Síða 1 af 1

Rúv í danmörku

Sent: Lau 11. Mar 2017 10:27
af sopur
Goðan daginn,

Eg er staddur i danmörku og væri til i að horfa a ruv i kvöld, eruði með gott ráð til að redda þvi ?

Re: Rúv í danmörku

Sent: Lau 11. Mar 2017 10:43
af Danni V8
Þó að ég viti ekkert um svona streaming mál, þá dettur mér í hug að ef þú þekkir einhvern sem er með Sjónvarp Símans og að borga fyrir appið gætirðu kannski náði í það og fengið að nota aðganginn hjá viðkomandi til að horfa á RÚV. Ég hef náð í appið í tölvunni og símanum og prófað að horfa annarstaðar en heima hjá mér, þar með talið á 4G tengingu frá Nova og það virkaði allavega. En veit ekki hvort það virkar fyrir utan landsteina..

Re: Rúv í danmörku

Sent: Lau 11. Mar 2017 10:57
af reyniraron
Það væri t.d. hægt að koma sér upp VPN á Íslandi eða setja þetta upp: https://github.com/hauxir/istvproxy
Þá þyrfti samt að koma því upp á vél hérna heima. Einhvern tímann var líka einhver straumur sem virkaði í útlöndum en ég er ekki viss um að hann sé til staðar lengur.

Re: Rúv í danmörku

Sent: Lau 11. Mar 2017 14:27
af axyne
Söngvakeppnin ætti að vera í opinni dagskrá svo hægt er að horfa á ruv í gegnum ruv.is vefinn
eða í gegnum kodi eða annan player: http://ruvruverl-live.hls.adaptive.leve ... ream4.m3u8

Re: Rúv í danmörku

Sent: Lau 11. Mar 2017 17:09
af Hizzman
ef þú hefur aðgang sem user á linux server sem er staðsettur á íslandi geturðu notað hann sem proxy til að komast framhjá geoblocking

ef þú kemst í linux sem er á heimili(NAT) er mögulegt að nota reverse tunnel ssh til að þykjast vera á íslandi

Re: Rúv í danmörku

Sent: Lau 11. Mar 2017 17:23
af hfwf
Ef þú vilt horfa, sendu mér skiló, redda þér np :)

Re: Rúv í danmörku

Sent: Lau 11. Mar 2017 18:39
af sopur
hfwf skrifaði:Ef þú vilt horfa, sendu mér skiló, redda þér np :)


Ætla að sja hvort eg geti seð undankeppni eurovision an vandræða, ef ekki, þa hef eg samband :)