Síða 1 af 1

12% hækkun hjá Gagnaveitunni

Sent: Sun 21. Maí 2017 23:22
af GuðjónR
Hvað er eiginlega málið hjá þeim að hækka gjaldskrá um 12% í verðhjöðnun?
Fer úr 2.680.- í 3.000.- ?
Eru lánin í erlendri mynt og viðskiptavinunum refsað fyrir styrkingu krónunna eða var Míla með hærri gjaldskrá og er verið að jafna?
Eða hvað er málið eiginlega?

p.s. hvert er mánaðargjaldið Mílu á ljósleiðara?

Re: 12% hækkun hjá Gagnaveitunni

Sent: Sun 21. Maí 2017 23:30
af jonsig
Þetta er alltaf svona hjá þessu bálkni, kunna ekki að reka sig án halla.

Re: 12% hækkun hjá Gagnaveitunni

Sent: Sun 21. Maí 2017 23:45
af rbe
já gaman að vita !
sennilega eru þeir að rukka fyrir gig tengingarnar.
ég er hættur að borga gagnaveitunni, voda rukkar fyrir þá borga allt í einum pakka núna til vodafone.
sennilega gert til að fela hækkun á verði fyrir 1000Mb/s ?
sem vodafone var að tala um að ætti að kosta meira ? og var til prufu í marga mánuði og fékkt aldrei svar hvort ætti að kosta sama og venjulegt ljós.
og minni hraði síðustu 3 daga , 733.24Mb/s Upload 937.40Mb/s ,
hefur verið að rokka milli 600-700 .
1414 sögðu mér að endurræsa ljósleiðaraboxið ?
einsog línan verði hraðari við það ?
ekkert að netkortunum í vélunum hér toppa lanið og vel það.

Re: 12% hækkun hjá Gagnaveitunni

Sent: Mán 22. Maí 2017 00:08
af GuðjónR
Well ég er með 500/500 ...

Re: 12% hækkun hjá Gagnaveitunni

Sent: Mán 22. Maí 2017 02:10
af Viktor
Er þetta ekki nokkurnvegin að fylgja verðbólgu?
Svo eru launahækkanir stór biti.

https://www.vr.is/kjaramal/laun/launahaekkanir-yfirlit/

Re: 12% hækkun hjá Gagnaveitunni

Sent: Mán 22. Maí 2017 11:30
af THEBROKENONE
jonsig skrifaði:Þetta er alltaf svona hjá þessu bálkni, kunna ekki að reka sig án halla.


Það er enginn halli ef þú hækkar bara verðið :D