Síða 1 af 1

Nvidia driver v364.47 & v364.51 stór vandamál (artifacts og bluescreen t.d)

Sent: Fös 18. Mar 2016 10:00
af Alfa
Varið ykkur að uppfæra ekki í nýjasta nvidia driverinn sem kom út 8.mars (364.51) og ekki heldur sem kom á undan honum sama dag.(364.47)!

ATH! ekki allir eru að lenda í vandamálum en ansi margir ef þið skoðið netið með þetta.

Er komin með nokkur dæmi hjá mönnum sem hafa lent í því að fá artifacts, frjósa strax í windows login, bluescreen og að skjákortið hætti að senda út á skjái. Virðist algengara á tölvum sem eru með tvo eða fleiri skjái uppsetta. NVidia viðurkennir vandmálið en samt hefur ekki tekið driverinn út ennþá.

Fyrir mann sem er vanur virkar allt eins og að skjákortið sé að hrynja, en þetta er driverinn og vandamálin byrja oft ekki strax eftir install.

Einfaldasta leiðin er að restarta í save mode með DDU (display driver uninstaller), henda nvidia driverum út og setja upp allavega v362.00 eða eldri driver til að losna við vandamál. Einnig hægt að rollback driver í device manager ef menn hafa ekki hent eldri út eða hægt að gera system restore. Langbest er þó að nota DDU og clean install á driver.

DDU Download

Nokkar síður um þetta :

http://www.gamespot.com/articles/nvidia ... 0-6435657/
http://wccftech.com/nvidia-users-beware ... damage-pc/
https://www.reddit.com/r/nvidia/comment ... upport_in/

Re: Nvidia driver v364.47 & v364.51 stór vandamál (bluescreen t.d)

Sent: Fös 18. Mar 2016 10:05
af Haukursv
Já ég held ég sleppi því að installa þessum í bili

Re: Nvidia driver v364.47 & v364.51 stór vandamál (artifacts og bluescreen t.d)

Sent: Fös 18. Mar 2016 13:20
af Blamus1
Takk fyrir þennan póst, var einmitt að fara uppfæra úr v362.00 en áhvað að kíkja aðeins á Vaktina áður :happy

mbk.

Re: Nvidia driver v364.47 & v364.51 stór vandamál (artifacts og bluescreen t.d)

Sent: Fös 18. Mar 2016 13:25
af Kristján
Flott að tilkynna þetta

vantar sticki á svona.

Re: Nvidia driver v364.47 & v364.51 stór vandamál (artifacts og bluescreen t.d)

Sent: Fös 18. Mar 2016 15:13
af FreyrGauti
Driver útgáfurnar hjá nVidia hafa verið mjög slappar eftir að þeir byrju á þessum "Game Ready" útgáfum...

Re: Nvidia driver v364.47 & v364.51 stór vandamál (artifacts og bluescreen t.d)

Sent: Fös 18. Mar 2016 15:41
af Nördaklessa
:happy Takk fyrir upplýsingarnar

Re: Nvidia driver v364.47 & v364.51 stór vandamál (artifacts og bluescreen t.d)

Sent: Fös 18. Mar 2016 17:52
af darkppl
held þetta tengist einhvað Vulkan api þetta eru fyrstu vulkan driverarnir hjá nvidia.

Re: Nvidia driver v364.47 & v364.51 stór vandamál (artifacts og bluescreen t.d)

Sent: Fös 18. Mar 2016 19:33
af Kristján
var að koma heim og ég er með 364.51 driverinn og ekki lent í neinum vandræðum.
Win 8.1 pro
tölvan í undirskrift.

Re: Nvidia driver v364.47 & v364.51 stór vandamál (artifacts og bluescreen t.d)

Sent: Fös 18. Mar 2016 19:38
af Alfa
Kristján skrifaði:var að koma heim og ég er með 364.51 driverinn og ekki lent í neinum vandræðum.
Win 8.1 pro
tölvan í undirskrift.


Þá ert þú ekki einn af þessum óheppnu sennilega, en reyndar þá hef ég heyrt frá félaga mínum nákvæmlega sömu söguna fyrst og svo duttu báðir skjáir út hjá honum og eftir restart byrjaði allt "fjörið". En endilega ekki breyta mín vegna :) Ég held samt að flestir þurfi ekki þennan nýjasta nema fyrir t.d. Division.

Re: Nvidia driver v364.47 & v364.51 stór vandamál (artifacts og bluescreen t.d)

Sent: Fös 18. Mar 2016 22:15
af netscream
Það útskýrir ýmisslegt, var nýbúinn að klára að gera við annað driver vandamál, hélt að þetta væri afleiðing af því.....
3x skjáir, geforce 960gtx 4gb, windows 10.
Helvítis, þá byrjar fjörið aftur.
Btw. þetta gerist bara ef maður er að keyra vídjó eða hardware accelerated stuff.....

Takk kærlega fyrir þetta :)

Edit:
Virðist bara gerast ef ég er að keyra þetta stuff á öðrum skjá en aðalskjánum.