Ég er búinn að vera hjá Landsbankanum í örugglega 15 ár en ég er að spá að færa mig annað eftir fréttir síðustu misseri ásamt bara að mér finnst ég ekki vera að fá nógu góða þjónustu þar.
Ég er að vinna ekkert langt frá Íslandsbankanum þannig að hann myndi henta ágætlega en ég er helst að leitast eftir að það sé gott app fyrir netbankann hjá þeim og að það sé eitthvað af bönkum til staðar á höfuðborgarsvæðinu sem ég get farið í.
Hvað mælið þið með ?
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 17:03
af HalistaX
Ég er sáttur hjá Arion.
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 17:05
af lifeformes
appið frá íslandsbanka er mjög fínt.
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 17:08
af SkinkiJ
Íslandsbanki er mjög góður
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 17:23
af ZoRzEr
Appið hjá Íslandsbanka er ekki jafn gott og hjá Arion imo. Með Arion banka appainu get ég skráð mig inn með TouchID í iPhone símanum mínum (fingrafar) og ég get séð rafræn skjöl. Það er líka auðveldara að millifæra og stofna nýjan þekktan viðtakanda greiðslu. Íslandsbanki er aftur á móti með snertilaus debet og kredit kort, þannig þú þarft bara að láta kortið snerta suma posa til að greiða undir 4.000kr. Íslandsbanki er bara með Mastercard en Arion er með bæði VISA og Mastercard.
íslandsbanki er buin loka og sameina mörg útibú , til dæmis er útibúinu í mjódd að loka.
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 18:09
af Tw1z
Ég er hjá Íslandsbanka
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 18:15
af tikitaka
Íslandsbanki hefur reynst mér vel.
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 18:29
af Tiger
Blóðbankinn sá eini sem vinnur fyrir sína viðskiptavini og eini sem ég treysti...
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 18:30
af nidur
ZoRzEr skrifaði:þarft bara að láta kortið snerta suma posa til að greiða undir 4.000kr
Er þetta bara hægt hjá Íslandsbanka?
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 18:38
af Haukursv
Var að færa mig úr landsbankanum í Arion og er mjög sáttur hingað til allavega.
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 19:16
af Olli
nidur skrifaði:
ZoRzEr skrifaði:þarft bara að láta kortið snerta suma posa til að greiða undir 4.000kr
Er þetta bara hægt hjá Íslandsbanka?
Arion ætla að gefa út svona kort síðar á árinu samkvæmt þjónustufulltrúa
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 19:45
af nidur
Olli skrifaði:
nidur skrifaði:
ZoRzEr skrifaði:þarft bara að láta kortið snerta suma posa til að greiða undir 4.000kr
Er þetta bara hægt hjá Íslandsbanka?
Arion ætla að gefa út svona kort síðar á árinu samkvæmt þjónustufulltrúa
Þá er maður ekkert að færa sig annað
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 19:46
af ZoRzEr
Olli skrifaði:
nidur skrifaði:
ZoRzEr skrifaði:þarft bara að láta kortið snerta suma posa til að greiða undir 4.000kr
Er þetta bara hægt hjá Íslandsbanka?
Arion ætla að gefa út svona kort síðar á árinu samkvæmt þjónustufulltrúa
Fékk sömu svör fyrir nokkrum vikum.
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Mið 06. Apr 2016 23:43
af marijuana
ZoRzEr skrifaði:Íslandsbanki er aftur á móti með snertilaus debet og kredit kort, þannig þú þarft bara að láta kortið snerta suma posa til að greiða undir 4.000kr. Íslandsbanki er bara með Mastercard en Arion er með bæði VISA og Mastercard.
Hef aldrei skilið það afhverju þeir eru að troða þessu upp á alla. Ég í raun vil þetta ekki, useful but not secure enough.
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Fim 07. Apr 2016 09:09
af ZoRzEr
marijuana skrifaði:
ZoRzEr skrifaði:Íslandsbanki er aftur á móti með snertilaus debet og kredit kort, þannig þú þarft bara að láta kortið snerta suma posa til að greiða undir 4.000kr. Íslandsbanki er bara með Mastercard en Arion er með bæði VISA og Mastercard.
Hef aldrei skilið það afhverju þeir eru að troða þessu upp á alla. Ég í raun vil þetta ekki, useful but not secure enough.
Nei, þetta er ekkert sérstaklega sniðug tækni. Ágætt að þeta sé ekki hærri fjárhæð sem má greiða fyrir í einu. Sá um daginn frétt af manni sem var með svona posa í lest í London. Sett in 35 pund, sem er hámarkið úti, og snerti posann við veskið á fólki án þeirrar vitundar í von um að það væri með svona kort.
Íslandsbanka, hafa reynst mér vel + þeir voru þeir einu sem reiknuðu erlend lán og þá sérstaklega bílalánin rétt frá upphafi og endurgreiddu fólki án þess að fólk hafi þurft að kavrta eitthvað sérstaklega, algjörlega andstaða SP og Lýsingar sem voru fjármögnunarfyrirtæki hinna bankana.
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Fim 07. Apr 2016 11:31
af einarhr
Ég get ekki mælt með Arion banka. Ég er búin að vera viðskiptavinur í 35 ár og er í þeirri stöðu í dag að ég er að leyta að nýjum banka. Arion hefur ekkert gert til að hjálpa mér og eru bara með leiðindi..
ZoRzEr skrifaði:Íslandsbanki er aftur á móti með snertilaus debet og kredit kort, þannig þú þarft bara að láta kortið snerta suma posa til að greiða undir 4.000kr. Íslandsbanki er bara með Mastercard en Arion er með bæði VISA og Mastercard.
Hef aldrei skilið það afhverju þeir eru að troða þessu upp á alla. Ég í raun vil þetta ekki, useful but not secure enough.
Nei, þetta er ekkert sérstaklega sniðug tækni. Ágætt að þeta sé ekki hærri fjárhæð sem má greiða fyrir í einu. Sá um daginn frétt af manni sem var með svona posa í lest í London. Sett in 35 pund, sem er hámarkið úti, og snerti posann við veskið á fólki án þeirrar vitundar í von um að það væri með svona kort.
Ef ég man þetta rétt þá er hámarksupphæðin hér heima er 3500 isk, og afaik eru þær færslur á ábyrgð seljanda, ekki korthafa. Sömuleiðis eru kortin takmörkuð í 3 svona greiðslur á dag eða 10.000kr.
Til að stela þessu þarf nánast að snerta kortið, en RFID blocking veski eru að verða algengari og ódýrari og þau leysa þann vanda.
Ég hef að vísu ekki verið að vinna tengt þessu í rúmt ár, þannig ég er eitthvað ryðgaður með þessi mál..
Varðandi OP, þá er ég mjög sáttur hjá Íslandsbanka, ekki lent í neinu merkilegu veseni með þá ennþá.
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Fim 07. Apr 2016 12:24
af brynjarbergs
Mæli með Landsbankanum - en alls ekki Bílafjármögnunardeildinni þeirra.
Er að lenda í alls kyns veseni því ég asnaðist til að taka þó ekki nema 600.000kr lán hjá þeim sem ég geri aldrei aftur.
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Fim 07. Apr 2016 12:31
af vesley
brynjarbergs skrifaði:Mæli með Landsbankanum - en alls ekki Bílafjármögnunardeildinni þeirra.
Er að lenda í alls kyns veseni því ég asnaðist til að taka þó ekki nema 600.000kr lán hjá þeim sem ég geri aldrei aftur.
Hvernig veseni ertu að lenda í ?
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Fim 07. Apr 2016 13:23
af brynjarbergs
vesley skrifaði:
brynjarbergs skrifaði:Mæli með Landsbankanum - en alls ekki Bílafjármögnunardeildinni þeirra.
Er að lenda í alls kyns veseni því ég asnaðist til að taka þó ekki nema 600.000kr lán hjá þeim sem ég geri aldrei aftur.
Hvernig veseni ertu að lenda í ?
Nýjasta er að þeir eru að senda á mig rukkun vegna einhvers sem gerðist eftir að ég seldi bílinn. Löng saga stutt hér. Samskiptaleysi milli þeirra og bílasölunnar og þeir eru að segja mér að hafa samband við nýjan eiganda bílsins, láta hann borga mér svo ég geti greitt kröfuna í einkabankanum mínum!
Ég bað þá vinsamlegast að vinna sína vinnu og hafa beint samband við nýjan eiganda þar sem mínum afskiptum af þessum bíl væri lokið!
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Fim 07. Apr 2016 13:45
af sigurdur
Ég fór frá Landsbankanum yfir í Sparisjóð S-Þingeyinga fyrir 3 árum síðan. Sé ekki eftir því.
Re: Hvaða banka á ég að fara til ?
Sent: Fim 07. Apr 2016 13:52
af Dr3dinn
Ekki ISB ef þú vilt nota Visa áfram eða í framtíðinni. (er að hætta með visa)
Voðalega svipaðir bankar samt, geri litinn greinarmun á þeim.