Síða 1 af 1

Hitakútar

Sent: Mán 13. Feb 2017 19:19
af isr
Hversu stóran hitakút þarf maður að hafa fyrir sumarhús þar sem gert er ráð fyrir ca 8-10 gestum. Væntanlega færu flestir í sturtu.

Re: Hitakútar

Sent: Þri 14. Feb 2017 12:50
af Urri
ef þú ætlast til þessa að allir fari í sturtu 1 sinni á dag þá er þetta andskoti stór hitakútur.
Minnir hjá systur minni í noregi hafi þau verið með í heild 300lítra og það dugði í 2 sturtur og 1 baðkar.

Re: Hitakútar

Sent: Þri 14. Feb 2017 18:03
af roadwarrior
Myndi halda að þú þyrftir 2x200ltr kúta til að vera safe ef allir ætla í sturtu á sama tíma. Annars er ágætt að hringja í þá sem selja hitakúta og spyrja. Þeir ættu að hafa einhverja hugmynd um þetta. Heima þar sem mamma og pabbi bjuggu er 200ltr kútur og ef það voru fleiri en 3 sem fóru í sturtu í röð þá var vatnið farið að kólna býsna mikið.

Re: Hitakútar

Sent: Þri 14. Feb 2017 18:56
af isr
roadwarrior skrifaði:Myndi halda að þú þyrftir 2x200ltr kúta til að vera safe ef allir ætla í sturtu á sama tíma. Annars er ágætt að hringja í þá sem selja hitakúta og spyrja. Þeir ættu að hafa einhverja hugmynd um þetta. Heima þar sem mamma og pabbi bjuggu er 200ltr kútur og ef það voru fleiri en 3 sem fóru í sturtu í röð þá var vatnið farið að kólna býsna mikið.

Hringdi í dag og athugaði þetta og þeir sögðu eins og þú 400 -500 lítra,svo er nú kannski hæpið að allir fara í sturtu á sama tíma. Tveir 200 l ætti sennilega að duga. Veistu hvað langan tíma það tekur að hita upp einn kút ef það klárast í honum, miðað við 3 kw eliment.

Re: Hitakútar

Sent: Þri 14. Feb 2017 19:44
af Njall_L
isr skrifaði:

Hérna er ágæt reiknivél http://crazycalculations.com/temp_increase/

Re: Hitakútar

Sent: Þri 14. Feb 2017 19:47
af netscream
ég myndi skoða möguleikan á því að nota Gas-vatnshitara, þ.e ef vatnsþrýstingur á meðan sturtu stendur skiptir ekki öllu máli. :)

Re: Hitakútar

Sent: Þri 14. Feb 2017 20:24
af Moldvarpan
netscream skrifaði:ég myndi skoða möguleikan á því að nota Gas-vatnshitara, þ.e ef vatnsþrýstingur á meðan sturtu stendur skiptir ekki öllu máli. :)

http://www.rafhitun.is/index.php?option=com_content&view=article&id=18&Itemid=7

Þarna er allt að 113 lítra sambyggður rafhitari fyrir hitakerfi, eða hitakerfi og neysluvatn.

Veit samt ekkert hvað slíkt kostar :)

Og sá svo þetta líka http://www.rafhitun.is/index.php?option=com_content&view=article&id=55&Itemid=50

Ýmislegt hægt