Síða 1 af 2

The Force Awakens - *ATH Mögulegir Spoilers!*

Sent: Fim 17. Des 2015 04:00
af tonycool9
Eftir langa bið it,has arrived. þið sem hafið séð hana,hvernig fannst ykkur?

munum eftir spoilertags :D

fannst hún persónulega frábær, more or less það sem ég vildi sjá. JJ Abrams stóð stig mjög vel

Re: The Force Awakens

Sent: Fim 17. Des 2015 04:08
af ASUStek
Æðisleg!

Re: The Force Awakens

Sent: Fim 17. Des 2015 04:12
af Xovius
Sá hana áðan í Egilshöllinni, var það einhversstaðar annarsstaðar sem myndin fraus á nokkurra sekúndna fresti í lokin?
Annars stóðst myndin algjörlega mínar væntingar. Er ekki Star Wars supernörd en hef séð myndirnar nokkrum sinnum. Nýju karakterarnir eru góðir og sögulínan lítur út fyrir að verða spennandi, greinilega verið að "mirrora" fyrri myndir eins og hinar gerðu.

Re: The Force Awakens

Sent: Fim 17. Des 2015 06:00
af ASUStek
sá ekkert hökt á myndinni. fór roadtrip til Akureyri.
enþá vakandi hehe, fannst geislasverðs einvígið alveg magnað, ekki of fast paced.
margt annað sem ég þori ekki að tala um :)

Re: The Force Awakens

Sent: Fim 17. Des 2015 10:54
af svanur08
Ég missti áhugann á star wars eftir að episode I, II og III komu út, en þessi mynd er augljósa í anda gömlu góðu star wars, ekki Jar Jar binks bullið. :happy

Re: The Force Awakens

Sent: Fim 17. Des 2015 11:16
af Tbot
svanur08 skrifaði:Ég missti áhugann á star wars eftir að episode I, II og III komu út, en þessi mynd er augljósa í anda gömlu góðu star wars, ekki Jar Jar binks bullið. :happy



Jar Jar binks & co. snérist bara um græðgi GL að búa til dót sem hægt væri að selja SW fans og krökkum.

Re: The Force Awakens

Sent: Fim 17. Des 2015 13:00
af GuðjónR
Ég er aðdáandi númer 1.

Re: The Force Awakens

Sent: Fim 17. Des 2015 19:28
af hakkarin
Hún var alveg ágæt, en það er alveg sumt í henni sem að mér fannst vera heimskulegt. Eins og þetta ofur-vopn. Þetta er gott dæmi um það sem að heitir spectacle creep. Það þótti ekki nóg að vera bara með herstöð sem að var jafn stór og heilt tungl og gat eytt heilli plánetu, þannig að núna eru þeir með annað ennþá stærra og hættulegra. Sem að góðu gauranir geta síðan auðvitar sprengt í tætlur án þess að leggja neitt of mikið á sig með einfaldri herkænsku. :face

Re: The Force Awakens

Sent: Fim 17. Des 2015 19:30
af svanur08
Spoiler!!!

Re: The Force Awakens

Sent: Fös 18. Des 2015 15:44
af svanur08
Tbot skrifaði:
svanur08 skrifaði:Ég missti áhugann á star wars eftir að episode I, II og III komu út, en þessi mynd er augljósa í anda gömlu góðu star wars, ekki Jar Jar binks bullið. :happy



Jar Jar binks & co. snérist bara um græðgi GL að búa til dót sem hægt væri að selja SW fans og krökkum.


Þessar 3 myndir eru bara kjánalegar í alla staði, ekkert bara Jar Jar binks.

Re: The Force Awakens

Sent: Lau 19. Des 2015 06:04
af GunZi
Mér fannst myndin mjög góð. Byggðu nýju character'ana mjög vel upp.


Mögulegur spoiler.
Eina sem ég var ekki sáttur með er C3P0 og R2D2. Sérstaklega C3P0, hann var þarna eiginlega bara til þess að vera show-off. Hjálpar í rauninni sögunni ekki að þróast áfram, bara fan service sem er eyðsla á screen time finnst mér.

Re: The Force Awakens

Sent: Lau 19. Des 2015 08:00
af g1ster
Mér fannst hún frábær. Ég passaði mig rosalega að horfa ekki á neina trailer-a né lesa mér neitt til um nýju myndina og fór með engar rosalegar væntingar. Það virtist hafa skilað sér.

--------Spoiler------
Fannst samt frekar kjánalegt hvað gellan fékk bara allt í einu mikla kunnáttu með máttinn, þar sem áður fyrr þurfti margra ára þjálfun til að ná þessari kunnáttu. Ooooog var í sjokki með aðalatvikið sem þú veist...gerðist. Allir segjast hafa búist við því, en ekki ég...

Re: The Force Awakens

Sent: Lau 19. Des 2015 11:51
af hakkarin
Held að það versta í myndinni sé vondi kallinn. Einhver ljótur táninga Darth Vader wannabe sem að vælir bara og er síðan rústað í fyrsta bardaganum.

Re: The Force Awakens

Sent: Lau 19. Des 2015 14:59
af svanur08


Ég fæ sko gæsahúð á að heyra þessa mússík, fleiri en ég? :happy

Re: The Force Awakens

Sent: Sun 20. Des 2015 12:45
af Lallistori
hakkarin skrifaði:Held að það versta í myndinni sé vondi kallinn. Einhver ljótur táninga Darth Vader wannabe sem að vælir bara og er síðan rústað í fyrsta bardaganum.


Drengir viljiði nota spoilertags, það eru ekki allir búnir að sjá myndina [-(

Re: The Force Awakens

Sent: Sun 20. Des 2015 18:07
af braudrist
Til hvers að vera að lesa þráð sem nefnist 'The Force Awakens' ef þú vilt ekki lesa spoilers?

Re: The Force Awakens

Sent: Sun 20. Des 2015 18:18
af Skippó
GunZi skrifaði:
Mögulegur spoiler.
Eina sem ég var ekki sáttur með er C3P0 og R2D2. Sérstaklega C3P0, hann var þarna eiginlega bara til þess að vera show-off. Hjálpar í rauninni sögunni ekki að þróast áfram, bara fan service sem er eyðsla á screen time finnst mér.

g1ster skrifaði:--------Spoiler------
Fannst samt frekar kjánalegt hvað gellan fékk bara allt í einu mikla kunnáttu með máttinn, þar sem áður fyrr þurfti margra ára þjálfun til að ná þessari kunnáttu.



Við skulum nú samt ekki gleyma gott fólk að þetta er fyrsta myndin af 3, þetta er nátturlega allt saman bara uppbygging fyrir næstu 2. :)

Re: The Force Awakens

Sent: Sun 20. Des 2015 22:02
af AntiTrust
Góð mynd. Ekkert sérstök Star Wars mynd. Alltof mörg atriði sem ég gat nitpickað útí, og alltof mikill Disney fílíngur. Hefði átt að vera miklu, miklu meira dark.

Re: The Force Awakens

Sent: Sun 20. Des 2015 22:15
af nidur
Ættuð að breyta title á þessu í "warning spoilers"

Re: The Force Awakens

Sent: Mán 21. Des 2015 09:05
af Icarus
Hvernig dettur fólki í hug að opna þennan þráð hafandi ekki séð myndina? Kvartar svo yfir spoilers.... ég lét hann alveg í friði þangað til ég var búinn að sjá hana.

Um myndina sjálfa, svaka nostalgía að heyra Star Wars þemað, intróið alltaf klassík. Fannst plottið svolítið endurunnið, samskipti Leiu og Han Solo þvinguð...

Sjáum til hvernig hinar myndirnar verða, þessi er alveg skemmtileg og vönduð, en ekkert meistaraverk.

Re: The Force Awakens

Sent: Mán 21. Des 2015 11:40
af GuðjónR
Passar þetta ekki inn í umræðuna?

Re: The Force Awakens

Sent: Mán 21. Des 2015 11:54
af rapport
Mér fannst þetta ekkert sérstaklega góð mynd, þá handritið og lokaatriðið í bláendann minnir á einhverja víkingamynd eftir Hrafn Gunnlaugs.

Leikarar almennt OK og svo gefur maður smá séns því að tími fer í að kynna þetta nýja fólk til sögunar... en ef ég ætti að gefa henni einkunn þá væri það 7 - 7,5

Re: The Force Awakens

Sent: Mán 21. Des 2015 12:45
af Danni V8
Sem enginn sérstakur Star Wars fan þá fannst mér þetta bara fín ræma!

Ekkert meira og ekkert minna en ég bjóst við.

VARÚÐ! SPOILER FRAMUNDAN



Fannst atriðið þar sem Fordinn var afskráður alveg MEGA fyrirsjáanlegt.


Og já ég sá þennan þráð áður en ég fór á myndina og að sjálfsögðu notaði ég kollinn og opnaði hann ekki fyrr en eftir að ég sá hana. Skil ekki af hverju menn sem vilja ekki láta spoila myndinni lesi þennan þráð.

Re: The Force Awakens

Sent: Þri 22. Des 2015 03:42
af appel
Ég held að allur þessir þráður er spoiler. Ef þú smellir á svona þráð og ert ekki búinn að sjá myndina þá kanntu ekki að forðast spoilera.

Nýbúinn að sjá hana.

Ég er bara ánægður með hana, kannski eilítið of mikið action, eiginlega bara non-stop action í henni. Hefði viljað sjá aðeins meira af sögunni og karakater-þróun.

T.d. vil ég fá betri útskýringu á þessum um 32 árum eða svo sem liðu þarna á milli.

Og svo fannst mér sagan eiginlega bara skondið lík A New Hope, ekki endilega á slæman hátt.

En ég held að JJ Abrams og allir sem fóru í að gera þessa mynd eigi alveg hrós skilið, þeir skiluðu þessu alveg af sér, væntingarnar náttúrulega algjörlega brjálaðar.

Re: The Force Awakens - *ATH Mögulegir Spoilers!*

Sent: Þri 22. Des 2015 09:57
af Benzmann
þetta var ágætis mynd.

Mér fannst Kylo Ren characterinn vera frekar leiðinlegur.
Alveg eins og King Joffrey í GoT, nema með geislasverð.


Annars var þessi mynd mjög svipuð og 4-6, nema bara hraðspólað og víxlað hlutverkum hjá Characterunum.