Síða 1 af 1

Mig vantar 2017 G-Sync skjá 144hz+ 27"+ hvað mælir ÞÚ MEÐ

Sent: Þri 06. Jún 2017 14:38
af bteddi
Jæja ég þarf skjá og það er svo mikið í boði en svo búið að flækja allt með svona mikilli samkeppni. En ég vona að þið getið hjálpað mér að finna rétta hrossið.
Ekki pæla í skjákortinu mínu and what not. Ég uppfæri bara í 1080ti ef það leiðir út í overkill fyrir skjákortið mitt. Eins og staðan er þá er vega ekki komið til að countera nvidea.

En þarfir mínar eru eftirfarandi
1.}>
Þarf að vera G-Sync
2.}>
Þarf að vera lágmark 27"
3.}>
Þarf að vera með þægilega og milda burtu. Ég er ljósfælinn og fer að tárast eftir 20mín fyrir framan of bjartan skjá.
4.}>
Kostur að hafa 144hz en ég býst við að flestir G-Sync eru það og meira.
5.}>
Pricerange er allt milli 50-150k en best value og best preformer væri næs að vita af

Endilega komið með ykkar hugmynd af skjá fyrir mínar þarfir. Link og verð í comment skjágúrús [-o<

Re: Mig vantar 2017 G-Sync skjá 144hz+ 27"+ hvað mælir ÞÚ MEÐ

Sent: Þri 06. Jún 2017 18:00
af steinarsaem
Þú ert degi of seinn, þessi var á tilboði til 5 júní, kostaði 108.
https://elko.is/acer-27-wqhd-skjar-144h ... 7xb271hubm

Ég stökk á hann og er í skýjunum.

Re: Mig vantar 2017 G-Sync skjá 144hz+ 27"+ hvað mælir ÞÚ MEÐ

Sent: Þri 06. Jún 2017 18:01
af steinarsaem
En þetta er besti prísinn í dag, gætir farið í Asus ROG PG279Q en hann kostar 175 hjá Tölvulistanum og att.is

Re: Mig vantar 2017 G-Sync skjá 144hz+ 27"+ hvað mælir ÞÚ MEÐ

Sent: Þri 06. Jún 2017 20:16
af Viktor
Erfitt að gera góð kaup í G-Sync miðað við Freesync (AMD) eins og er því miður.

Ef ég væri að versla skjá núna þá myndi ég alvarlega íhuga að skipta yfir í AMD.

En skil líka vel að G-sync skjáir heilli, en þeir eru rosalega dýrir og eflaust hægt að telja úrvalið á fingrum annarar handar hérna heima.

Re: Mig vantar 2017 G-Sync skjá 144hz+ 27"+ hvað mælir ÞÚ MEÐ

Sent: Þri 06. Jún 2017 20:19
af ZoRzEr
Er með PG279Q og gæti ekki verið ánægðari. Ferð aldrei úr 144hz/165hz eftir að prófa það. Næsta skref væri bara 3440x1440 165hz IPS :P

Re: Mig vantar 2017 G-Sync skjá 144hz+ 27"+ hvað mælir ÞÚ MEÐ

Sent: Þri 06. Jún 2017 22:42
af Fletch
Er þessi ekki næsta upgrade ? Asus ROG Swift PG35VQ :twisted:

35-inch UWQHD (3440 x 1440)
NVIDIA G-SYNC HDR
200Hz
Quantum-dot

https://www.asus.com/Monitors/ROG-SWIFT-PG35VQ/