Síða 1 af 1
DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Sun 08. Nóv 2015 21:23
af Alfa
Hefur einhver náð að panta svona eða sambærilegan stól að utan.
http://www.dxracer-europe.com/pc-gaming-chairsÞví miður senda þeir ekki til íslands, en sendingargjald er hálfgert jók 15€ til flestra EU landa frá Svíþjóð.
"his product is not available in 6 Countries:
Iceland, Liechtenstein, Monaco, Montenegro, Serbia, Switzerland"
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Sun 08. Nóv 2015 21:26
af Njall_L
Geimstöðin er með þessa stóla hjá sér.
http://gamestodin.is/p/dx-racer
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Sun 08. Nóv 2015 23:20
af mundivalur
Ég fékk mér svona
https://tolvutek.is/vara/arozzi-enzo-leikjastoll-raudurmjög þæginnlegur en svarta málingin er farin að tætast upp á handriðunum
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Mán 09. Nóv 2015 00:13
af Lallistori
Fékk mér
þennann fyrir viku síðan og gæti ekki verið ánægðari!
Langar að vísu aldrei að standa upp en það er annað mál..
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Mán 09. Nóv 2015 00:17
af Alfa
Já ég myndi fá mér svona eða dýrara módelið ef ég væri ekki búin að þyngja mig allt of mikið í gegnum árin með lyftingum og ofáti
Mig vantar eitthvað meira robust, og King módelið er talað um að vera 180kg proof (þó ég sé langt frá því)
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Mán 09. Nóv 2015 00:19
af Alfa
Lallistori skrifaði:Fékk mér
þennann fyrir viku síðan og gæti ekki verið ánægðari!
Langar að vísu aldrei að standa upp en það er annað mál..
Er þetta sæmilega massívt? Sumir þessir stólar líta svo vel út en svo þegar hlunkur eins og ég fer í þá, þá brakar og brestur í þessu öllu.
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Mán 09. Nóv 2015 00:29
af Lallistori
Alfa skrifaði:Lallistori skrifaði:Fékk mér
þennann fyrir viku síðan og gæti ekki verið ánægðari!
Langar að vísu aldrei að standa upp en það er annað mál..
Er þetta sæmilega massívt? Sumir þessir stólar líta svo vel út en svo þegar hlunkur eins og ég fer í þá, þá brakar og brestur í þessu öllu.
hann er allur úr stáli og þolir mín 105kg auðveldlega.. En ef þú ert í einhverjum vafa þá geturu tekið classic eða king series þeir eru enn massívari og þola töluverða þyngd
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Mán 09. Nóv 2015 00:32
af Lallistori
En þó ég sé þungur þá er ég ekki "feitur" en samt alveg á mörkunum að passa í hann hvað breydd varðar, svona eftir á að hyggja þá sé ég eftir því að hafa ekki tekið King Series..
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Mán 09. Nóv 2015 01:40
af Danni V8
Keypti mér racing series líka. Er nú ekki nema 80kg en mér finnst hann samt of mjór. Hefði betur tekið King series.
En að öllu öðru leiti er ég mjög sáttur með hann, virðist vel gerður og úr góðu efni. En er bara búinn að eiga hann í viku svo það er kannski ekki alveg komin mikil reynsla á það..
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Mán 09. Nóv 2015 07:12
af jojoharalds
Er með racing series lika er búin að biða lengi eftir svona,
Er mjög sáttur með hann og er verðið mjög gott hjá gamestöðinn.
Kaupi öruglega annan fyrir dóttir mína
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Fös 04. Des 2015 15:14
af Vector-28
Ég fékk mér þennan (
https://www.gtomegaracing.com/gt-omega- ... en-leather) og borgaði fyrir hann 85.000.-Kr og er ekkert það ánægður með hann, brakar geðveikt mikið og hátt þegar ég halla mér aftur þó ég sé bara 75Kg (15ára). Ef ég hefði bara beðið í smá stund með þetta og keypt dxracer hjá GS þá þytfti ég ekki að vera að deala við það að smirja hann á vikufresti og hefði fengið hann ódýrari. Annars veit ég ekki hvort ég hafi bara fengið gallað eintak en ef þetta er algengt hjá þeim get ég ekki mælt með þeim.
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Lau 05. Des 2015 09:36
af Alfa
Elko er byrjað að selja frá AKRacing og fékk mér þennan stæðsta Premium og hann frábær að öllu leiti nema mætti vera aðeins breiðari fremst við leggina.
Það er kannski ekki alveg að marka mig þar sem ég er með frekar þykk læri og er 125kg og 180cm (25 ár í lyftingum + of mikið samansafn af lýsi) en miðað við það þá heyrist ekki í honum og er mjög passlega stífur fyrir mig. Rated 150kg
http://www.elko.is/elko/is/vorur/leikjastolar.eclNennti ekki að bíða eftir Gamestöðinni en eftir á hyggja hefði classic serían hentað mér lang best frá DXRacer en ég er mjög ánægður með þennan engu að síður. Miklu meiri gæði en ég þorði að vona og verðið 10 þús undir DXRacer frá Gamestöðinni.
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Mán 07. Des 2015 19:07
af braudrist
Svo virðist vera að Dxracer stólarnir eru flest allir uppseldir og næstum ófáanlegir í bili. Næsta sending hjá Gamestöðinni er "einhvern tímann" í Janúar og það er ekki hægt að panta hjá þeim. Einnig sýnist mér þeir vera out of stock bæði hjá Amazon og Newegg, alla veganna rauði / svarti liturinn sem ég var einmitt að falast eftir.
Ætli maður prófi ekki þennan AKRacing í staðinn.
Re: DXRacer stólar eða sambærilegt !
Sent: Mán 07. Des 2015 19:16
af Alfa
braudrist skrifaði:Svo virðist vera að Dxracer stólarnir eru flest allir uppseldir og næstum ófáanlegir í bili. Næsta sending hjá Gamestöðinni er "einhvern tímann" í Janúar og það er ekki hægt að panta hjá þeim. Einnig sýnist mér þeir vera out of stock bæði hjá Amazon og Newegg, alla veganna rauði / svarti liturinn sem ég var einmitt að falast eftir.
Ætli maður prófi ekki þennan AKRacing í staðinn.
DXRacer virðist ekki getað annað eftirspurn því miður, stórefa að Gamestöðin hafi búist við að þetta myndi seljast svona vel. En eins og ég segi ef þú þarft ekki að sitja eins og það sé svakalegt undir þér
þá er Premium mjög góður. Hinir eru reyndar bara 5mm mjórri þarna fremst, en eru þrengri um bakið (meira bucket) en gæðalega komu þeir mér mjög á óvart.