Síða 1 af 1
Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Mán 28. Sep 2015 18:37
af hakkarin
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/ ... ruflokkum/"Sætindi eru að hækka í verði eftir að hafa lækkað í kringum áramótin vegna afnáms sykurskattsins. Er hækkunin á bilinu 1,1-2,8% hjá Bónus, Krónunni, Iceland, Hagkaupum, Samkaupum-Úrvali, 10/11 og Kjarval. Hækkunin er minni hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, Samkaupum-Strax og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga eða um 0,2-0,6%. Í Nettó er lækkun um 0,9% og hjá Víði um 1,8%."Eins og mig grunnaði að þá virðast kaupmenn ætla að reyna sparnaðinum svo að neytandin fái hann ekki. Og á sama tíma vill Bjarni Ben afnema alla tolla til að lækka verð
Það er eins og stjórnmálamenn eigi heima á annari plánetu þar sem að þeir upplifa hlutina allt öðruvísi heldur en allir aðrir. Hlusta aldrei á reynslurök. Hvernig væri frekar að brjóta upp þetta matardor sem að hefur orðið til? Er ekki bara Hagi með 60% markaðshlutdeild?
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Mán 28. Sep 2015 18:55
af Klara
Er hækkunin hjá kaupmönnum, er hún hjá framleiðendum eða er hún bæði hjá framleiðendum og kaupmönnum.
Er þetta ekki bara hækkun tengd kjarasamningunum?
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Mán 28. Sep 2015 19:14
af tdog
Er ekki bara fínt að afnema tollana? Þá fáum við að sjá hvaða kaupmenn hugsa virkilega um hagneytenda, því ríkisstjórnin er svo sannarlega að því með þessum aðgerðum.
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Mán 28. Sep 2015 19:39
af brain
Auðvitað er þetta vegna kjarasamningana.
Skriítið að Hakkarinn hafi ekki fattað það. Kannski vildi hann ekki nefna það.
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Mán 28. Sep 2015 20:24
af Skari
haha sorry en sá bara fyrirsögnina og hugsaði mér "þetta er pottþétt eitthvað frá hakkarin" .. og það var rétt
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Mán 28. Sep 2015 20:30
af hakkarin
tdog skrifaði:Er ekki bara fínt að afnema tollana? Þá fáum við að sjá hvaða kaupmenn hugsa virkilega um hagneytenda, því ríkisstjórnin er svo sannarlega að því með þessum aðgerðum.
Þetta er ekkert í fyrsta sinn sem að kaupmenn hækka verð eða sleppa því að lækka það þótt svo að skattar eða tollar hafi verið afnumdir/lækkaðir.
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Mán 28. Sep 2015 20:45
af worghal
þá kanski hætti ég að éta þetta!
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Mán 28. Sep 2015 21:41
af lukkuláki
Frábært.
Þetta á að vera mjög dýrt enda er þetta heilsuspillandi viðbjóður það er bara staðreynd.
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Þri 29. Sep 2015 07:34
af brain
hakkarin skrifaði:tdog skrifaði:Er ekki bara fínt að afnema tollana? Þá fáum við að sjá hvaða kaupmenn hugsa virkilega um hagneytenda, því ríkisstjórnin er svo sannarlega að því með þessum aðgerðum.
Þetta er ekkert í fyrsta sinn sem að kaupmenn hækka verð eða sleppa því að lækka það þótt svo að skattar eða tollar hafi verið afnumdir/lækkaðir.
Sælgæti lækkaði, en svo komu nýju samningarnir.... Hefur ekkert að gera með tollaniðurfellinguna um áramót.
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Þri 29. Sep 2015 07:54
af Minuz1
Sé bara ekkert að því að lúxusvara hækki í verði, þeir mega bara rukka það sem þeir vilja.
Er það ekki nákvæmlega það sem þú styður sem sjálfstæðismaður?
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Þri 29. Sep 2015 16:21
af Skippó
Þegar tollarnir voru afnumdir núna um seinustu áramót hækkuðu vörur í búðum og sjoppum. Svo koma kjarasamningarnir inn í þetta einnig.
Sem dæmi ef að búðin hans Rúnars er í 1 milljón í + á mánuði og svo þarf hann að hækka launin hjá starfsfólki hjá sér og er þá með 600 þús í + á mánuði þá er það mjög einfalt fyrir hann að hækka bara vörurnar til að fá þessa 1 milljón í + aftur.
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Þri 29. Sep 2015 17:06
af machinefart
hrikalega var ég lengi að lesa þetta...
í + á + f = hvaðertaðmeinamar jáááá í plúúúúúús. betra hefði verið að segja í hagnað en wells.
Re: Sælgæti hækkar í verði!
Sent: Þri 29. Sep 2015 17:39
af chaplin
Hækka sykur-, tóbaks- og áfengisskatt finnst mér bara jákvætt ef hægt er að lækka annan skatt á móti eða bæta velferðakerfið.