Síða 1 af 1

Hvaða ódýru háþrýstidælu á maður að fá sér?

Sent: Mán 03. Ágú 2015 22:26
af fedora1
Sælir
Hafa einhverjir vaktar skoðað ódýrar háþrýstidælur ? Langar að fá mér dælu sem ég gæti skolað af bílnum, stéttinni og þetta heimilis stuff sem maður notar háþrýstidælur í. Snöggt googl segir mér að Nilfisk sé ódýrast í Húsasmiðjunni á 15k,105 bar. Múrbúðin er með BLACK OG DECKER 110 bar á 15k og Lavor 140 bör á 20k. Byko er með KÄRCHER (sem ég hef svo sem ekkert heyrt um).

Eru einhver merki sem ber að forðast, er markmiðið að fá sem flest bör fyrir sem fæstar krónur eða er eitthvað annað sem ætti að fókusa á ?
Öll ráð og ábendingar vel þegnar :-k

Ættlaði helst ekki að eyða meira en ca. 15-25k.

Re: Hvaða ódýru háþrýstidælu á maður að fá sér?

Sent: Mán 03. Ágú 2015 22:29
af pattzi
Þar sem ég er að vinna erum við með þesssa lavor Háþrýstidælur og þær seljast mjög vel allavega og hefur ekki ein komið til baka svo hún hlýtur að vera góð :)


A.T.H Vinn ekki í múrbúðinni samt

Re: Hvaða ódýru háþrýstidælu á maður að fá sér?

Sent: Mán 03. Ágú 2015 22:34
af Hrotti
Kunningi minn keypti ódýra háþrýstidælu í Múrbúðinni (man ekki hvaða merki) og hún virkaði mjög vel sagði hann, en hávaðinn var óþolandi.

Hversu hávær hún er, er að er amk eitthvað til að hafa í huga.

Re: Hvaða ódýru háþrýstidælu á maður að fá sér?

Sent: Mán 03. Ágú 2015 22:53
af fedora1
Hrotti skrifaði:Kunningi minn keypti ódýra háþrýstidælu í Múrbúðinni (man ekki hvaða merki) og hún virkaði mjög vel sagði hann, en hávaðinn var óþolandi.

Hversu hávær hún er, er að er amk eitthvað til að hafa í huga.


Góður punktur, en erfitt að prófa hávaðann áður en keypt er :-"

Re: Hvaða ódýru háþrýstidælu á maður að fá sér?

Sent: Þri 04. Ágú 2015 09:34
af methylman
Er búinn að eiga Karcher í rúm fimmtán ár aldrei klikkað, slær af dælu þegar þú ert ekki að nota hana og mín allavega er murrandi bara. passa að kaupa dælu sem er hvorki of lítil eða stór fyrir verkefnin sem þú ætlar henni, fást á fáranlegu verði í Bauhaus ;-)

Re: Hvaða ódýru háþrýstidælu á maður að fá sér?

Sent: Þri 04. Ágú 2015 10:29
af frr
Nilfisk háþrýstidælurnar skrapa botninn í prófunum (googlaðu bara) og ætti að forðast.
Karcher eru stærsta merkið í stórum og öflugum háþrýstidælum. Hinar venjulegu eru fínar líka.

Re: Hvaða ódýru háþrýstidælu á maður að fá sér?

Sent: Þri 04. Ágú 2015 10:38
af blitz
Er einmitt með mikið notaða Karcher dælu (ódýrustu týpuna) og get hiklaust mælt með þessu

Re: Hvaða ódýru háþrýstidælu á maður að fá sér?

Sent: Þri 04. Ágú 2015 10:42
af Gunnar Andri
Mæli hiklaust með Karcher, hef notað það merki lengi og verið mjög sáttur. er Með Karcher K series.

Re: Hvaða ódýru háþrýstidælu á maður að fá sér?

Sent: Fim 06. Okt 2016 09:26
af ubbi
Karcher ekki spurning. Fást í Rafver í skeifunni.