Síða 1 af 1

Net yfir rafmagn

Sent: Fim 13. Okt 2016 18:12
af zypx
http://tl.is/product/zyxel-pla-5256-600 ... -twin-pack

Þarf þetta að vera á sömu grein? eða skiptir það engu máli?

Re: Net yfir rafmagn

Sent: Fim 13. Okt 2016 18:27
af zypx
Rafmagnsgrein

Re: Net yfir rafmagn

Sent: Fim 13. Okt 2016 18:40
af agust1337
Ef þú ætlar að spila leiki myndi ég EKKI mæla með þessu nema ef allt annað bregst.
(Ég veit ekki hvort það skiptir máli að nota sömu rafmagnsgrein)

Re: Net yfir rafmagn

Sent: Fim 13. Okt 2016 18:46
af EOS
Nei skiptir ekki máli.

Re: Net yfir rafmagn

Sent: Fim 13. Okt 2016 20:01
af kazgalor
sammála agust1337. Vann hjá vodafone sem tæknimaður í nokkur ár og get sagt af eigin reynslu að þetta er ekki gott. Mæli virkilega með því að leggja kapal ef það er möguleiki

Re: Net yfir rafmagn

Sent: Fim 13. Okt 2016 20:15
af jonsig
Kannski eru bara kjör aðstæður heima hjá mér, en ég er með ódýrasta Netgear svona unit. Og ég er að sjá minna ping en með Archer C2 AC týpu.
<1ms vs 2ms+ ef ég nota speedtest.

Ég átti svona annað tæki fyrir nokkrum árum og það var alger hörmung, þessi tækni hefur þróast helling á seinustu árum og það er skiljanlegt að það sitji í mönnum að þetta hafi reynst þeim illa.

Það eru ákveðnir hlutir sem þarf að forðast eins og tengja ekki svona unit í fjöltengi ofl. þarf að lesa leiðbeiningar áður en maður notar svona búnað til að fá sem mest úr honum.

Til að leiðrétta smá mýtu þá getur merkið frá GÓÐUM svona búnaði hoppað milli fasa. Þetta kemur greinum ekkert við. Þó viss öryggi geti örugglega virkað eins og ferrite bead á fasamótunina :( eina leiðin til að eyða þessum merkjasendingum er með ratio1:1 spenni eða hrikalegu suði.

Eins og ég segi, þetta situr í mönnum sem er skiljanlegt en það eru ágætis líkur að þetta komi flott út hjá þér með nýjum svona búnaði.

Re: Net yfir rafmagn

Sent: Fim 13. Okt 2016 20:20
af jonsig
kazgalor skrifaði:sammála agust1337. Vann hjá vodafone sem tæknimaður í nokkur ár og get sagt af eigin reynslu að þetta er ekki gott. Mæli virkilega með því að leggja kapal ef það er möguleiki


því miður er tæknimaður orðið frekar breitt hugtak og útþynnt í dag því miður og segir því lítið. Hvað gerðiru hjá vodafone?

Re: Net yfir rafmagn

Sent: Fim 13. Okt 2016 21:00
af kazgalor
jonsig skrifaði:
kazgalor skrifaði:sammála agust1337. Vann hjá vodafone sem tæknimaður í nokkur ár og get sagt af eigin reynslu að þetta er ekki gott. Mæli virkilega með því að leggja kapal ef það er möguleiki


því miður er tæknimaður orðið frekar breitt hugtak og útþynnt í dag því miður og segir því lítið. Hvað gerðiru hjá vodafone?



Var að vinna í vettvangsþjónustu að setja upp tengingar á heimilum og í fyrirtækjum

Re: Net yfir rafmagn

Sent: Fim 13. Okt 2016 21:06
af Dúlli
@zypx ef þú kemst í það að koma netsnúrur yfir mæli frekar með því.

Var í sömu vandræðum en gafst upp á þessum græjum. Prufaði 4 mismunandi tegundir. Var stöðugt að detta út og missa samband.

Ef þú ætlar að prufa verslaðu þá af búðum sem leyfa þér að skila ef þetta gengur ekki Og ef þetta gengur væri snild að fá sögu um það. Þar sem eins og @jonsig sagði, þetta er stöðugt að þróast.