Síða 1 af 1
búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.
Sent: Lau 28. Nóv 2015 15:37
af bu11d0g
Er einhver hérna sem kann að búa til subtitles út frá textaskrá þ.e.a.s. ef ég er með videoskrá eins og þátt get ég ekki notað eitthvað forrit til þess að búa til texta við þáttinn ?
Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.
Sent: Lau 28. Nóv 2015 15:54
af kizi86
Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.
Sent: Sun 29. Nóv 2015 22:12
af bu11d0g
ég meina ef ég er með video getur það ekki tekið audio-ið úr því og búið til srt skrá þarf að gera þetta allt handvirkt ?
Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.
Sent: Sun 29. Nóv 2015 23:14
af Hyrrokkin
Ef að það er softsub (sem er oftast í nýlegri útgáfum) þá er hægt að ná honum út með til dæmis mkvtoolnix. (Virkar með langflestar nýrri skráargerðir) Svo er hægt að breyta honum eins og kizi86 benti á með Aegisub.
Ef það er hardsub (textinn skrifaður ofan á myndbandið, oftast gert í .avi skrám) þá er mun leiðinlegra að ná honum út. Ég veit að það eru til forrit sem 'horfa' á allt myndbandið og lesa textann eftir fremsta magni en það getur verið óáreiðanlegt eins og annað sjálfvirkt. Ef þetta er styttra myndband er líklegra einfaldara að skrifa textann bara upp aftur þar sem þú munt líklega þurfa að fara yfir hann allan ef þú ferð þessa leið...
Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.
Sent: Mán 30. Nóv 2015 00:18
af kizi86
ertu að meina forrit sem tekur hljóðið úr vidjói og breytir því sjálfkrafa yfir í texta? svona speech to text? ef ert með vidjó sem er með einhverri tónlist líka í bakgrunninum og umhverfishljóðum held ég það sé varla hægt..
Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.
Sent: Mán 30. Nóv 2015 09:59
af DoofuZ
Ef þig vantar textaskrá fyrir eitthvað efni sem er ekki íslenskt þá geturu nálgast tilbúnar textaskrár á annað hvort
addic7ed.com eða
subtitleseeker.com. Svo er líka til
addon fyrir VLC spilarann sem hjálpar manni að nálgast textaskrár fyrir það sem maður ætlar að horfa á frá þessum síðum.
Re: búa til textaskrá ( subtitles ) frá video.
Sent: Mán 30. Nóv 2015 12:51
af kizi86
DoofuZ skrifaði:Ef þig vantar textaskrá fyrir eitthvað efni sem er ekki íslenskt þá geturu nálgast tilbúnar textaskrár á annað hvort
addic7ed.com eða
subtitleseeker.com. Svo er líka til
addon fyrir VLC spilarann sem hjálpar manni að nálgast textaskrár fyrir það sem maður ætlar að horfa á frá þessum síðum.
eða nota bara MEdia PLayer classic home cinema edition, ýtir bara á "D" og þá opnast gluggi þar sem getur downloadað texta fyrir skránna sem ert að spila, þarft ekkert auka addon:D er built inn í mpc HC