Síða 1 af 1
Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 07:40
af Urri
viewtopic.php?f=9&t=70394 hér er könnun nr 6.
þegar könnun nr 10 er búin mun ég setja inn samansafn af öllum könnunum.
Því að fólk er mjög áhugasamt að snúa útúr skal ég skilgreina þetta aðeins betur...
Borðtölvur, tablets og laptops.svo gætuð þið komið með uppástungu að könnunum í stað þess að vera að snúa út úr svona...
p.s. hakaði við svo að fólk getur breytt svari sínu.
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 08:12
af Tbot
Vantar að vera aðeins nákvæmari.
Ertu að tala um borðtölvur, lappa, spjaldtölvur, síma ?
Símar hjá ansi mörgum eru öflugri tölvur heldur en margir höfðu fyrir c.a. 15-20 árum.
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 09:06
af Urri
allt sem þú telur upp nema símar því.... jú það eru símar eins og þú segir.
Það er alveg hægt að nota smá rökhugsun með þetta.
Það eru líka til iðntölvur en ég myndi ekki vera að setja það með hérna þó svo að ég ætti svoleiðis heima....
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 09:30
af linenoise
Hvað með Raspberry Pi? Og með síma, hvað ef maður tengir símann við skjá og lyklaborð og notar sem útstöð?
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 09:31
af Moldvarpan
Hvað er tölva? Apparat með reiknigetu?
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 12:28
af Urri
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 12:34
af Viggi
6 með playstation og handheld leikjatölvunum. Gleymdi nes megadrive og dreamcast
.
Allt eru þetta tölvur
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 12:35
af Urri
*i give up*
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 12:40
af Moldvarpan
Þetta eru engir útúrsnúningar, könnunin þurfti bara að vera nákvæmari.
En já, búið að skilgreina tölvur núna í upphafs innleggi sem auðveldar svörun.
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 12:59
af vesley
........
þetta er ekki flókið
Það er verið að spurja hve margar tölvur eru á heimilinu þínu, ekki hve marga farsíma eða hve margar reiknivélar eða hve mörg sjónvörp eru á heimilinu. Segir sig sjálft að þegar er spurt um tölvur þá flokkar maður yfirleitt fartölvu,borðtölvu og spjaldtölvu í þann flokk, leikjatölvur eins og playstation eða jafnvel þeir sem grafa það langt að finna gameboy niðrí geymslu finnst mér ekki eiga við þennan flokk. Það er frekar önnur könnun sem myndi spurja hve margar eða hvaða "console" þú átt.
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 13:29
af linenoise
vesley skrifaði:þetta er ekki flókið...
Ok, fyrst þetta er ekki flókið. Er Raspberry Pi borðtölva eða ekki? Inquiring minds want to know.
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 14:11
af vesley
linenoise skrifaði:vesley skrifaði:þetta er ekki flókið...
Ok, fyrst þetta er ekki flókið. Er Raspberry Pi borðtölva eða ekki? Inquiring minds want to know.
Raspberry pi er borðtölva, og finnst mér ekki flókið að flokka hana svoleiðis. Hún er seld með það hlutverk í huga að vera notuð sem borðtölva, kosturinn við hana er nú bara það að hún getur keyrt ýmislegt annað líka, annað en farsíma eða playstation er ætlað að gera
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 14:23
af Tbot
vesley skrifaði:linenoise skrifaði:vesley skrifaði:þetta er ekki flókið...
Ok, fyrst þetta er ekki flókið. Er Raspberry Pi borðtölva eða ekki? Inquiring minds want to know.
Raspberry pi er borðtölva, og finnst mér ekki flókið að flokka hana svoleiðis. Hún er seld með það hlutverk í huga að vera notuð sem borðtölva, kosturinn við hana er nú bara það að hún getur keyrt ýmislegt annað líka, annað en farsíma eða playstation er ætlað að gera
Snjallsímar eru með quad upp í oct örgjörva, með stýrikerfi android/ios. Við "root" á símanum er hægt að setja upp annað kerfi. Getur fengið líkingu við officepakkann á símana, sent og móttekið tölvupóst,, vafrað á netinu.
Þetta er farið að líkjast ansi mikið því sem flestir gera með borðtölvurnar sínar.
Hver er munurinn á spjaldtölvu með 3G og síma?
fyrir utan stærðina.
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 18:30
af vesley
Tbot skrifaði:vesley skrifaði:linenoise skrifaði:vesley skrifaði:þetta er ekki flókið...
Ok, fyrst þetta er ekki flókið. Er Raspberry Pi borðtölva eða ekki? Inquiring minds want to know.
Raspberry pi er borðtölva, og finnst mér ekki flókið að flokka hana svoleiðis. Hún er seld með það hlutverk í huga að vera notuð sem borðtölva, kosturinn við hana er nú bara það að hún getur keyrt ýmislegt annað líka, annað en farsíma eða playstation er ætlað að gera
Snjallsímar eru með quad upp í oct örgjörva, með stýrikerfi android/ios. Við "root" á símanum er hægt að setja upp annað kerfi. Getur fengið líkingu við officepakkann á símana, sent og móttekið tölvupóst,, vafrað á netinu.
Þetta er farið að líkjast ansi mikið því sem flestir gera með borðtölvurnar sínar.
Hver er munurinn á spjaldtölvu með 3G og síma?
fyrir utan stærðina.
Munurinn er sá að sími er sími og spjaldtölva er spjaldtölva.
Ferð ekki og segist ætla að kaupa þér tölvu og afgreiðslumaðurinn réttir þér síma. Alveg eins og segis ætla að kaupa síma og hann réttir þér spjaldtölvu og segir við þig, en en en en en hún er með 3G !
Túlkun ykkar er augljóslega mismunandi á þessu og er því þessi könnun örugglega ekki að sýna réttar tölur.
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 19:37
af linenoise
Pfft. Ég taldi nú bara fartölvur og borðtölvur sem eru ekki raspberry pi og fór samt yfir 10.
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Mið 31. Ágú 2016 21:17
af Moldvarpan
Mér persónulega finnst það mjög legit athugasemd að skilgreina hvað átt er við.
Því tölvur hafa breyst mikið, og mörg afbrigði af þeim.
Og mér finnst þetta legit point hjá Tbot. Munurinn á símum og spjaldtölvum er orðinn hverfandi lítill.
Ég trolla ekki og er ekki að reyna snúa út úr. Bara svo það fari ekki á milli mála.
Reyndar kom mér á óvart hvernig Vesley svaraði, frekar hostile. Kannski verið slæmur dagur.
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Fim 01. Sep 2016 09:21
af playman
Nú er maður forvitin, þið sem eruð með 10 tölvur eða fleyri, hvaða tölvur eru þetta?
Re: Könnun vikunnar nr 7. Fjöldi tölva
Sent: Fim 01. Sep 2016 11:23
af linenoise
Fartölva á mann, enda allir í skóla nema ég. 2 fullorðin, 2 unglingar. 1 mediatölva í sjónvarpsherbergi. Server niðri í kjallara. Báðir unglingar með borðtölvu í leikjaspilun, listagrúsk og hitt og þetta. Sá eldri fékk líka aflóga heimilistölvu og er að leika sér að setja upp stöff í Linux. Svo er eldgömul fartölva tónlistarspilari inni í stofu og svo er ég með borðtölvu sem er notuð fyrst og fremst í tónlistarsköpun.
11 stykki, thank you very much.
Þetta er alveg soldið overkill, en t.d. fartölvur strákanna og konunnar eru gamlar og henta mjög vel til að henda í skólatösku og ekkert stórmál ef þeim verður stolið. Á móti kemur að það er ekki hægt að spila leiki eða keyra myndvinnslu og þeir keyptu sér borðtölvur sjálfir. Tónlistarfartölvan í stofunni er gömul (árgerð 2006!) og er notuð í stream í staðinn fyrir að vera með einhverja streaming græju sem konan myndi ekki nenna að læra á. Mediatölvan var keypt þegar WD Live TV mediaspilarinn bræddi úr sér. Aldrei aftur vesen með encoding. Stúdíótölvan er möst. Ég nenni ekki að díla við að tengja allt við fartölvuna mína þegar ég vil gera tónlist. Nota hana líka stundum í leiki fyrir mig. Kjallaraserverinn er svo linuxvél og er NAS heimilisins og með subversion og git og svo hendi ég upp projectum á hann þegar ég er að leika mér í vefforritun. Finnst alveg nauðsynlegt að vera með dedicated server.