Síða 1 af 1

Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Mán 06. Júl 2015 11:57
af GuðjónR
Konan á afmæli bráðum, var að spá í að gefa henni góða gönguskó. Vantar góða skó sem kosta samt ekki handlegg, t.d. þessir:
http://www.ellingsen.is/vorur/skor/domu ... -gonguskor
og http://www.fjallakofinn.is/?webID=1&p=2 ... &item=1067
Eru flottir en kosta fáránlegar upphæðir, allar ábendingar vel þegnar.

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Mán 06. Júl 2015 12:59
af worghal
Eins og fætur toga í kópavogi rétt hjá att.
eru með Ecco á góðu verði :happy

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Mán 06. Júl 2015 13:22
af fedora1
Þessir eru með eitthvað af gönguskóm:
http://www.gummibatar.is/index.php?opti ... Itemid=119

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Mán 06. Júl 2015 15:06
af rapport
Tilton - dömuskórnir í Timberland - voru á 22þ. háir og 19þ. lágir, en svo er útsala núna þannig að þeir eru líklega e-h ódýrari.

En ef þetta á að vera "fullorðins", þá er fátt ef eitthvað sem toppar Scarpa.

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Mán 06. Júl 2015 18:20
af Alex97
Myndi fara í GGsport og kaupa AKU skó þar, algjörlega frábærir skór á töluver betra verði en scarpa en gefa þeim ekkert eftir í gæðum.
Það skemmir líka ekki að þjónustan er ljósárum betri en í flestum öðrum búðum.

http://ggsport.is/index.php?option=com_ ... Itemid=119

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Mán 06. Júl 2015 19:15
af Klara
http://www.fjallakofinn.is/?webID=1&p=22&sp=29&item=550

Þessir eru ágætir. Sæmilega vatnsheldir en blotna í gegn í rigningu. Þeir eru léttari en leðurskórnir sem eru vatnsheldir en það getur munað talsvert um þyngdina í lengri ferðum. Gore-Texið gerir líka sitt gagn. Hliðarnar eru vatnsheldar en tungan er það ekki.

Er búin að labba líklegast nokkur þúsund km í svona skóm.

Held að þú fáir ekki ódýrari skó í þessum gæðaflokki, sérstaklega ekki ef þú nærð tilboðsdílnum.

Mundu samt að láta hana máta skónna.

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Mán 06. Júl 2015 19:17
af nidur
Útilíf hefur líka verið með ágætt úrval af gönguskóm, bæði ódýra og svo dýrari

Keypti einmitt par á konuna þar :)

http://www.utilif.is/vorur/skor/gongusk ... gonguskor/

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Mán 06. Júl 2015 19:27
af jojoharalds
GuðjónR skrifaði:Konan á afmæli bráðum, var að spá í að gefa henni góða gönguskó. Vantar góða skó sem kosta samt ekki handlegg, t.d. þessir:
http://www.ellingsen.is/vorur/skor/domu ... -gonguskor
og http://www.fjallakofinn.is/?webID=1&p=2 ... &item=1067
Eru flottir en kosta fáránlegar upphæðir, allar ábendingar vel þegnar.



Eins mikið og mér langar ekki að versla þar,þá get ég þvi miður ekki neitað það að
ég keypti mér par af ítölskum gönguskóm hjá Hagkaupum fyrir 2 árum siðan,
kosta 12-15000 og hafa komið mér upp á jökla ,fossar,fjöll og göturnar í rvk :)

og sést varla á þeim,
pantaði ítalskt skófeiti á ebay og heldur það vatnið næstum 100% frá.

FLottur skó á flottu verði.

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Mán 06. Júl 2015 22:34
af Manager1
https://www.66north.is/lasportiva/ - ef konan fílar gula skó þá er þetta málið ;)

Útilíf eru með flott úrval af skóm, ég hef átt nokkur pör af Meindl skóm og get hiklaust mælt með þeim.

Scarpa er auðvitað eitt af betri merkjunum og þeir framleiða vissulega frábæra skó, en þeir kosta slatta.

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Mán 06. Júl 2015 23:26
af Zorglub
Er sjálfur í Lomer Pelmo STX og Mendl Island Pro.
Þetta er svo svakalega persónubundið hvað hentar hverjum og einum að það er erfitt að mæla með einhverju.
Aðalmálið er að taka skó sem henta í það sem á að gera, maður sér fólk í þungum, stífum skóm í einhverju láglendis slóðatölti meðan aðrir eru nánast á inniskónum á fjöllum.
Þeir sem labba mikið eiga oftast nokkur pör eftir því hvað þeir eru að fara að gera.

En annars eru þetta bara grunnatriðin, máta báða skóna í göngusokkum, labba um búðina, taka uppstig, labba á tám, labba á hælunum og svo framvegis til að finna hvort skórinn nuddi þig einhverstaðar.
Marga leðurskó tekur svo mismargar gönguferðir að ganga til, þannig að ekki fara í langferð í fyrsta túrnum.

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Þri 07. Júl 2015 10:21
af GuðjónR
Ég er feginn að hafa stofnað þennan þráð, var greinilega úti á túni í þessum pælingum. Síðustu gönguskór sem ég gaf henni voru uppháir (sá myndir) en þar sem hún notar skóna mest á jafnsléttu (malbik, möl og fjara) þá eru kannski lágir skór málið. Losna við þessa extra þyngd og stífleika sem fylgir fjallaskóm. Ég sá alltaf fyrir mér gönguskór=uppháir skór. Kannski líka af því að pælingin var að nota þá 365 daga ársins. Lágir skór myndu kannski ekki virka sem best í slabbinu, en þá væri alveg hægt að vera með létta kuldaskó fyrir svoleiðis aðstæður.

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Þri 07. Júl 2015 11:09
af rapport
Það má líka prófa að fara með þessa til skósmiðs...

Fólk er allt of gjarnt að henda hlutum en ekki gera við.

Segi ég sem á það til að henda skóm ef reimarnar slitna, það er e-h minna mál við að kaupa nýja skó en að finna reimar sem passa...

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Þri 07. Júl 2015 11:17
af GuðjónR
Fara með þessa til skósmiðs og kanna hvort hægt sé að sóla þá uppá nýtt, þessir eru fínir í slabbið. Kaupa svo létta/lága fyrir göngutúrana.
Ég vigtaði þessa hlunka áðan, 635 gr. stykkið! Það er hægt að fá létta gönguskó sem eru 600 gr. parið.

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Þri 07. Júl 2015 16:50
af DabbiGj
http://fjallakofinn.is/?webID=1&p=22&sp=85&item=551

aðal skórnir í dag, endast von úr viti, vibram sóli, töff koma í fallegum litum og hægt að fá þá vatnshelda í gtx útgáfu

ferð uppá öll fjöll í þeim og getur verið niðrí miðbæ reykjavíkur það eru líka til mjög töff skór frá lasportiva

ekki festast í því að vera með háa gönguskó þarsem að þeir gera auðvitað sitt gagn í að vernda og gefa stuðning í miklu brölti en hve oft farið þið í þannig fjallgöngur og þeir eru nánast óþarfir á göngustígum

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Þri 07. Júl 2015 20:51
af rapport
Mynd

Bara ráða sig og fá staffa afslátt ;-)

Re: Hvar fær maður góða gönguskó?

Sent: Þri 07. Júl 2015 22:36
af svanur08
Konguló er fyrsta sem ég las þegar ég sá þennan þráð á fljótu bragði hahaha.