Eru einhverjir hérna sem strengja áramótaheit? Endilega skjalfestið hér, bæði fróðlegt að sjá og ætti einnig að veita smá aðhald. Förum svo yfir þetta í árslok og sjáum hvort markmið okkar hafi náðst. Ég hef reyndar aldrei gert það en ákvað að prófa þessi áramót og er með tvö áramótaheit:
1) Taka til í bílskúrnum (virðist óviðráðanlegt verkefni hjá mér). 2) Verða Forseti Íslands (hugsa að það sé líklegar að ég nái því markmiði en að græja bílskúrinn).
Re: Áramótaheit fyrir árið 2016
Sent: Lau 02. Jan 2016 17:21
af Zorglub
1. Klára Fallout 4 (allt) Nei bara svona af því að það eru komnir 25 tímar í hann og manni finnst maður varla vera byrjaður LOL 2. Taka færri myndir. 30.000 rammar síðasta ár er ástæðan að ég spilaði nánast ekki neitt 2015 3. Klára að taka til í geymslunni.
Hef annars ekkert verið að strengja áramótaheit, maður stefnir bara á þetta vanalega, labba á fleiri fjöll, meiri tími með fjölskyldunni og hafa gaman af lífinu.
Re: Áramótaheit fyrir árið 2016
Sent: Lau 02. Jan 2016 17:26
af Gunnar
ræktinni; fá sýnilegt 6pack aftur og yfir 100kg i bekkpressu aftur. Bílarnir: sjóða sílsana á E36 325 og segja aftur saman, setja saman e34 525 sem ég á líka sem er daily og laga eitt og annað sem er að bögga mig í honum. og klára einkaflugið.
Re: Áramótaheit fyrir árið 2016
Sent: Lau 02. Jan 2016 17:54
af HalistaX
Hmm... Ætli það sé ekki það sama og venjulega, komast undir 180kg(Curvy gæjar eru sexý)(Best að setja sér lítil markmið, slow and steady wins the race), komast aftur útá vinnumarkaðinn. Halda áfram að sækja Laugarásinn, mögulega auka mætinguna þar. Og koma freemium leikja fíknini minni í skefjur, eyddi alltof mikið af pening í að kaupa demanta og kristala í einhverjum helvítis leikjum árið 2015.
Re: Áramótaheit fyrir árið 2016
Sent: Lau 02. Jan 2016 17:57
af peer2peer
1. Hafa 200kg í bekkpressu (slefa í 180kg núna) 2. Keppa í vaxtarrækt 3. Ná öllu á Vorönn og haustönn (HÍ) 4. Ná að vera án tóbaks (munntóbak)
Svo auðvitað þetta venjulega, vera betri í dag en í gær. Og vera góður við allt og alla.
Re: Áramótaheit fyrir árið 2016
Sent: Lau 02. Jan 2016 21:33
af ASUStek
Halda áfram í ræktinni, byrjaði í fyrra og þetta eitt hefur breitt og gert bara æðislega hluti. getið rétt ímyndað ykkur hvernig ég brosti þegar allir gáfu mér föt í einni stafa stærð. tala nú ekki um sterkari vinabönd gegnum ræktinna og já veruleg breyting á hittingum með hinu kyninu
og hætta taka í vörinna. brosa meira, væla minna. allt er við hendi ef þú aðeins stendur upp og hendir þér í það.
Re: Áramótaheit fyrir árið 2016
Sent: Lau 02. Jan 2016 21:49
af HalistaX
Kannski maður hætti að reykja og taka í vörina eins og þið hinir líka. Allavegana minnka það eða sleppa öðru þeirra, helst reykingunum.
Re: Áramótaheit fyrir árið 2016
Sent: Lau 02. Jan 2016 22:03
af ASUStek
HalistaX skrifaði:Kannski maður hætti að reykja og taka í vörina eins og þið hinir líka. Allavegana minnka það eða sleppa öðru þeirra, helst reykingunum.
* Byrja í ræktinni aftur. Marmiðið að ári loknu er að vera kominn nálægt 90kg. (Þarf að koma þessu í daglegt routine!) * Lesa fleiri bækur, og skrifa meira. * Ná öllum námskeiðunum bæði á vorönn og haustönn (HÍ). * Horfa minna á þætti, og takmarka aðeins tölvuleiki, meðan skólanum stendur.
Re: Áramótaheit fyrir árið 2016
Sent: Mán 04. Jan 2016 11:41
af GuðjónR
Í tilefni af því að margir ætla taka sig á og fara í ræktina á árinu þá er við hæfi að setja inn heimildarmynd um líkamsrækt.
Re: Áramótaheit fyrir árið 2016
Sent: Mán 04. Jan 2016 13:32
af Hnykill
Keypti mér flott Enduro mótorhjól .. svo nú fara tölvuleikirnir að víkja fyrir smá hreyfingu :Þ ..svo auðvitað er ég hættur að reykja og farinn að nota vaporizer ..svo þetta stefnir í gott ár hjá mér