Síða 1 af 2

Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Þri 15. Nóv 2016 19:13
af PikNik
https://o52f7ohhvspayzkg.onion.to/

Live hljóðdump úr Tetra kerfinu á íslandi sem á að vera dulkóðað en er ekki dulkóðað. Trassaskapur hjá ríkinu. Þetta hefur verið opið fyrir almenning með réttar græjur í mörg ár og það er ekki enn búið að laga þetta.

Edit: ATH, ég rakst á þetta sjálfur á deildu.net spjallborðinu. Búið er að eyða upprunalega póstinum. Á engan þátt í hlerunini.

Hvað er Tetra? Jú, Tetra er stafrænt talstöðvarkerfi með símamöguleika sem er sérsniðið að þörfum viðbragðsaðila þar sem hraði og öryggi skiptir máli.
Tetra sem talstöðvarkerfi er mjög öflugt miðstýrt hópfjarskiptakerfi sem stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök eða einstaklingar geta nýtt sér sem stjórntæki fyrir hröð og örugg samskipti milli einstaklinga og hópa ásamt flotastjórnun eða eftriliti með hjálp ferilvöktunar.
Hver Tetra stöð hefur sitt símanúmer sem hægt er að hringja úr og í innan Tetra kerfisins og einnig yfir í önnur símkerfi innanlands.
Tetra stöðvar má einnig nota utan þjónustusvæðis kerfisins í beinu sambandi (DMO) við aðrar Tetra stöðvar með sömu talhópa.

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Þri 15. Nóv 2016 19:20
af jonsig
Ef maður hlustaði á þetta þá hefði maður sjálfsagt EKKERT betra að gera. En sem betur fer sér almenningur ekki staðsetningar og annað sem löggan reiðir sig á.

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Þri 15. Nóv 2016 23:54
af Hizzman
Dulkóðunarkerfið kostar sennilega eitthvað aukalega, þetta er hugsanlega bara dæmigerð íslensk forgangsröðun, látum bara nokkur börn falla í brunninn og notum peningin frekar í eitthvað skemmtilegt. Það er hvort sem er engin ábyrgur fyrir neinu...

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 00:58
af tonycool9
Eftir að hafa hlustað á þetta aðeins finnst mér þetta hljóma rosalega mikið eins og Securitas, þetta eru a.m.k nákvæmlega sömu köll og voru þegar ég vann þar. og bílarnir: 8-1,8-2,8-3 osfrv eru securitas verðir. svo er mikið af þessu "innbrotsboð" En þegar boð fer í gang eru samskiptin einmitt svona

Af öllu að dæma er þetta ekki lögreglan heldur Securitas

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 01:04
af kjartanbj
Tók stikk prufur , þetta er langmest Securitas en líka lögreglan, ferðaþjónusta fatlaðra , strætó , sjúkrabílar og fleiri notendur tetra, en lang mest Securitas

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 06:59
af PikNik
Þetta er lögreglan líka.

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 11:14
af Gislinn

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 11:24
af GuðjónR
Gislinn skrifaði:Frétt á mbl.is um þetta.

Og þeir gleyma að geta heimilda.

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 11:26
af CendenZ
Þetta er kannski ástæðan fyrir því að fjölmiðlar eru alltaf allir mættir á vettvang slysa/atburða á no time =D>

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 11:43
af urban
CendenZ skrifaði:Þetta er kannski ástæðan fyrir því að fjölmiðlar eru alltaf allir mættir á vettvang slysa/atburða á no time =D>


Það á að þjálfa alla blaðamenn og ljósmyndara í fyrstu hjálp, þeir eru oftar en ekki á undan viðbragðsaðilum á staðinn.

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 16:33
af jonsig
Sá sem er að útvarpa þessu hlýtur að hafa stolið talstöð, það eru bara birgjar með sérhæfða starfsmenn sem hafa leyfi frá póst & fjar og kóða frá framleiðanda til að stilla svona talstöðvar.

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 17:00
af CendenZ
jonsig skrifaði:Sá sem er að útvarpa þessu hlýtur að hafa stolið talstöð, það eru bara birgjar með sérhæfða starfsmenn sem hafa leyfi frá póst & fjar og kóða frá framleiðanda til að stilla svona talstöðvar.


nei, hvernig færðu það út ? Þú þarft bara dvb-t tuner eða dongle með réttu chippi, RTL2832U
Ca 20$

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 17:03
af tdog
Mer heyrist að þetta sé bara samskipti á Gula bandinu.

Edit: þetta heyrast mér vera fjarskipti af FMR Uppkall rásinni sem og vinnurásum Strætó, Securitas og Faxaflóahafna.

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 17:57
af Hizzman
mbl.is: „Átti að vera ör­ugg­ur fjar­skipta­máti“

LOL - og allir koma af fjöllum, auðvitað...

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 18:45
af jonsig
CendenZ skrifaði:
jonsig skrifaði:Sá sem er að útvarpa þessu hlýtur að hafa stolið talstöð, það eru bara birgjar með sérhæfða starfsmenn sem hafa leyfi frá póst & fjar og kóða frá framleiðanda til að stilla svona talstöðvar.


nei, hvernig færðu það út ? Þú þarft bara dvb-t tuner eða dongle með réttu chippi, RTL2832U
Ca 20$


Þú ert svo mikill siggi hakkari ,það á ekki við um alla.

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 19:53
af Stuffz
hmm er þetta ekki það sem er kallað police-scanner í bíómyndunum?

annars margir hlutir sem eru ekki sérstaklega dulkóðaðir https://www.wired.com/2012/10/hack-proof-drone/

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 21:05
af Hizzman
Einn mikilvægasti eignleiki TETRA er möguleikinn á dulkóðun og öryggi gegn hlerun. Þessi eiginleiki er hluti af grunneiginleikum kerfisins og hefur tæknilega alltaf verið til staðar. Nú kemur í ljós að þessi eiginleiki hefur ekki verið virkjaður á Íslandi, af einhverri ástæðu. Við höfum ekki hugmynd um hversu lengi 'einhverjir' eru búnir að vera að hlusta á lögreglufjarskipti sem notandinn hefur talið vera örugg.

Þetta er alveg þokkalegur skandall!

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Mið 16. Nóv 2016 21:25
af Stuffz
Hizzman skrifaði:Einn mikilvægasti eignleiki TETRA er möguleikinn á dulkóðun og öryggi gegn hlerun. Þessi eiginleiki er hluti af grunneiginleikum kerfisins og hefur tæknilega alltaf verið til staðar. Nú kemur í ljós að þessi eiginleiki hefur ekki verið virkjaður á Íslandi, af einhverri ástæðu. Við höfum ekki hugmynd um hversu lengi 'einhverjir' eru búnir að vera að hlusta á lögreglufjarskipti sem notandinn hefur talið vera örugg.

Þetta er alveg þokkalegur skandall!


enginn skandall

bara meðvituð ákvörðun

að spara 250 milljónir

þar til nýverið..


"..Þór­hall­ur Ólafs­son, fram­kvæmda­stjóri Neyðarlín­unn­ar, seg­ir í sam­tali við mbl.is að vitað hafi verið af þess­um veik­leika um nokk­urn tíma og því hafi verið farið í heild­ar upp­færslu á öllu Tetra-kerf­inu hér á landi. Það var um 250 millj­óna fjár­fest­ing að sögn Þór­halls og er búið að heim­sækja alla senda á land­inu til að upp­færa þá. Seg­ir hann að frá og með deg­in­um í dag verði öll sam­skipti lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu dul­kóðuð og í fram­hald­inu skoðað hvað gert verði við önn­ur sam­skipti í kerf­inu."
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/ ... ar_hlerud/

en já það sökkar fyrir þá sem eru ekki hafðir með í lúppunni :roll:

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Fim 17. Nóv 2016 00:20
af Hizzman
þetta er 10 eða 15 (?) ára kerfi. Eðlilegt að það þurfi að gera stóra uppfærslu, eða er bara verið að setja dulkóðun í kefið? Getur verið að dulkóðun ein kosti 250m?

Það er fróðlegt að vita afhverju kerfið var ekki dulkóðað í byrjun. Hvað hefði það kostað? Einnig, afhverju taldi lögreglan að kerfið væri öruggt?

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Fim 17. Nóv 2016 01:04
af tdog
Tetrakerfið er gamalt já, en því er haldið við. Tetra hefur fleiri kosti en galla. Á þessu ári hafa staðið yfir gífurlegar breytingar á Tetrakerfinu, bæði sem snúa að notendum og tækninni sjálfri.

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Fim 17. Nóv 2016 09:04
af CendenZ
jonsig skrifaði:
CendenZ skrifaði:
jonsig skrifaði:Sá sem er að útvarpa þessu hlýtur að hafa stolið talstöð, það eru bara birgjar með sérhæfða starfsmenn sem hafa leyfi frá póst & fjar og kóða frá framleiðanda til að stilla svona talstöðvar.


nei, hvernig færðu það út ? Þú þarft bara dvb-t tuner eða dongle með réttu chippi, RTL2832U
Ca 20$


Þú ert svo mikill siggi hakkari ,það á ekki við um alla.



Óþarfi að svara svona, þú ert að segja að eina leiðin til að hlusta á tetra er að stela. Á það við um alla ?
Tengdó á tetra talstöðvar, keyptar löglega.
Mér þykir líklegra og ódýrara að einhver hafi keypt sér tuner og hlusti bara eins og á útvarp... mjög auðveldar leiðbeiningar má finna með einföldu gúgli.
Ég hafði aðeins rangt fyrir mér, það er hægt að fá USB dvb-t tuner með þessu chippi á 13 $ á amazon.

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Fim 17. Nóv 2016 13:35
af Hizzman
tdog skrifaði:Tetrakerfið er gamalt já, en því er haldið við. Tetra hefur fleiri kosti en galla. Á þessu ári hafa staðið yfir gífurlegar breytingar á Tetrakerfinu, bæði sem snúa að notendum og tækninni sjálfri.


Tetra kerfið er mjög gott, og hefur marga kosti. Einn stærsti kosturinn er möguleikinn á dulkóðuðum samskiptum. Aðilar sem tala um viðkvæm mál (lögregla td) geta treyst því að óviðkomandi geti ekki heyrt samskipti, ....nema á Íslandi apparently... :face

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Fim 17. Nóv 2016 19:08
af urban
Hizzman skrifaði:
tdog skrifaði:Tetrakerfið er gamalt já, en því er haldið við. Tetra hefur fleiri kosti en galla. Á þessu ári hafa staðið yfir gífurlegar breytingar á Tetrakerfinu, bæði sem snúa að notendum og tækninni sjálfri.


Tetra kerfið er mjög gott, og hefur marga kosti. Einn stærsti kosturinn er möguleikinn á dulkóðuðum samskiptum. Aðilar sem tala um viðkvæm mál (lögregla td) geta treyst því að óviðkomandi geti ekki heyrt samskipti, ....nema á Íslandi apparently... :face



Alveg merkilegt að löggan geti ekki verið löngu búin að dulkóða allt sitt.
Lenda reglulega í smyglurum sem að einmitt eru með allt sitt dulkóðað vegna þess að þeir vilja ekki að það sé hlustað á sig.

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Fim 17. Nóv 2016 19:28
af Hizzman
Tetra staðallinn var frá byrjun gerður til að styðja dulkóðun, það var m.a.s. ein aðalástæðan fyrir að hann var búinn til. Til að lögregla og svipaðir aðilar geti haft örugg fjarskipti.

10 ár án þess að nota mikilvægasta eiginleikann.....

Þetta er djók!!

Re: Tetra kerfi lögreglunar.

Sent: Fim 17. Nóv 2016 20:34
af Stuffz
Hizzman skrifaði:Tetra staðallinn var frá byrjun gerður til að styðja dulkóðun, það var m.a.s. ein aðalástæðan fyrir að hann var búinn til. Til að lögregla og svipaðir aðilar geti haft örugg fjarskipti.

10 ár án þess að nota mikilvægasta eiginleikann.....

Þetta er djók!!



Já svona er þetta þegar það er lítill skilningur á að fjármunum sé vel varið í hluti eins og dulkóðun

svo eru kannski aðrir möguleikar, TOR er dulkóðað kerfi sem er vinsæl því það er frítt, er notað m.a. af Sendiráðum og Fyrirtækjum, og var upphaflega smíðað af BNA Sjóhernum.