Síða 1 af 2
Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 14. Des 2016 21:45
af Tonikallinn
Ég gerði þráð hér fyir nokkrum vikum að tala um vandamál sem kom upp aftur. Að tölvan hægði á ser allt í einu út af engu. Bæði leikir og bara yfir höfuð. Sá núna í hvert skipti sem CSGO droppaði í fps að CPU usage fyrir leikinn lækkaði. Er eitthvað í setting eða eitthvað sem ég get breytt til að koma í veg fyrir að CPU usage lækkar?
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 14. Des 2016 21:48
af upg8
Ertu með næga kælingu?
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 14. Des 2016 21:49
af Tonikallinn
upg8 skrifaði:Ertu með næga kælingu?
Hvað er hitinn sem lætur CPU lækka?
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 14. Des 2016 21:54
af Tonikallinn
upg8 skrifaði:Ertu með næga kælingu?
Það er annars bara í 31°
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 14. Des 2016 22:07
af Skari
Ertu ekki bara orðinn of lélegur í cs?
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 14. Des 2016 22:07
af Tonikallinn
Skari skrifaði:Ertu ekki bara orðinn of lélegur í cs?
Heyrðu heyrðu, ekkert svona hér xD
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 14. Des 2016 23:01
af Tonikallinn
Enginn sem veit neitt? Ég er fastur hérna í max 30FPS í CSGO
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 14. Des 2016 23:02
af littli-Jake
Tonikallinn skrifaði:Skari skrifaði:Ertu ekki bara orðinn of lélegur í cs?
Heyrðu heyrðu, ekkert svona hér xD
Nákvæmlega. Orðinn? Ertu að halda þvi fram að hann hafi einhvertíman getað eitthvað?
Annars dettur mér ekkert gágulegt í hug. Kanski að aflgjafinn sé að trolla?
Spurning um að henda i formatt til að útiloka stýrikerfis vesen
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 14. Des 2016 23:04
af Tonikallinn
littli-Jake skrifaði:Tonikallinn skrifaði:Skari skrifaði:Ertu ekki bara orðinn of lélegur í cs?
Heyrðu heyrðu, ekkert svona hér xD
Nákvæmlega. Orðinn? Ertu að halda þvi fram að hann hafi einhvertíman getað eitthvað?
Annars dettur mér ekkert gágulegt í hug. Kanski að aflgjafinn sé að trolla?
Spurning um að henda i formatt til að útiloka stýrikerfis vesen
Ég nefnilega er enginn tölvu ''geníus'' og langar ekkert að fara að borga einhver þúsund í að láta gá hvort það sé vandamálið
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 14. Des 2016 23:18
af Tonikallinn
Prufaði að fara í BIOS og sé að CPU Core voltage er að fara frá um 0.7 og alveg upp 1.2 meðan ég er bara í BIOS. Er það eðlilegt?
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Fim 15. Des 2016 17:56
af ASUStek
prufaðu að skrifa xbox i search hja start takkanum--> Disable "Game DVR" í Xbox appinu / farðu í Xbox appið > svo í config > Game DVR > Disable
gæti mögulega verið vandamálið.
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Fim 15. Des 2016 18:13
af Emarki
Googlaðu " core unparking " stilltu windowsið i high performance mode, spurning um Disable-a allt power saving og c-state i bios. Passa uppá að hafa multicore rendering í csgo og setja mat_quemode 2 í autoexec.cfg, -high og -threads í set launch options, þá skrifarðu fjölda kjarna í threads sem þú ert með t.d. 4 core -threads 4.......
Googlaðu þetta sem ég sagði, ef þú veist ekki hvað það er
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Fim 15. Des 2016 18:19
af Tonikallinn
Eins og ég sagði er þetta ekki bara CSGO, aðrir leikir líka og tölvan sjálf hæg, og þegar ég hugsa útí það var ég að spila Overwatch í bæði skiptin sem þetta gerðist (alveg örugglega tilviljun þó). Fór bara með tölvuna í Heimilistæki og ætla að sjá hvað þeir geta gert. Nú hef ég viku að spila FFXV og engar truflarnir
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Fim 15. Des 2016 21:04
af Zorba
ASUStek skrifaði:prufaðu að skrifa xbox i search hja start takkanum--> Disable "Game DVR" í Xbox appinu / farðu í Xbox appið > svo í config > Game DVR > Disable
gæti mögulega verið vandamálið.
Þetta er líklegt. Getur líka slökkt á þessu í registry
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Fös 16. Des 2016 10:03
af freeky
Ef þú ert með Realtek hljóðkort. Prófaðu að sækja nýjasta driver.
http://www.realtek.com.tw/downloads/Ótrúlegt hvað lélegur driver á hljóðkorti getur truflað mikið.
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 21. Des 2016 18:34
af Tonikallinn
Jæja, nú þarf ég að vekja þennan aftur. Kom úr viðgerð, virkar vel í nokkra tíma, þar til ég byrja að spila Overwatch..... tek eftir að CPU usage er of látt eftir að ég spila Overwatch og það virðist vera það sem er að fucka upp tölvunni. Hefur einhver heyrt um að CPU byrjar að vinna of lítið ?
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 21. Des 2016 18:41
af Tonikallinn
Prufaði að OC CPU með msi Gaming appinu, virðist virka í augnablikinu
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 21. Des 2016 22:21
af Tonikallinn
Byrjað að gerast aftur.....:/ .Einhverjar hugmyndir?
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 21. Des 2016 22:35
af upg8
Gerðu allt handvirkt í UEFI/BIOS... Boðar sjaldan gott að nota eitthvað yfirklukkunar app
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Mið 21. Des 2016 22:45
af Tonikallinn
upg8 skrifaði:Gerðu allt handvirkt í UEFI/BIOS... Boðar sjaldan gott að nota eitthvað yfirklukkunar app
Það er ekki vandamálið hér..... reyndi að nota það til að gá hvort að það myndi laga vandamálið mitt. Tölvan hægir á sér og er fast þannig í langa tíma. Tók eftir að þegar að CSGO droppar frames (stundum fer þetta og kemur rapidly) að CPU Usage lækkaði, svo að ég helf að CPU sé gallað hjá mér,. Eða allavegana eitthvað að halda því aftur. Fór með hana í viðgerð til Heimilistæki og þeir sögðu að þeir fundu ekkert að tölvunni og eyddu progrömmum sem gætu hægt á tölvunni. Var fínt þangað til ég spilaði Overwatch sem að ég HELD að er mjög CPU intensive leikur. Ætti ekkert að vera með hita að gera, er í kringum 30 gráður. Og tölvan er hæg í langan tíma, ef þetta lagast, svo að ég er viss að þetta er ekki CPU að lækka performance út af hita
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Fim 22. Des 2016 00:30
af Tonikallinn
Þetta er það sem ég er að tala um, þetta er hvernig CPU er meðan Fallout 4 er í gangi. Eitthvað sem lætur CPU clock speeds (held það sé kallað það) halda sig fyrir neðan eitthvað vist level
- Screenshot (24).png (569.63 KiB) Skoðað 3882 sinnum
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Fim 22. Des 2016 11:03
af Haflidi85
Farðu í Bios og hækkaðu og festu klukkuhraðan í 4.2 sem er max boost á þessum örgjörva án þess að klukka hann (ef ég man rétt) og slökktu á öllu c1-c3 power state og öllu sem lætur örgjörvan skoppa til að spara rafmagn. Ef þú gerir þetta rétt þá ætti örgjörvinn að halda sér á 4.2ghz og ekki droppa neitt niður. Með þessu ættirðu allavega að geta útilokað örgjörvan.
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Fim 22. Des 2016 11:57
af Tonikallinn
Haflidi85 skrifaði:Farðu í Bios og hækkaðu og festu klukkuhraðan í 4.2 sem er max boost á þessum örgjörva án þess að klukka hann (ef ég man rétt) og slökktu á öllu c1-c3 power state og öllu sem lætur örgjörvan skoppa til að spara rafmagn. Ef þú gerir þetta rétt þá ætti örgjörvinn að halda sér á 4.2ghz og ekki droppa neitt niður. Með þessu ættirðu allavega að geta útilokað örgjörvan.
Ég stillti frá AUTO í 4.00. Er ekki alveg viss hvað þú meinar með ''slökktu á öllu c1-c3 power state''. Held að MB mitt sé með önnur term fyrir .etta
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Fim 22. Des 2016 12:02
af Tonikallinn
Haflidi85 skrifaði:Farðu í Bios og hækkaðu og festu klukkuhraðan í 4.2 sem er max boost á þessum örgjörva án þess að klukka hann (ef ég man rétt) og slökktu á öllu c1-c3 power state og öllu sem lætur örgjörvan skoppa til að spara rafmagn. Ef þú gerir þetta rétt þá ætti örgjörvinn að halda sér á 4.2ghz og ekki droppa neitt niður. Með þessu ættirðu allavega að geta útilokað örgjörvan.
Þetta er hvernig þetta lítur út í speccy meðan CSGO er í gangi í 50FPS
- Screenshot (2).png (75.5 KiB) Skoðað 3840 sinnum
Re: Tölva að hæga á sér
Sent: Fim 22. Des 2016 12:43
af Haflidi85
Augljóslega er speedstep/power safe í gangi, þessvegna er ég að biðja þig um að slökkva á því í bios, ef þú festir klukkuhraðann á 4 eða 4.2 þá mun alltaf standa á öllum kjörnum 4 eða 4.2 í speccy, hvort sem þú ert með mikla eða littla vinnslu. Lenti sjálfur í smá fps droppi á gamalli vél í cs go áður en ég festi klukkuhraðann á öllum kjörnum. Ég nenni ekki að leiða þig í gegnum hvernig þetta er gert googlaðu móðurborðið og overclock á því og kynntu þér þetta, eða fáðu einhvern sem er vanur að overclocka til að gera þetta fyrir þig.
Í stuttu máli, festu 4.2 klukkuhraðan á öllum kjörnum og disable aðu C-state og Eist, minnir að það séu einu power safe features sem þarf að disablea.
Btw, það er líka synd að setja þennan örgjörva ekki í 4.6+ oc, minn I7 6700k lækkaði meirisegja í hita við að festa voltin og setja í 4.6 en hækkar reyndar all svakalega við alla frekari hækkun á voltum