Síða 1 af 1

Olíugjöld á Íslandi.

Sent: Fim 17. Mar 2016 01:35
af marijuana
Sælir,

Bróðir minn var einhvað að tala um litaða olíu og þann skatt sem er ekki settur er á hana. Sumsé, olíugjöld sem samsvara 57.4 krónum á hvern lítra fyrir venjulegann einstakling.[1]

Nú, hann var einhvað að segja að þessi gjöld væru mikilvæg og ég var ekki alveg að kaupa það einn tveir og þrír, þannig ég fann eins traustar heimildir og ég mögulega gat hvað varðar olíunotkun almennings, hvaða vélar og tæki eru undanskildar þessum gjöldum og upplýsingar úr fjárlögum 2015 hvað varðar upphæð sem er merktur þessum gjöldum.

Olígjöldin samsvöruðu 7700 miljónum króna í fjárlögum sem runnu til Vegagerðarinnar. [2]
- Þá reiknaði ég 7700000000kr/57.4kr-per-litri til að finna út hve margir lítrar samsvara þessarri upphæð.
- 134.146.341,463414 lítrar

Því næst þurfti ég að finna hve mikið af olíu er notuð og greiða til þessarra gjalda. Ég fann tölur í þúsundum tonna sem var notað árið 2014, ég býst við að notkun fari ekki gróflega upp né niður árið 2015. Það er gefið upp hjá orkustofnun og studdist ég við þær tölur [3], ég fann mér einfaldlega reiknivél sem gat breytt KG af olíu (Petrolium) í lítra fyrir mig. [4]
- Komst að því að 440 tonn eru 440000KG.. Sem er einnig 499.432,46311 lítrar.

Vitandi þetta, þá var næsta skref að finna út hve stórt þetta er af þeim lítrum sem þarf til að fá þann pening sem fjármálalög setja undir Olíugjöld.
- 499.432,46311(notað í L) / 134.146.341,463414 (þarf í L) * 100 (%) = 0.372303855 sem eru ~ 0.37% af heildarlítrum til að ná upp í þennan pening sem fjármálalög gera ráð fyrir.


Fyrst og fremst langar mig að spyrja hvort útreikningarnir mínir séu réttir.
Ef svo er, þá langar mig einnig að varpa fram spurningu um tilgang þessa skattar á almenning ? Hreinlega hver tilgangurinn í að fá þetta brot af broti af heildarupphæðinni sem flokkast undir þessi gjöld ?
Á hinn bóginn þá langar mig nú einnig til að spurja hvort ég sé að misskilja einhvað varðandi þetta allt. ^^

[1] https://www.rsk.is/atvinnurekstur/skatt ... oliugjald/
[2] http://www.althingi.is/altext/pdf/144/s/0801.pdf
[3] http://www.orkustofnun.is/eldsneyti/tol ... tisnotkun/
[4] http://www.thecalculatorsite.com/conver ... s/oil.php/

Re: Olíugjöld á Íslandi.

Sent: Fim 17. Mar 2016 02:09
af Nariur
Olíunotkunnin er 440.000 tonn, ekki 440 tonn. Það sem fór á bíla er svo 245.000 tonn. Þetta réttir útreikningana af.

Edit: leiðrétt tala.

Re: Olíugjöld á Íslandi.

Sent: Fim 17. Mar 2016 02:10
af marijuana
Nariur skrifaði:Olíunotkunnin er 440.000 tonn, ekki 440 tonn. Það sem fór á bíla er svo 150.000 tonn. Þetta réttir útreikningana af.


Fjúff... Aulavilla ](*,) ](*,) ](*,) ](*,)

Rétt væri þá
453.077.509,64813 Lítrar

245.000 á bíla. Sjá excel skjal sem fylgir á linknum.
190.000 á flugvélar (Sýndist þær ekki vera undanskildar þessu)

But now it makes a lot more sense to me. Thank you very much. :lol:

Re: Olíugjöld á Íslandi.

Sent: Fim 17. Mar 2016 02:19
af Nariur
Jaá. Ég fór línuvillt í excel skjalinu. 245.000 á bíla.