búðanna hjálpa manni yfirleitt við þetta ef maður lendir í veseini. Annars er ekkert mál að kaupa vélarnar ef þær eru til.
Re: Kaupa í útlöndum
Sent: Þri 25. Júl 2017 12:31
af Tiger
Ég hef marg oft verslað iPhone í USA Apple Store með íslensku credit korti, hef bara fengið Vísa til að setja inn bandaríska secondary billing addressu og hefur virkað ár eftir ár.
Prufaðu bara að kaupa með kortinu þínu, annað hvort verður því hafnað eða ekki. Ef hafnað þá læturu bara Vísla Ísland setja inn einhverja addressu á Filipseyjum og ætti að virka.
PS. Veist þú gætir verið stoppaður í tollinum og þarft að borga VSK af upphæð umfram 85þús.
Re: Kaupa í útlöndum
Sent: Þri 25. Júl 2017 13:37
af Klemmi
Tiger skrifaði:PS. Veist þú gætir verið stoppaður í tollinum og þarft að borga VSK af upphæð umfram 85þús.
Ef þú ert stoppaður, þá greiðirðu talsvert meira en það, og getur lent á sakaskrá ef þú ert með temmilega mikið... ein svona tölva gæti verið nóg
Vil ekki vera með hræðsluáróður, en ég lenti í því síðustu jól að vinur minn var að taka með sér dót fyrir mig frá útlandinu, hann rétt slapp við sakaskránna en efast um að ég reyni að sleppa við tollinn aftur.
Re: Kaupa í útlöndum
Sent: Þri 25. Júl 2017 14:33
af Televisionary
Það er sjálfgefið að ef menn ætla að standa í innflutningi að þeir fari í rauða hliðið ef þeir eru með varning sem er umfram leyfilegra tollfríðinda annars lendirðu í töluverðum leiðindum og enga tölvu.
Ef þú ert með tölvu sem kostar 300K og þú ætlar ekki að greiða af henni. Þá er hún gerð upptæk og þú þarft að greiða sekt upp á aðra eins upphæð.
Re: Kaupa í útlöndum
Sent: Þri 25. Júl 2017 14:42
af Urri
Klemmi skrifaði:Tiger skrifaði:PS. Veist þú gætir verið stoppaður í tollinum og þarft að borga VSK af upphæð umfram 85þús.
Ef þú ert stoppaður, þá greiðirðu talsvert meira en það, og getur lent á sakaskrá ef þú ert með temmilega mikið... ein svona tölva gæti verið nóg
Vil ekki vera með hræðsluáróður, en ég lenti í því síðustu jól að vinur minn var að taka með sér dót fyrir mig frá útlandinu, hann rétt slapp við sakaskránna en efast um að ég reyni að sleppa við tollinn aftur.
Hehe ég hef verið stoppaður 2svar í tollinum með of mikinn varning en var bjargað af löggunni
þeir tóku mig afsíðis í eithvað tékk og svo hleypti mér svo út annarsstaðar. En eftir það hef ég ekki tekið nema akkúrat það sem má. Er ekki þess virði imho.