Síða 1 af 3
3a.is - Þrenna
Sent: Þri 19. Jan 2016 17:50
af depill
Fyrirvari: Ég vinn fyrir annað fyrirtækið(Símann) sem sér um
https://www.3a.isJæja Síminn og GoMobile eru byrjaðir með Þrennu - ótakmörkuð símtöl, ótakmörkuð SMS, 3 GB af roll-over data ( safnamagni ) á 3.000 kr, en engin þjónusta í gegnum síma heldur bara netið.
Hvernig leggst það í menn ?
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Þri 19. Jan 2016 18:17
af emmi
Samkeppni er af hinu góða, bíð eftir svari frá Nova því ég er mjög ánægður þar.
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Þri 19. Jan 2016 18:51
af elight82
Ég er góður hjá Nova, þarf ekki Þrþrírnnu.
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Þri 19. Jan 2016 18:52
af elight82
En mér líst vel á að maður geti notað uppsafnað gagnamagn, það er alveg nýtt á íslenskum markaði.
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Þri 19. Jan 2016 19:03
af hfwf
3k mánaðargjald og síminn fyrir mig er nono. Persónulega berst ég við að nota 1gb af mobile datamagni, og hringdi undir 100min úr símanum. Wifi 4tw.
Hentar örugglega mörgum. Hinsvegar.
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Þri 19. Jan 2016 19:34
af GuðjónR
Mjög sniðugt fyrir "power users", en myndi líklega ekki henta mér þar sem ég nota GSM mjög lítið.
Safnmagn á netið er mjög flott.
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Þri 19. Jan 2016 19:40
af worghal
Ætla að bíða eftir svari frá nova
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Þri 19. Jan 2016 22:34
af BugsyB
NOVA kemur ekkert með neitt svar - þetta er svar simans við NOVA
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Þri 19. Jan 2016 23:33
af Lexxinn
Lýst virkilega vel á þetta. Ég er búinn að vera borga 5.079kr á mánuði hjá Nova, fyrir það fæ ég 5gb(nánast aldrei klárað), 1k mín og 500sms óháð kerfi. Finnst það aðeins of mikill kostnaður.
Fyrst þú ert ekki hlutlaus, spyr ég; er stuðningur við debetkort á leiðinni hjá GoMobile?
Ætti það ekki frekar að heita "safnmagn" eins og GuðjónR sagði heldur en "safnamagn"? Finnst það öllu þjálla og ég held það sé málfræðilega réttara.
Annars sé ég til ef Nova kemur með svar, annars færi ég mig hiklaust.
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 00:12
af svensven
Lexxinn skrifaði:Fyrst þú ert ekki hlutlaus, spyr ég; er stuðningur við debetkort á leiðinni hjá GoMobile?
Get ekki betur séð en að það sé nú þegar komið
https://www.facebook.com/gomobile.is/gomobile.is skrifaði:Við vitum að margir hafa beðið spenntir eftir þessari breytingu! Við höfum uppfært GOmobile appið með nýju og bættu útliti sem okkur finnst alveg mergjað! En stóru fréttirnar eru þær að nú getur þú tengt þrjú kort í GOmobile appið og það skiptir engu máli hvort um er að ræða debet- eða kreditkort. Eru það ekki bara svolítið mikið frábærar fréttir?
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 00:15
af Lexxinn
svensven skrifaði:Lexxinn skrifaði:Fyrst þú ert ekki hlutlaus, spyr ég; er stuðningur við debetkort á leiðinni hjá GoMobile?
Get ekki betur séð en að það sé nú þegar komið
https://www.facebook.com/gomobile.is/gomobile.is skrifaði:Við vitum að margir hafa beðið spenntir eftir þessari breytingu! Við höfum uppfært GOmobile appið með nýju og bættu útliti sem okkur finnst alveg mergjað! En stóru fréttirnar eru þær að nú getur þú tengt þrjú kort í GOmobile appið og það skiptir engu máli hvort um er að ræða debet- eða kreditkort. Eru það ekki bara svolítið mikið frábærar fréttir?
Afsakið þetta þá, var notandi hjá þeim með kreditkort en er mjög mikið á móti kreditkortum á meðan ég er í skóla ekki með fasta innkomu svo hætti að notast við þetta. Skoðaði heimasíðuna þeirra og eini möguleikinn sem kemur fram er kreditkort,
https://www.gomobile.is/algengar-spurningar
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 08:46
af Póstkassi
Er einhver möguleiki að fá meira en 3gb á mánuði? Er hjá nova og kaupi yfirleitt 15gb á mánuði og klára það stundum
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 08:49
af Klemmi
Lexxinn skrifaði:Afsakið þetta þá, var notandi hjá þeim með kreditkort en er mjög mikið á móti kreditkortum á meðan ég er í skóla ekki með fasta innkomu svo hætti að notast við þetta. Skoðaði heimasíðuna þeirra og eini möguleikinn sem kemur fram er kreditkort,
https://www.gomobile.is/algengar-spurningar
Af hverju þá ekki fyrirframgreitt kreditkort? Er sjálfur eingöngu með slíkt, engin færslugjöld og hægt að nota til að panta og greiða gott sem hvað sem er... nema til að leigja bílaleigubíl hér á Íslandi...
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 08:53
af Jón Ragnar
Póstkassi skrifaði:Er einhver möguleiki að fá meira en 3gb á mánuði? Er hjá nova og kaupi yfirleitt 15gb á mánuði og klára það stundum
Hvað ert þú eiginlega að gera
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 09:00
af Cascade
Mér líst einstaklega vel á þetta
Ég nota einmitt yfirleitt 1-2gb á mánuði í símann og þá er ekki nóg að kaupa 1gb hjá Nova, heldur þarf 5gb
Hugsa að símreikningurinn minn fari þá úr 5þús niður í 3þús
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 09:06
af brynjarbergs
Póstkassi skrifaði:Er einhver möguleiki að fá meira en 3gb á mánuði? Er hjá nova og kaupi yfirleitt 15gb á mánuði og klára það stundum
Á heimasíðu þeirra kemur eftirfarandi fram:
Þegar 50Mb eru eftir af 3GB bætist sjálfkrafa við 1GB sem kostar 1000 kr. Öll umframnotkun er gjaldfærð á kortið sem þú ert með skráð hjá GOmobile
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 11:33
af depill
Lexxinn skrifaði:Lýst virkilega vel á þetta. Ég er búinn að vera borga 5.079kr á mánuði hjá Nova, fyrir það fæ ég 5gb(nánast aldrei klárað), 1k mín og 500sms óháð kerfi. Finnst það aðeins of mikill kostnaður.
Fyrst þú ert ekki hlutlaus, spyr ég; er stuðningur við debetkort á leiðinni hjá GoMobile?
Ætti það ekki frekar að heita "safnmagn" eins og GuðjónR sagði heldur en "safnamagn"? Finnst það öllu þjálla og ég held það sé málfræðilega réttara.
Annars sé ég til ef Nova kemur með svar, annars færi ég mig hiklaust.
jamm debetkortin komin hjá GoMobile og þú getur veirð með allt að 3 kort skráð í GoMobile. Þú getur líka notað GoMobile inneignina þína til að borga Þrennuna ( og/eða GoMobile )
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 11:37
af depill
Póstkassi skrifaði:Er einhver möguleiki að fá meira en 3gb á mánuði? Er hjá nova og kaupi yfirleitt 15gb á mánuði og klára það stundum
Þetta er hugsað svona fyrir þennan "meðal" unga notenda. Ég flutti konunina mína allavega í þetta, hún er að nota þetta 500 mín og venjulega um 2 GB af gagnamagni og þetta kemur mjög vel fyrir hana.
Ennfremur í kringum mig virðist meðaltalið vera að flestir séu í þessu 1000 mínútna brasi hjá Nova + 5 GB gagnamagn og eru þá oftast að greiða rétt yfir 5000 kr, þarna er fólk að greiða 3000 kr ( eða minna
).
Þrennan myndi kosta þig 15 þúsund krónur á mánuði, þannig ég held að þetta sé ekki fyrir þig
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 12:32
af Lexxinn
Klemmi skrifaði:Lexxinn skrifaði:Afsakið þetta þá, var notandi hjá þeim með kreditkort en er mjög mikið á móti kreditkortum á meðan ég er í skóla ekki með fasta innkomu svo hætti að notast við þetta. Skoðaði heimasíðuna þeirra og eini möguleikinn sem kemur fram er kreditkort,
https://www.gomobile.is/algengar-spurningar
Af hverju þá ekki fyrirframgreitt kreditkort? Er sjálfur eingöngu með slíkt, engin færslugjöld og hægt að nota til að panta og greiða gott sem hvað sem er... nema til að leigja bílaleigubíl hér á Íslandi...
Lenti í nettri sturlun um jólin þegar færslur fyrir um 100k komu ekki inn fyrr en hátt í 10 dögum seinna
, skoðaði yfirlitið margoft og skildi aldrei hvað var í gangi þar sem ég var í plús þar en fékk aldrei heimild á kortið. Þetta vandamál á víst ekki að vera nálægt því jafn algengt með færslur á debetkort og þá ákvað ég eftir mikinn pirring að halda mig bara við það.
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 13:02
af Moldvarpan
Þetta er áhugavert og LOKSINS kom Síminn með pakka sem gæti hentað mörgum.
Viðskiptarmódelið og verðskráin hjá Símanum er orðin úrelt. Síma notkun hjá flestum hefur margfaldast á síðustu árum.
Þetta er klárlega mikil samkeppni fyrir Nova, því þarna ertu að fá meira fyrir peninginn, af því gefnu að þú notir símtækið þónokkuð.
Eini ókosturinn sem ég sé í augnablikinu er að það verður ekkert þjónustuver fyrir Þrennuna.
Ég hef ekki þurft að nota þjónustuver Nova mikið, en það hefur komið fyrir.
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 13:34
af Klemmi
Moldvarpan skrifaði:Eini ókosturinn sem ég sé í augnablikinu er að það verður ekkert þjónustuver fyrir Þrennuna.
Ég hef ekki þurft að nota þjónustuver Nova mikið, en það hefur komið fyrir.
Ég tek netspjall framyfir símaver anytime
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 15:09
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:Moldvarpan skrifaði:Eini ókosturinn sem ég sé í augnablikinu er að það verður ekkert þjónustuver fyrir Þrennuna.
Ég hef ekki þurft að nota þjónustuver Nova mikið, en það hefur komið fyrir.
Ég tek netspjall framyfir símaver anytime
Í alvöru? Ég hélt að þú værir svo extrovert.
Annars hefur netspjall ákveðinn kost, samtalið er skjalfest.
Símtalið er híns vegar oft hraðvirkari og persónulegri kostur.
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 15:22
af worghal
BugsyB skrifaði:NOVA kemur ekkert með neitt svar - þetta er svar simans við NOVA
það er margt sniðugt þarna eins og frítt að hringja í alla og roll-over data, svo það er ýmislegt sem Nova á eftir að svara.
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 16:18
af nidur
Ég hugsa að ég prófi þetta.
Re: 3a.is - Þrenna
Sent: Mið 20. Jan 2016 18:37
af PhilipJ
depill skrifaði:Fyrirvari: Ég vinn fyrir annað fyrirtækið(Símann) sem sér um
https://www.3a.isJæja Síminn og GoMobile eru byrjaðir með Þrennu - ótakmörkuð símtöl, ótakmörkuð SMS, 3 GB af roll-over data ( safnamagni ) á 3.000 kr, en engin þjónusta í gegnum síma heldur bara netið.
Hvernig leggst það í menn ?
Er stuðningur við rafræn skilríki?