Síða 1 af 1

Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 17:58
af Farcry
getFile.php.jpeg
getFile.php.jpeg (61.89 KiB) Skoðað 1418 sinnum


Gleymdi linknum
https://2now.is/stod-2-marathon

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 18:04
af Urri
hmm fyrir mitt leyti...

1 getur ekki allt verið íslenskt.
2 skiptir mig engu máli
3 skiptir mig engu máli
4 er ekki hbo keppinautur netflix erlendis ? en er þá netflix stuffið á stöð 2 maraþoninu ?
5 Feginn að það sé ekki :)
6 skiptir mig engu máli
7 erum við ekki að borga þetta af tölvum og öllu því nú þegar !!!
8 true

hinsvegar veit ég nú ekkert hvernig þetta virkar hjá þeim hjá stöð 2 en er hægt að nota þeirra bara á tölvunni og símanum eins og netflix ?

var svo að skoða verðið .... lægsta verðið sem ég fann var 9900 kr á mánuði sem er dýrt !

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 18:05
af Dúlli
Bwahahahaha, finnst þetta hálfgerður fail.

Ömurlegt Að hafa texta
Fréttir er hægt að lesa á netinu
Ótakmarkað niðurhal hjá mörgum
Fuck stef

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 18:26
af halldorjonz
Dúlli skrifaði:Bwahahahaha, finnst þetta hálfgerður fail.

Ömurlegt Að hafa texta
Fréttir er hægt að lesa á netinu
Ótakmarkað niðurhal hjá mörgum
Fuck stef


Velur hvort þú hefur textan eða ekki, möguleikinn er góður.
Færð ekki heiluvideo fréttirnar þar og þarft að lesa þær
Ekki hjá öllum
og þú veist greinilega ekkert um skatta - en það er dótið sem borgar undir mikið af alskonar sem þú nýtur góðs af. (ekkert verið að tala um stef þarna)


Get ekki séð annað en að þetta sé nokkuð fínn díll, en finnst verðið aðeins of hátt, 2300 kr væri gott
- svo væri ég til í að fá þetta + efnið sem er á netflix og borga 3500 :D það myndu allir stökkva á það

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 18:29
af worghal
"greiða stef gjöld" what? þetta á aðeins við um tónlist.

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 19:03
af Dúlli
halldorjonz skrifaði:
Dúlli skrifaði:Bwahahahaha, finnst þetta hálfgerður fail.

Ömurlegt Að hafa texta
Fréttir er hægt að lesa á netinu
Ótakmarkað niðurhal hjá mörgum
Fuck stef


Velur hvort þú hefur textan eða ekki, möguleikinn er góður.
Færð ekki heiluvideo fréttirnar þar og þarft að lesa þær
Ekki hjá öllum
og þú veist greinilega ekkert um skatta - en það er dótið sem borgar undir mikið af alskonar sem þú nýtur góðs af. (ekkert verið að tala um stef þarna)


Get ekki séð annað en að þetta sé nokkuð fínn díll, en finnst verðið aðeins of hátt, 2300 kr væri gott
- svo væri ég til í að fá þetta + efnið sem er á netflix og borga 3500 :D það myndu allir stökkva á það


Nú veit é ekki alveg hvernig þú last út úr þessu.

Jújú, fínt að hafa textan til staðar en vandamálið er að þetta er alltaf hardcoded hjá stöð 2 og ekki hægt að fjarlægja. Allavega hef ekki en fundið út úr því hjá foreldrum mínum.

Ef þú fer inná rúv.is getur þú fengið fréttirnar beint í síman frítt svo er eru fréttir stöðvar 2 opin dagskrá síðast þegar ég vissi og ég trúi varla að þau séu með tímaflakk á fréttum. En gæti vel verið.

Hvar talaði ég um skatta ? ég tala um STEF. Það eru nú ekki skattar. Ekkert verið að tala um STEF ? hvað með næst seinasta lið ?

MÉR finnst, sem er mín skoðun að þetta er kjánaleg samkeppni. Meira fráhindrandi heldur en að bjóða þér.

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 19:19
af chaplin
Þetta er voðalega one-sided hjá 365. Vantar inn í þetta verð, Now er tæplega 3x dýrara, uppsagnarfrest eru 3 mánuðir, aðgangur að Netflix efni (Narcos, House of Cards, etc..), fjöldi kvikmynda/þátta í boði í heildina, 4K, berjast gegn samkeppni, os.frv.

Er ekki annars ástæðan f. því að greiddur skattur á Netflix er vegna baráttu 365 og Smaís gegn netstreymisþjónustum og því ekki komnar neinar almennilegar reglum um þær?

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 19:27
af Farcry
Væri gaman ef Íslenska Netflix væri jafn stórt og usa eða uk netflix , en nei litlu kóngarnir á Íslandi passa að verja sitt.

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 19:34
af Urri
Farcry skrifaði:Væri gaman ef Íslenska Netflix væri jafn stórt og usa eða uk netflix , en nei litlu kóngarnir á Íslandi passa að verja sitt.


Það er fight sem þeir eiga bara eftir að tapa.... Netflix er komið til að vera nema eithvað MIKKLU betra kemur á markaðinn. Svo er hægt að kaupa HBO og netflix og borga ca samasamt minna og fyrir þetta stöð 2 maraþon :) því þú þarft að vera áskrifandi af stöð 2 líka ](*,) ](*,) ](*,)

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 19:39
af chaplin
Urri skrifaði: því þú þarft að vera áskrifandi af stöð 2 líka ](*,) ](*,) ](*,)


Ertu viss? Því ef svo er, getur maður keypt stream þjónustu hjá öllum hinum (Amazon, HBO, Hulu, Sling, Netflix) og samt borgað minna.

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 20:27
af Urri
chaplin skrifaði:
Urri skrifaði: því þú þarft að vera áskrifandi af stöð 2 líka ](*,) ](*,) ](*,)


Ertu viss? Því ef svo er, getur maður keypt stream þjónustu hjá öllum hinum (Amazon, HBO, Hulu, Sling, Netflix) og samt borgað minna.


Heyrðu ég las þetta víst vitlaust á síðunni hjá þeim og biðst velvirðingar á því. það er víst hægt að fá þetta hjá þeim á 2990 kr stakt.

Ég er að borga 1383 ISK fyrir netflix.
HBO kostar 15 usd sem er 1713 ISK
Samtals er þetta 3096 ISK sem ég væri glaður að borga fyrir bæði... en 2990kr fyrir BARA HBO og þetta stöð 2 auka rusl eins og fréttir og svoleiðis... nei takk.

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 20:44
af svanur08
Netflix all the way!

Re: Stöð2 að keppa við Netflix ?

Sent: Fim 13. Okt 2016 20:56
af Heliowin
Þetta á að fylgja frítt með Skemmti-, Stóra- og Risapakkanum og á líka að vera aðgengilegt með myndlyklum símans en ég sé þetta samt hvergi í sjónvarpinu.

Ég er með Netflix sem ég horfi á í sjónvarpinu og hélt kannski að Maraþon Now væri þar líka.

Annars kíkt ég á vefinn og sá að þarna voru heimildaþættir af sama toga og eru í boði á Netflix á Íslandi og sem er alveg ágætt.