Síða 1 af 1
Uppstoppaður Haförn
Sent: Fim 15. Sep 2016 11:18
af Kosmor
Er ekki alveg viss hvar ég á að setja þetta.
Ég er mikill áhugamaður um íslenska fugla og Haförninn lengi verið í miklu uppáhaldi.
Nú eru ströng lög varðandi þessa friðuðu ránfugla þar sem er sala og kaup eru stranglega bönnuð og allir fuglar eru skráðir sem fara í gegnum Umhverfisstofu.
Er einhver lögleg leið til að eignast uppstofnaðann ránfugl í dag?
Ég hef engann áhuga á að versla við villimenn sem skjóta þessa fugla og stoppa þá upp.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Fös 16. Sep 2016 10:49
af linenoise
Neibb. Væntanlega til að minnka hvatann til að fólk eignist uppstoppaða fugla "löglega".
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Fös 16. Sep 2016 10:56
af linenoise
Faktískt séð gætirðu fengið leyfi hjá Náttúrfræðistofnun til að stoppa upp svona fugl ef þú finnur hann dauðann. Sjá fimmtu grein
http://www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/252-1996
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Fös 16. Sep 2016 16:34
af einarn
Er ekki eina leiðinn að finna gamlann fugl sem var stoppaður upp back in the day áður enn þetta komst í lög. Afaforeldrar mínir áttu gamlan fálka sem var 60+ ára og hann var tæknilega séð löglegur vegna þess hversu gamall hann var.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 20. Sep 2016 06:50
af Kosmor
Já ég vissi af þessu, en af því sem ég hef heyrt af fólki sem hafa fundið hræ eða fugl sem deyr eftir að hafa verið fundinn. Þá er Náttúrufræðistofnun treg til að láta sjaldgæfa fugla af hendi.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 20. Sep 2016 06:52
af Kosmor
einarn skrifaði:Er ekki eina leiðinn að finna gamlann fugl sem var stoppaður upp back in the day áður enn þetta komst í lög. Afaforeldrar mínir áttu gamlan fálka sem var 60+ ára og hann var tæknilega séð löglegur vegna þess hversu gamall hann var.
Nei, Fuglar sem voru seldir eða fengnir fyrir lögsetningu eru löglegir í höndum núverandi eiganda, þeir meiga ekki selja eða gefa fuglana.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 20. Sep 2016 07:09
af HalistaX
Kosmor skrifaði:Er ekki alveg viss hvar ég á að setja þetta.
Ég er mikill áhugamaður um íslenska fugla og Haförninn lengi verið í miklu uppáhaldi.
Nú eru ströng lög varðandi þessa friðuðu ránfugla þar sem er sala og kaup eru stranglega bönnuð og allir fuglar eru skráðir sem fara í gegnum Umhverfisstofu.
Er einhver lögleg leið til að eignast uppstofnaðann ránfugl í dag?
Ég hef engann áhuga á að versla við villimenn sem skjóta þessa fugla og stoppa þá upp.
Andskotinn, ég sem fór á stúfana og náði í hnakkadrambið á einum, bara fyrir þig!
Eggin voru góð tho, ég mun alltaf eiga það...
Hefuru samt kíkt í Kolaportið? Það er mjög líklega eitthvað að finna þar...
Eða hafa samband við eitthvað safn.
Ég veit ekki alveg svarið við þessari spurningu... Have you tried turning it off then on again?
Gera auglýsingu á Bland.is?
En sama hvað, ef þú actually finnur eitt stk á sölu einhvers staðar, þá á hann líklega eftir að kosta heilann handlegg, hálfa löpp og eins og þrjú MENNSK nýru.... Hvernig þú nærð í þetta þriðja nýra er none of anyone's business...
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 20. Sep 2016 07:12
af HalistaX
Ég gerði mér aldrei grein fyrir því áður en ég sá þennan þráð, en þetta eru alveg rugl fallegir fuglar!
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 20. Sep 2016 18:09
af einarn
Kosmor skrifaði:einarn skrifaði:Er ekki eina leiðinn að finna gamlann fugl sem var stoppaður upp back in the day áður enn þetta komst í lög. Afaforeldrar mínir áttu gamlan fálka sem var 60+ ára og hann var tæknilega séð löglegur vegna þess hversu gamall hann var.
Nei, Fuglar sem voru seldir eða fengnir fyrir lögsetningu eru löglegir í höndum núverandi eiganda, þeir meiga ekki selja eða gefa fuglana.
Það er dáldið skrýtið að heyra þetta. því að þegar Amma dó og þegar við vorum að skipta búinu, þá höfðum við samband við Uppstoppara til að fá sirka verðmat á fuglinum og hann kom með sirka verð sem við gætum fengið fyrir fuglinn, hann minntis ekkert á að við gætum ekki selt hann. Ég hef tildæmis séð uppstoppaðan hrafn til sölu bara núna í sumar og hann á að vera friðaður allt árið.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 20. Sep 2016 18:21
af HalistaX
einarn skrifaði:Kosmor skrifaði:einarn skrifaði:Er ekki eina leiðinn að finna gamlann fugl sem var stoppaður upp back in the day áður enn þetta komst í lög. Afaforeldrar mínir áttu gamlan fálka sem var 60+ ára og hann var tæknilega séð löglegur vegna þess hversu gamall hann var.

Ætli það verð hafi ekki verið það sem hann hafi verið tilbúinn til þess að borga fyrir hann. Svart. Undir borði.
Nema þessi lög séu eins og með drykkju 18-19 ára ungmenna, ströng lög í gildi en öllum er nokkuð sama...
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 20. Sep 2016 18:21
af worghal

Hrafnar eru friðaðir gegn veiði en hann má stoppa upp ef hann finnst dauður og selja
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 20. Sep 2016 19:05
af einarn
HalistaX skrifaði:einarn skrifaði:Kosmor skrifaði:einarn skrifaði:Er ekki eina leiðinn að finna gamlann fugl sem var stoppaður upp back in the day áður enn þetta komst í lög. Afaforeldrar mínir áttu gamlan fálka sem var 60+ ára og hann var tæknilega séð löglegur vegna þess hversu gamall hann var.
Nei, Fuglar sem voru seldir eða fengnir fyrir lögsetningu eru löglegir í höndum núverandi eiganda, þeir meiga ekki selja eða gefa fuglana.
Það er dáldið skrýtið að heyra þetta. því að þegar Amma dó og þegar við vorum að skipta búinu, þá höfðum við samband við Uppstoppara til að fá sirka verðmat á fuglinum og hann kom með sirka verð sem við gætum fengið fyrir fuglinn, hann minntis ekkert á að við gætum ekki selt hann. Ég hef tildæmis séð uppstoppaðan hrafn til sölu bara núna í sumar og hann á að vera friðaður allt árið.
Ætli það verð hafi ekki verið það sem hann hafi verið tilbúinn til þess að borga fyrir hann. Svart. Undir borði.
Nema þessi lög séu eins og með drykkju 18-19 ára ungmenna, ströng lög í gildi en öllum er nokkuð sama...
Hann hafði eingann áhuga á því að kaupa hann. Hann kom bara með tölu. Hann endaði reyndar hjá frænku minni þannig að við reyndum ekkert á það hvort það væri löglegt eða ekki.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 20. Sep 2016 19:11
af HalistaX
einarn skrifaði:HalistaX skrifaði:einarn skrifaði:Kosmor skrifaði:einarn skrifaði:Er ekki eina leiðinn að finna gamlann fugl sem var stoppaður upp back in the day áður enn þetta komst í lög. Afaforeldrar mínir áttu gamlan fálka sem var 60+ ára og hann var tæknilega séð löglegur vegna þess hversu gamall hann var.
Nei, Fuglar sem voru seldir eða fengnir fyrir lögsetningu eru löglegir í höndum núverandi eiganda, þeir meiga ekki selja eða gefa fuglana.
Það er dáldið skrýtið að heyra þetta. því að þegar Amma dó og þegar við vorum að skipta búinu, þá höfðum við samband við Uppstoppara til að fá sirka verðmat á fuglinum og hann kom með sirka verð sem við gætum fengið fyrir fuglinn, hann minntis ekkert á að við gætum ekki selt hann. Ég hef tildæmis séð uppstoppaðan hrafn til sölu bara núna í sumar og hann á að vera friðaður allt árið.
Ætli það verð hafi ekki verið það sem hann hafi verið tilbúinn til þess að borga fyrir hann. Svart. Undir borði.
Nema þessi lög séu eins og með drykkju 18-19 ára ungmenna, ströng lög í gildi en öllum er nokkuð sama...
Hann hafði eingann áhuga á því að kaupa hann. Hann kom bara með tölu. Hann endaði reyndar hjá frænku minni þannig að við reyndum ekkert á það hvort það væri löglegt eða ekki.
Já ókei, hélt bara að þetta væri eins og í god awful, staged as shit, Storage Wars þáttunum á Discovery Channel... Að þú hefur samband við gæja, einhvern gæja og sama hvaða gæja þú lendir á, hann er alltaf til í að kaupa hvaða rusl sem er á rétta verðinu og alltaf er gæjinn með hárrétta upphæð í peningum fyrir ruslinu sem þú vilt að hann kaupi af þér.....
If TV's been lying to me this whole time.... ....Some heads are gonna fly...
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 20. Sep 2016 23:25
af linenoise
worghal skrifaði:einarn skrifaði:Kosmor skrifaði:einarn skrifaði:Er ekki eina leiðinn að finna gamlann fugl sem var stoppaður upp back in the day áður enn þetta komst í lög. Afaforeldrar mínir áttu gamlan fálka sem var 60+ ára og hann var tæknilega séð löglegur vegna þess hversu gamall hann var.
Nei, Fuglar sem voru seldir eða fengnir fyrir lögsetningu eru löglegir í höndum núverandi eiganda, þeir meiga ekki selja eða gefa fuglana.
Það er dáldið skrýtið að heyra þetta. því að þegar Amma dó og þegar við vorum að skipta búinu, þá höfðum við samband við Uppstoppara til að fá sirka verðmat á fuglinum og hann kom með sirka verð sem við gætum fengið fyrir fuglinn, hann minntis ekkert á að við gætum ekki selt hann. Ég hef tildæmis séð uppstoppaðan hrafn til sölu bara núna í sumar og hann á að vera friðaður allt árið.
Hrafnar eru friðaðir gegn veiði en hann má stoppa upp ef hann finnst dauður og selja
Hrafnar eru svo sannarlega ekki friðaðir. Þeir eru ein fárra tegunda sem má veiða allt árið, ásamt nokkrum mávum. Sjá
http://www.althingi.is/lagas/145a/1994064.html#G17Svo veit ég ekkert hvernig fugl Amma þín átti,
einarn, en ef það var ekki ein af þeim tegundum sem talað er um í reglugerðinni sem ég vitnaði í fyrr í þræðinum, þá ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að selja hann.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Mið 21. Sep 2016 07:55
af worghal
linenoise skrifaði:worghal skrifaði:einarn skrifaði:Kosmor skrifaði:einarn skrifaði:Er ekki eina leiðinn að finna gamlann fugl sem var stoppaður upp back in the day áður enn þetta komst í lög. Afaforeldrar mínir áttu gamlan fálka sem var 60+ ára og hann var tæknilega séð löglegur vegna þess hversu gamall hann var.
Nei, Fuglar sem voru seldir eða fengnir fyrir lögsetningu eru löglegir í höndum núverandi eiganda, þeir meiga ekki selja eða gefa fuglana.
Það er dáldið skrýtið að heyra þetta. því að þegar Amma dó og þegar við vorum að skipta búinu, þá höfðum við samband við Uppstoppara til að fá sirka verðmat á fuglinum og hann kom með sirka verð sem við gætum fengið fyrir fuglinn, hann minntis ekkert á að við gætum ekki selt hann. Ég hef tildæmis séð uppstoppaðan hrafn til sölu bara núna í sumar og hann á að vera friðaður allt árið.
Hrafnar eru friðaðir gegn veiði en hann má stoppa upp ef hann finnst dauður og selja
Hrafnar eru svo sannarlega ekki friðaðir. Þeir eru ein fárra tegunda sem má veiða allt árið, ásamt nokkrum mávum. Sjá
http://www.althingi.is/lagas/145a/1994064.html#G17Svo veit ég ekkert hvernig fugl Amma þín átti,
worghal, en ef það var ekki ein af þeim tegundum sem talað er um í reglugerðinni sem ég vitnaði í fyrr í þræðinum, þá ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að selja hann.
veit nú ekki af hverju þú ert að spurja mig, en amma mín átti ekki neinn fugl
en annars minnti mig að hrafn væri ólöglegur til veiði en mætti kanski skjóta ef hann er orðinn að vandamáli.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Mið 21. Sep 2016 08:09
af HalistaX
Mér var alltaf sagt að helvítis hrægammurinn sem hrafninn er væri friðaður. Sama sagan með máva og álíka ógépsleg snýkjudýr sem éta allt sem liggur á jörðinni og hrefyist ekki.. Er það svo bara ekki satt? Hvað með helvítis álftina sem er að eyðileggja tún hjá bændum útum allt land, meigum við skjóta hana? Í staðinn fyrir að hræða hana í burtu sem endar alltaf á því að hún kemur aftur á sama stað fimm mínútum seinna og þarf þá að endurtaka leikinn trekk í trekk?
Get ekki ímyndað mér að dýrunum finnist heyið gott þegar það er ekkert nema fjaðrir og álftaskítur í því... Aumingja skeppnurnar...
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Mið 21. Sep 2016 09:58
af linenoise
worghal skrifaði:veit nú ekki af hverju þú ert að spurja mig, en amma mín átti ekki neinn fugl
Úbbs! Lagaði.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Mið 21. Sep 2016 12:58
af Emarki
Ég þekki einn sem á uppstoppaðan fàlka. Hann er 1 milljón virði. Sá ágæti maður myndi halda að haförninn myndi kosta 1.5- 2.5 milljón.
Er það innan budged-ins eða á að hætta pæla í þessu
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 18. Okt 2016 12:49
af Kosmor
Emarki skrifaði:Ég þekki einn sem á uppstoppaðan fàlka. Hann er 1 milljón virði. Sá ágæti maður myndi halda að haförninn myndi kosta 1.5- 2.5 milljón.
Er það innan budged-ins eða á að hætta pæla í þessu
Budget er í rauninni ekkert vandamál, en er það löglegt?
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 18. Okt 2016 14:25
af Manager1
Umhverfisráðuneytið skrifaði:Þeir sem hirða haförn, fálka, smyril, haftyrðil í Grímsey, snæuglu, branduglu, keldusvín, þórshana eða flækingsfugla, ósjálfbjarga eða dauða, skulu senda þá til Náttúrufræðistofnunar Íslands. Ef umræddir fuglar drepast í haldi eða reynast ekki hafa verið skotnir er Náttúrufræðistofnun Íslands heimilt að afhenda finnanda fuglinn til uppsetningar og varðveislu. Óheimilt er að selja og kaupa slíka fugla.
Samkvæmt þessu getur þú fengið leyfi hjá Náttúrufræðistofnun Íslands ef þú finnur dauðan fugl. Það virðist vera eina löglega leiðin. Happy hunting
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 18. Okt 2016 14:40
af Kosmor
Manager1 skrifaði:Umhverfisráðuneytið skrifaði:Þeir sem hirða haförn, fálka, smyril, haftyrðil í Grímsey, snæuglu, branduglu, keldusvín, þórshana eða flækingsfugla, ósjálfbjarga eða dauða, skulu senda þá til Náttúrufræðistofnunar Íslands. Ef umræddir fuglar drepast í haldi eða reynast ekki hafa verið skotnir er Náttúrufræðistofnun Íslands heimilt að afhenda finnanda fuglinn til uppsetningar og varðveislu. Óheimilt er að selja og kaupa slíka fugla.
Samkvæmt þessu getur þú fengið leyfi hjá Náttúrufræðistofnun Íslands ef þú finnur dauðan fugl. Það virðist vera eina löglega leiðin. Happy hunting
Mér sýnist þetta líka ver eina löglega leiðin fyrir utan að erfa þá.
En eftir rannsóknavinnu sýnist mér þetta vera ansi vonlaust.
Náttúrufræðistofnun gæfi mjög ólíklega út leyfi á svona sjaldgæfann fugl skv þeim upplýsingum sem ég hef fengið.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 18. Okt 2016 14:55
af Manager1
Í fyrsta lagi er mjög ólíklegt að þú finnir dauðan haförn í það góðu ásigkomulagi að þú viljir stoppa hann upp. Að Náttúrufræðistofnun gefi svo leyfi til uppstoppunar á þessum sama fugli er sennilega eins og að vinna í lottóinu.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 18. Okt 2016 21:23
af bigggan
I Noregi er strangar reglur um fuglar lika. þar á að fylgja pappirar með öllum ránfuglum og gerir hana lögleg fyrir eigu. þú gætir athugað hvort svoleiðis pappir er nóg til þess að fá leyfi fyrir að flytja hana inn i landið. Verðið þar er kringum 10-20 000 norskar krónur sem er rúmlega 300þ.
mundi samt athuga með tollurinn til þess að fá öll tilskyld leyfi fyrir innflutning á svoleiðis hlut.
Etir smá google þá er það ust.is sem sér um leyfi fyrir sliku.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Mið 19. Okt 2016 02:14
af Minuz1
Þú ert að búa til markað fyrir dauðann haförn.
Ef þú heldur að fólk sé ekki tilbúið að gera ólöglega hluti til þess að öðlast peninga, þá langar mig að benda þér á Narcos þáttaröðina um Pablo.
Re: Uppstoppaður Haförn
Sent: Þri 25. Okt 2016 23:53
af Snorrmund
Minuz1 skrifaði:Þú ert að búa til markað fyrir dauðann haförn.
Ef þú heldur að fólk sé ekki tilbúið að gera ólöglega hluti til þess að öðlast peninga, þá langar mig að benda þér á Narcos þáttaröðina um Pablo.
Þessi markaður er vissulega(og því miður) til.. Hef allavega heyrt að ef þú "keyrir á" Snæuglu og færð vin þinn til að stoppa hana upp þá selst svoleiðis á fleiri hundruð þúsundir. Verð á uppstoppuðum Hrafni er í kringum 30-50þ getið líklegast 10-20 faldað það til að fá verð á þessum sjaldgæfari fuglum.
Annars hef ég heyrt að margir hafa rekist á t.d. dauðan Fálka og senda hann til UST til að fá "leyfi" til að stoppa hann upp, í lang flestum tilfellum finnast einhver högl í fuglunum þannig að leyfið fæst ekki. Sem segir manni bara eitt, að einhver hafi reynt að skjóta fuglinn, hann særst og dáið svo úr sárum sínum seinna.