Síða 1 af 1

Íslenskir DNS þjónar

Sent: Sun 23. Okt 2016 12:16
af biggitoker
Hæ! Ég bý erlendis og hef verið að reyna að finna íslenska DNS þjóna sem ég get tengst, because reasons.

Ég er búinn að prófa það sem Síminn og Vodafone gefa upp, en það virkar því miður ekki. Mín besta ágiskun er að þeir leyfi bara annaðhvort sínar kúnna IP tölur eða eingöngu íslenskar.

Eru einhverjir snillingar hér sem vita um fleiri DNS þjóna sem ég get prófa?

Re: Íslenskir DNS þjónar

Sent: Sun 23. Okt 2016 12:46
af emmi
Flestir ef ekki allir þjónustuaðilar leyfa einungis sínum IP tölum að tala við DNS þjónana sína.

Best að nota Google dns t.d. 8.8.8.8 & 8.8.4.4

Re: Íslenskir DNS þjónar

Sent: Sun 23. Okt 2016 13:33
af biggitoker
emmi skrifaði:Best að nota Google dns t.d. 8.8.8.8 & 8.8.4.4


Vandamálið er ekki að tengjast netinu, mig langar bara að horfa á RÚV, Sjónvarp 365 og svona.

Re: Íslenskir DNS þjónar

Sent: Sun 23. Okt 2016 13:43
af emmi
Að nota Íslenskan dns mun ekki leysa það vandamál, tölvan þín þarf að vera með Íslenska IP tölu sem að komast í þessar veitur. Þú gætir leyst það með því að finna einhvern sem býður uppá VPN á Íslandi. Hidemyass.com er með server hér t.d.

Re: Íslenskir DNS þjónar

Sent: Sun 23. Okt 2016 14:18
af Baldurmar
emmi er þarna með lausnina, DNS er bara uppfletti tafla.
Þú sendir beiðni á www.eitthvað.is og DNS serverinn svarar bara með IP tölunni sem að þú átt að tala við.
Þarft að fara í gegnum VPN. Þannig fær serverinn sem að þú vilt sækja efni frá (t.d ruv.is) beiðnina frá IP tölu frá því landi sem að VPN-inn er, óháð því hvar þín IP tala er skráð.