Síða 1 af 1

er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Sun 12. Mar 2017 14:24
af rickyhien
og fá það sent til Íslands? Amazon gerir það ekki...en mig langar svo mikið í það !!! er til önnur leið?Mynd

Re: er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Sun 12. Mar 2017 14:45
af Viggi
Slatti af þessu á ebay sé ég

Re: er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Sun 12. Mar 2017 17:01
af russi
Þú getur nýtt þér https://www.myus.com/ eða shopusa og fjölda annara svona þjónusta. Það var einhver þráður hér um þetta fyrir nokkrum vikum, þar var einhver búin að lista þetta saman og taka til hverjir voru með bestu kjörin, held að ShopUSA muni aldrei vera hagstæðir

Re: er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Sun 12. Mar 2017 21:57
af rattlehead
Ég notaði pantadu.is á sínum tíma þegar ég keypti mitt Fire Tv. Var sáttur með þá.

Re: er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Sun 12. Mar 2017 22:07
af rickyhien
Viggi skrifaði:Slatti af þessu á ebay sé ég


málið með þessum seljendum á ebay er það að þau leggja ofan á þetta "Import charge" sem kostar meira en helmigur af vörunni... :( ...vil ekki borga meira en 70 $ (án tolls) fyrir þetta sko :?

á UK Amazon, kostar þetta ekki nema 50 GBP

Re: er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Sun 12. Mar 2017 22:24
af hagur
Athugaðu að þetta import charge dekkar allan innflutningskostnað sem þú þyrftir annars að borga við komuna til landins.

Re: er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Sun 12. Mar 2017 23:26
af brain
Ég las einhvers staðar að Echo Dot væri með region læsingu

Einhver staðfest eða leiðrétt...

Re: er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Mán 13. Mar 2017 02:14
af rickyhien
hagur skrifaði:Athugaðu að þetta import charge dekkar allan innflutningskostnað sem þú þyrftir annars að borga við komuna til landins.

ég las á netinu að þetta "import charge" gjald er soldið eins og scam þar sem maður þarf svo að borga toll líka eftir á þegar þetta kemur til lands...

brain skrifaði:Ég las einhvers staðar að Echo Dot væri með region læsingu

Einhver staðfest eða leiðrétt...

eftir léttan "gúggl" sýnist mér að það er ekkert svona region lock, kannski bara tungumála læsing..ekki 100% en held að þetta sé nothæft hér

Re: er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Mán 13. Mar 2017 08:42
af Jón Ragnar
Nei það er hægt að nota þetta hérna heima, Nokkrir vinnufélagar með slatta af þessu :)

Re: er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Mán 13. Mar 2017 08:44
af hagur
rickyhien skrifaði:
hagur skrifaði:Athugaðu að þetta import charge dekkar allan innflutningskostnað sem þú þyrftir annars að borga við komuna til landins.

ég las á netinu að þetta "import charge" gjald er soldið eins og scam þar sem maður þarf svo að borga toll líka eftir á þegar þetta kemur til lands...


Hmmmm veit svosem ekki hvernig þetta er á Ebay en Amazon rukkar svona "Import fee deposit" líka og þá fær maður bara vöruna senda heim að dyrum, þarf ekki að borga krónu extra við afhendingu. Ef gjaldið þeirra reynist svo hærra en raunveruleg innflutningsgjöld voru þá fær maður mismuninn endurgreiddan nokkrum vikum seinna.

Re: er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Mið 07. Jún 2017 10:18
af mattiorn
Nú var Mogginn að auglýsa Hljóðmoggann. Væri ekki snilld að geta beðið Alexu um að kveikja á þeim straumi og fá nýjustu fréttir beint í æð?

Re: er hægt að kaupa Echo Dot?

Sent: Mið 07. Jún 2017 11:42
af Viktor
rickyhien skrifaði:
Viggi skrifaði:Slatti af þessu á ebay sé ég


málið með þessum seljendum á ebay er það að þau leggja ofan á þetta "Import charge" sem kostar meira en helmigur af vörunni... :( ...vil ekki borga meira en 70 $ (án tolls) fyrir þetta sko :?

á UK Amazon, kostar þetta ekki nema 50 GBP


Import charge er bara áætlun um það hvað þú þarft að greiða Tollstjóranum fyrir þetta.
Losnar ekki við það að borga skatta hvar sem þú kaupir þetta.