Nú þegar farsímafyrirtækið sem ég versla við (Telia DK) hefur breytt áskriftunum hjá sér þannig ég get hringt ókeypis í norðurlöndin og EU þá hef ég verið að spá hvort ég eigi að segja upp internetsímanum sem ég er með hjá Hringdu (íslenskt heimasíma númer).
En þá er spurning hvort þeir sem hringja í okkur verða þá að hringja í okkur eftir útlandataxta ?
hvernig hafa þessar nýju reglur sem komu um daginn áhrif á það? er það kannski mismunandi eftir fyrirtækjum?
*edit*
Ég var of fljótur á mér, Telia tekur víst ekki Ísland sem Norðurland...
Símtöl til útlanda.
Re: Símtöl til útlanda.
Og ekki eina fyrirtækið !
Hef oft lent í að Ísland er hvorki "Skandinavia" né "Europe" þegar senda á pakka heim.
Við erum flokkuð sem "Other Country"
Varð fátt um svör hjá Íslandspósti og fékk engin svör frá ráðuneyti um ástæður.
Hef oft lent í að Ísland er hvorki "Skandinavia" né "Europe" þegar senda á pakka heim.
Við erum flokkuð sem "Other Country"
Varð fátt um svör hjá Íslandspósti og fékk engin svör frá ráðuneyti um ástæður.
Re: Símtöl til útlanda.
Skandinavía er skagi sem löndin eru á, eða þannig var svæðið teiknað í gömlum kortum á meðan að þekking manna var ekki meiri á heiminum. Ísland var vissulega ekki á þeim skaga. Við erum ekki og höfum aldrei verið hluti af Skandinavíu en við erum hluti af Norðurlöndunum og þeim löndum sem flokkast til Norður-Evrópu.
Það er rótgrótið í íslenskri menningu einhverra hluta vegna að taka okkur sem Skandinava, enda komum við flest þaðan og eflaust er þetta minnimáttarkennd líka, að vilja vera með í stærri hópi En Ísland er ekki í Skandinavíu.
Ég myndi tengja Netsímann svo að ættingjar ykkar og vinir á Íslandi hringi í ykkur á innanlandstaxta. Eða bara nota Skype, Facebook, Facetime osfrv.

-
Höfundur - Of mikill frítími
- Póstar: 1795
- Skráði sig: Fim 12. Jún 2003 17:16
- Reputation: 82
- Staðsetning: DK
- Staða: Ótengdur
Re: Símtöl til útlanda.
jú rétt er það Ísland er ekki hluti af Skandinavíu, en það sem farsímafyrirtækið skrifar "Fri tale i Norden, Baltikum og Europa" þá taldi ég fyrir víst að Ísland væri með. Í smá letrinu stendur hinsvegar "Norden omfatter DK, SE, FI og NO" Skítt!
Netsíminn fær að halda sér enn sem komið er, var að flytja í aðra íbúð og var að vonast til að geta losnað við að finna honum stað
Netsíminn fær að halda sér enn sem komið er, var að flytja í aðra íbúð og var að vonast til að geta losnað við að finna honum stað
Electronic and Computer Engineer
Re: Símtöl til útlanda.
axyne skrifaði:jú rétt er það Ísland er ekki hluti af Skandinavíu, en það sem farsímafyrirtækið skrifar "Fri tale i Norden, Baltikum og Europa" þá taldi ég fyrir víst að Ísland væri með. Í smá letrinu stendur hinsvegar "Norden omfatter DK, SE, FI og NO" Skítt!
Netsíminn fær að halda sér enn sem komið er, var að flytja í aðra íbúð og var að vonast til að geta losnað við að finna honum stað
ættir að geta haft hann sem app í snjallsíma...