Síða 1 af 1
Borðtölva til útlanda
Sent: Fös 14. Júl 2017 19:40
af daddni
Sælir,
Er að leita mér af lausn til að flytja borðtölvu með mér til útlanda sem handfarangur. Er með
http://www.corsair.com/en-us/carbide-se ... tower-case þannig kassinn er ekkert svakalega stór, hef verið að leita af einhverskonar tösku sem er hönnuð til að láta borðtölvu í eða hvort þið hafið einhverja reynslu á því að flytja borðtölvu með ykkur til útlanda og hvernig það gekk.
Ef ég finn ekkert enda ég alveg örugglega á því bara að nota litla ferðatösku en væri samt gaman að fá hugmyndir frá ykkur.
Re: Borðtölva til útlanda
Sent: Lau 15. Júl 2017 00:30
af agust1337
Af hverju hringir þú ekki bara í flugfélagið? Þeir geta best svarað þér
Re: Borðtölva til útlanda
Sent: Lau 15. Júl 2017 02:27
af Manager1
Flugfélögin eru ekki með eitthvað pottþétt svar við "hvernig er best að flytja borðtölvu í handfarangri".
Ég held að það sé ekki til nein taska sérhönnuð fyrir borðtölvur, a.m.k. hef ég aldrei heyrt eða séð svoleiðis.
Sennilega er best fyrir þig að finna venjulega ferðatösku sem er nógu lítil til að passa í handfarangur og klæða tölvuna í eitthvað mjúkt til að verja hana.
Re: Borðtölva til útlanda
Sent: Lau 15. Júl 2017 02:49
af appel
Wow air:
56x45x25 cm (12kg)
https://wowair.is/algengar-spurningar/f ... dfarangri/Icelandair:
40x20x55 (10kg)
http://www.icelandair.is/information/ba ... d-baggage/Tölvan þín er:
42,5 x 21,5 x 46,4 (Veit ekki þyngd)
Þannig að Wow air getur flutt hana, en ekki Icelandair. (svo lengi sem hún er léttari en 12kg)
Þú gætir klætt kassann í einhverju þunnum svörtum klæðnaði til að fela að þetta sé tölva, kannski þéttan poka, kannski einhver íþróttataska eða bakpoki stór. Þú finnur enga ferðatösku sem er akkúrat.
Re: Borðtölva til útlanda
Sent: Lau 15. Júl 2017 03:19
af Manager1
Kassinn hans er 8.2kg, vel innan marka jafnvel þegar búið er að fylla hann af dóti.
Re: Borðtölva til útlanda
Sent: Lau 15. Júl 2017 15:37
af MeanGreen
Hvað með að selja kassann, fara með íhlutina í ferðatösku eða handfarangri, og kaupa nýjan kassa úti?
Re: Borðtölva til útlanda
Sent: Lau 15. Júl 2017 17:56
af ElGorilla
Það fyrsta sem mér datt í hug er flightcase fyrir gítarmagnara.
https://www.youtube.com/watch?v=G9ZpkSU-UEA
Re: Borðtölva til útlanda
Sent: Lau 15. Júl 2017 19:03
af Squinchy
Eins og eplið sagði þá fer það eftir flugfélaginu hvað farangurinn má vera stór.
Einnig athuga fyrirfram með öryggishliðið hvort þú getir yfirhöfuð tekið vélina í handfarangur, ekkert víst að þeir sleppi þér í gegn með svona.
Vefja kassanum í lak og svona ströpp utanum
https://www.amazon.com/ThinkGeek-GearGr ... B00021UJ62Ef vélin endar á farangursrýminu þá fjarlægja CPU heat sink ef stór kælir er í vélinni, heyra í tölvu verslunum sem selja svona kassa og athuga hvort þeir eigi pakningu utan af svona kassa handa þér og pakka honum í þann kassa
Re: Borðtölva til útlanda
Sent: Mán 17. Júl 2017 09:04
af Urri
Myndi ekki treysta þvi´að fara með tölvu í flug... þegar ég hef verið að flytja tölvur milli landa sendi ég þær í pósti og hef þá kassana í orginal umbúðunum og tek auðvitað skjákort og þess háttar úr og set í orginal pakkningar.
Seinast þá keypti ég meira að segja tryggingu á tölvunni því hún var frekar ný og mikils virði.
Re: Borðtölva til útlanda
Sent: Þri 18. Júl 2017 18:14
af daddni
Takk fyrir ábendingarnar, tek örugglega bara tölvuna sem handfarangur þar sem hún er innan marka.