Síða 1 af 2
Skutlarar!
Sent: Mán 26. Jún 2017 23:29
af jonsig
Eruð þið að nota þetta?
Sýnist þetta mest megnis dubious útlendingar? Og undarlegir Íslendingar (útlitslega). Þetta er á barmi þess að vera undarlegra fólk en leigubílstjórar.
Hvað kostar að taka leigubíl á keflavíkurflugvöll frá RVK t.d. sem ég þarf að gera reglulega ?
Re: Skutlarar!
Sent: Mán 26. Jún 2017 23:40
af g0tlife
Ertu þá að tala um skutlarar síðuna á facebook eða er komið einhvað nýtt sem ég veit ekki af ? Mættir lýsa þessu betur það sem þú ert að tala um. Annars hefur skutlarar á facebook alltaf virkað fyrir mig.
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 06:39
af MrIce
Leigubíll frá kef til reykjavíkur er uþb 16 þús. Ódýrara að taka bara flybus eða grayline í bæinn og þaðan leigubíl heim
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 07:45
af Moldvarpan
jonsig skrifaði:Eruð þið að nota þetta?
Sýnist þetta mest megnis dubious útlendingar? Og undarlegir Íslendingar (útlitslega). Þetta er á barmi þess að vera undarlegra fólk en leigubílstjórar.
Hvað kostar að taka leigubíl á keflavíkurflugvöll frá RVK t.d. sem ég þarf að gera reglulega ?
Hvernig spotta ég dubious útlending? Er hann dubious ef hann talar pólsku?
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 09:14
af stefhauk
Oft útlendingar með prófíla eingöngu búnir til fyrir skutlið myndi telja það dubius annars nota ég þetta ekki og tek frekar leigubíl þegar þess þarf.
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 10:02
af KermitTheFrog
jonsig skrifaði:Eruð þið að nota þetta?Hvað kostar að taka leigubíl á keflavíkurflugvöll frá RVK t.d. sem ég þarf að gera reglulega ?
Ættir þú ekki að vita það fyrst þú gerir það reglulega?
Annars myndi ég aldrei taka leigubíl út fyrir höfuðborgarsvæðið. Það hljómar eins og mjög mikið waste of money þegar bæði strætó og önnur fyrirtæki bjóða upp á hópbíla hingað og þangað.
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 10:23
af Viktor
Ég notaði þetta dálítið á tímabili, útlendingarnir eru ekkert meira dúbíus heldur en Íslendingarnir, fínasta fólk.
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 12:05
af jonsig
Moldvarpan skrifaði:Hvernig spotta ég dubious útlending? Er hann dubious ef hann talar pólsku?
Byrjaru með vinstri-yfirlætis hrokann. Í þágu læka.
Ég er ekkert að fara linka hérna inn myndum af reiðum uni-brow gæjum. Það má alveg spyrja sig hvort megnið af þeim séu með bílpróf. Eða hvort íslendingarnir þarna séu yfir höfuð edrú.
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 12:06
af einarhr
Sallarólegur skrifaði:Ég notaði þetta dálítið á tímabili, útlendingarnir eru ekkert meira dúbíus heldur en Íslendingarnir, fínasta fólk.
Er kansnki Jonsig Skuttlari? er hann kanski ósáttur við að útlendingur sé að keyra ódýrara en hann?
Það er basic á Íslandi að rakka niður samkeppnisaðila og sérstaklega ef þeir eru ekki Íslenskir
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 12:10
af jonsig
einarhr skrifaði:Sallarólegur skrifaði:Ég notaði þetta dálítið á tímabili, útlendingarnir eru ekkert meira dúbíus heldur en Íslendingarnir, fínasta fólk.
Er kansnki Jonsig Skuttlari? er hann kanski ósáttur við að útlendingur sé að keyra ódýrara en hann?
Það er basic á Íslandi að rakka niður samkeppnisaðila og sérstaklega ef þeir eru ekki Íslenskir
Hahaha,
Stendur einhverstaðar að ég vilji fá siðferðislegt álit einhverstaðar ? hvar er ég að rakka einhvern niður? ef þetta er "rakka" niður þá fá íslendingar verra högg í hausinn.
Nei ég er að pæla hvernig þetta skutlarar dæmi rúllar.
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 12:17
af jonsig
KermitTheFrog skrifaði:jonsig skrifaði:Eruð þið að nota þetta?Hvað kostar að taka leigubíl á keflavíkurflugvöll frá RVK t.d. sem ég þarf að gera reglulega ?
Ættir þú ekki að vita það fyrst þú gerir það reglulega?
Annars myndi ég aldrei taka leigubíl út fyrir höfuðborgarsvæðið. Það hljómar eins og mjög mikið waste of money þegar bæði strætó og önnur fyrirtæki bjóða upp á hópbíla hingað og þangað.
Ég hef borgað í þessi okur bílastæði hingað til, og í sumar voru þau officially full.
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 12:25
af einarhr
Ég flaug til Spánar síðasta haust og á heimleiðinni sat ég með eldri hjónum sem voru að koma úr 3 vikna sumarfríi. Þau bókuðu gistingu á Hótel Keflavík nóttina fyrir brottför og svo áttu þau bókaða gistingu við heimkomu. Hótelið geymdi bílinn fyrir þau í 3 vikur ásamt þvi að keyra og sækja þau á völlinn. Þessi pakki var á sama verði og bara það að geyma bílinn á langtímastæðinu sem er utandyra og maður veit aldrei hvort það sé ófært á þeim á veturna eða bara ða hliðin séu biluð og þú kemst ekki út:
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 13:11
af GuðjónR
Ég fór til Danmerkur fyrir 2 vikum, var frá sunnudegi til sunnudags. Leigði Skoda Superb 2017 árgerð með öllu! Flottasti bíll sem ég hef ekið, borgaði 11.500.- isk fyrir allan tímann, ótakmarkaður akstur og tryggingar innifaldar!
Þegar ég kom heim og setti VÍSA kortið í bílastæðamælinn á langtímastæðinu í Keflavík þá þurfti ég að greiða 9.700.- isk fyrir!
Næstum sama gjald og ég greiddi fyrir ótakmörkuð afnot af splunkunýjum Skoda Superb, hvaða rugl er í gangi hérna?
Það er líka mjög algengt að í DK kosti 50 DK (750 isk) að leggja enn dag í stæði, t.d. við Lalandia og Legoland, en ef þú ætlar að nota stæðin oft þá geturðu keypt árskort fyhrir 120 DK (1800 isk).
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 17:40
af Moldvarpan
jonsig skrifaði:Moldvarpan skrifaði:Hvernig spotta ég dubious útlending? Er hann dubious ef hann talar pólsku?
Byrjaru með vinstri-yfirlætis hrokann. Í þágu læka.
Ég er ekkert að fara linka hérna inn myndum af reiðum uni-brow gæjum. Það má alveg spyrja sig hvort megnið af þeim séu með bílpróf. Eða hvort íslendingarnir þarna séu yfir höfuð edrú.
Ég lofa að ég setti þetta ekki inn í þágu læka.
Bara almenn forvitni, hvað þér finnst vera dubious útlendingur
Mörgum finnst dubious að karlmenn standi saman eitthversstaðar að tala saman tungumál sem þú skilur ekki.
En það þarf ekki að vera neitt dubious við það.
Við búum orðið í fjölmenningarþjóðfélagi og þetta er partur af því, að heyra allskonar tungumál töluð og mismunandi menningar
Ég bölva oft útlendingum, og þá oftast asíubúum. Þeir vita oft varla á hvaða plánetu þeir eru á. (þetta hatur/pirringur hjá mér má túlkast að vild)
stefhauk skrifaði:Oft útlendingar með prófíla eingöngu búnir til fyrir skutlið myndi telja það dubius annars nota ég þetta ekki og tek frekar leigubíl þegar þess þarf.
Er það ekki aðallega gert vegna þess að þetta er í raun ólöglegt?
En þessar grúppur eru að mæta ákveðni þörf. Það er þörf á Uber eða samskonar afbrigði fyrir íslenskan markað.
Þá myndu þessar grúppur drepast af sjálfu sér.
Re: Skutlarar!
Sent: Þri 27. Jún 2017 19:25
af jonsig
Þótt ég kalli ekki allt ömmu mína finnst mér frekar kvikindislegt að pósta myndum af einstaka fólki. En þori að tjá upplifun mína á þessu fyrirbæri "skutlarar!" í heild sinni.
Fólkið kemur svosem ekki verr út á mynd heldur en þessir al-íslensku leigubílstjórar. Ég ætla að chekka á þessum hópi næst, þar sem ég þoli ekki háttalag leigubílstjóra bæði aksturslag og framkomu. Það fyllti mælinn í byrjun árs þegar ég sá einn tæma ruslið úr bílnum útá götu í miðjum akstri.
Re: Skutlarar!
Sent: Fim 29. Jún 2017 13:27
af Moldvarpan
GuðjónR skrifaði:Ég fór til Danmerkur fyrir 2 vikum, var frá sunnudegi til sunnudags. Leigði Skoda Superb 2017 árgerð með öllu! Flottasti bíll sem ég hef ekið, borgaði 11.500.- isk fyrir allan tímann, ótakmarkaður akstur og tryggingar innifaldar!
Þegar ég kom heim og setti VÍSA kortið í bílastæðamælinn á langtímastæðinu í Keflavík þá þurfti ég að greiða 9.700.- isk fyrir!
Næstum sama gjald og ég greiddi fyrir ótakmörkuð afnot af splunkunýjum Skoda Superb, hvaða rugl er í gangi hérna?
Það er líka mjög algengt að í DK kosti 50 DK (750 isk) að leggja enn dag í stæði, t.d. við Lalandia og Legoland, en ef þú ætlar að nota stæðin oft þá geturðu keypt árskort fyhrir 120 DK (1800 isk).
Hvar fékkstu þessi super kjör fyrir bílaleigubílinn í dk?
Allt sem ég hef skoðað var 4000kr eða meira fyrir hvern dag.
Re: Skutlarar!
Sent: Fim 29. Jún 2017 13:43
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég fór til Danmerkur fyrir 2 vikum, var frá sunnudegi til sunnudags. Leigði Skoda Superb 2017 árgerð með öllu! Flottasti bíll sem ég hef ekið, borgaði 11.500.- isk fyrir allan tímann, ótakmarkaður akstur og tryggingar innifaldar!
Þegar ég kom heim og setti VÍSA kortið í bílastæðamælinn á langtímastæðinu í Keflavík þá þurfti ég að greiða 9.700.- isk fyrir!
Næstum sama gjald og ég greiddi fyrir ótakmörkuð afnot af splunkunýjum Skoda Superb, hvaða rugl er í gangi hérna?
Það er líka mjög algengt að í DK kosti 50 DK (750 isk) að leggja enn dag í stæði, t.d. við Lalandia og Legoland, en ef þú ætlar að nota stæðin oft þá geturðu keypt árskort fyhrir 120 DK (1800 isk).
Hvar fékkstu þessi super kjör fyrir bílaleigubílinn í dk?
Allt sem ég hef skoðað var 4000kr eða meira fyrir hvern dag.
Budget í Billund.
Var með svo mikið af töskum að ég bað um bíl með stærsta farangursrýminu miðað við verðflokkinn sem ég borgaði fyrir.
Fékk þennan flotta Skoda Superb.
Efast um að þú fengir svona flottan bíl í einn dag hérna heima fyrir þennan pening. Bakkmyndavél og alles.
Re: Skutlarar!
Sent: Fim 29. Jún 2017 13:59
af Moldvarpan
Hvaða síðu notaru?
Ég fæ mikið hærri verð upp hjá mér... á budget bílaleiguna.
Re: Skutlarar!
Sent: Fim 29. Jún 2017 14:05
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:Hvaða síðu notaru?
Ég fæ mikið hærri verð upp hjá mér... á budget bílaleiguna.
Ég notaði þessa síðu:
http://www.rentalcars.com/
Re: Skutlarar!
Sent: Fös 30. Jún 2017 17:44
af HalistaX
Eruði samt að tékka hver er quote'aður í DV.is fréttinni eða? Hefði mátt láta mig vita að þeir ætluðu að quote'a mig, en svona er lífið...
Hvað finnst ykkur samt? Er skutlara síðan svona "cash cow" eða er hún meira náunginn að redda náunganum fyrir bensínpening?
Eins og ég sagði í öðru kommenti, þá gætu menn tekið alltaf bara fast 1000-1500kr fyrir farið og í enda dags, eftir 10-15 skutl, þá er nóg fyrir nýjum tank en þörfin fyrir honum lítil sem engin, nema menn séu á 350hp Mustang og eru að þenja hann á Reykjanesbrautinni...
Mér var eitt sinn boðið að borga 2500kr fyrir skutl en ég ákvað, out of the goodness of my heart, því þetta voru svo næs skutlarar sem hægt var að bulla í, að borga þeim 3000kr. Hefðu þau verið ekkert nema leiðindin, þá hefði ég líklega prúttað þau niður í 2000.
Eins og ég sagði, þá sé ég þetta ekki sem einhvern eintómann gróða, þessa grúbbu. Mér finnst þetta meira vera fyrir almennilegheitin og svona.
Vera nice. Það ættu allir að læra að vera nice!
Eða kannski er ég bara svona einfaldur...
Re: Skutlarar!
Sent: Fös 30. Jún 2017 17:52
af HalistaX
jonsig skrifaði:Eruð þið að nota þetta?
Sýnist þetta mest megnis dubious útlendingar? Og undarlegir Íslendingar (útlitslega). Þetta er á barmi þess að vera undarlegra fólk en leigubílstjórar.
Hvað kostar að taka leigubíl á keflavíkurflugvöll frá RVK t.d. sem ég þarf að gera reglulega ?
Það eru eiginlega Fake Facebook aðgangarnir með plat nafni sem maður þarf að passa sig á.
Maður veit aldrei hvernig þeir eru að plana á að naugða manni.
Sorry, ég bara treysti ekki neinum sem getur ekki komið undir nafni. Því ef eitthvað gerist, hvernig skal finna þennann einstakling sem getur svo bara dump'að Facebook reikningnum og fengið sér nýjann með öðru nafni?
Ef þú, kæri lesandi, ert að skutlast undir Fake Facebook reikning, þá mátt þú fokka þér!
Re: Skutlarar!
Sent: Fös 30. Jún 2017 20:51
af Klemmi
HalistaX skrifaði:Eruði samt að tékka hver er quote'aður í DV.is fréttinni eða? Hefði mátt láta mig vita að þeir ætluðu að quote'a mig, en svona er lífið...
Hvaða DV frétt?
Re: Skutlarar!
Sent: Fös 30. Jún 2017 20:58
af HalistaX
Klemmi skrifaði:HalistaX skrifaði:Eruði samt að tékka hver er quote'aður í DV.is fréttinni eða? Hefði mátt láta mig vita að þeir ætluðu að quote'a mig, en svona er lífið...
Hvaða DV frétt?
https://dv.is/frettir/2017/6/26/ulfud-m ... d-i-bakid/Líklega það sem varð til þess að þráðarhöfundur byrjaði þennann þráð.
Re: Skutlarar!
Sent: Lau 01. Júl 2017 05:10
af fallen
HalistaX skrifaði:Er skutlara síðan svona "cash cow" eða er hún meira náunginn að redda náunganum fyrir bensínpening?
Heldur fólk virkilega að þessir skutlarar séu bara að sækja sér bensínpening?
Elska samt þessa umræðu um að leigubílar séu að blóðmjólka fólk.. eins og að leigubílstjórar séu einhver auðstétt sem býr á Arnarnesinu.. þetta er dýrt útaf þessi rekstur er dýr.
Það væri fróðlegt að sjá hversu dýrt skutlið yrði ef þeir þyrftu að borga leigubílatryggingar, staðgreiðsluskatt af tekjunum, tryggingagjald, stöðvargjöld o.þ.h... þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að þessi samanburður stenst enga skoðun, þ.e.a.s. að segja að leigubílar séu ógeðslega dýrir miðað við skutlara.. well, duh! þeir spila ekki eftir sömu reglum.
Re: Skutlarar!
Sent: Lau 01. Júl 2017 05:45
af HalistaX
fallen skrifaði:HalistaX skrifaði:Er skutlara síðan svona "cash cow" eða er hún meira náunginn að redda náunganum fyrir bensínpening?
Heldur fólk virkilega að þessir skutlarar séu bara að sækja sér bensínpening?
Elska samt þessa umræðu um að leigubílar séu að blóðmjólka fólk.. eins og að leigubílstjórar séu einhver auðstétt sem býr á Arnarnesinu.. þetta er dýrt útaf þessi rekstur er dýr.
Það væri fróðlegt að sjá hversu dýrt skutlið yrði ef þeir þyrftu að borga leigubílatryggingar, staðgreiðsluskatt af tekjunum, tryggingagjald, stöðvargjöld o.þ.h... þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að þessi samanburður stenst enga skoðun, þ.e.a.s. að segja að leigubílar séu ógeðslega dýrir miðað við skutlara.. well, duh! þeir spila ekki eftir sömu reglum.
Held að enginn haldi það. Ég var svona að spyrja hvað mönnum finndist um þetta dót allt saman. Hvort Skutlara síðan eigi að vera cash cow eða hvort góðmennskan sem á heima í okkur öllum nái kannski að yfirtaka hana?
Sá nú leigubílstjóra niðrí bæ í fyrradag á glæææænýum Cadilac... Beint úr verksmiðjuni... Þetta er dýrt því þeir þurfa alltaf að vera á svo flottum bílum.