Síða 1 af 1
Menntaskóla nám - Undirbúningur fyrir háskóla
Sent: Fim 28. Maí 2015 03:15
af marijuana
Sælir,
Ég hef verið að pæla í því aðalega hvort að nám í Tækniskólanum sé einhvað betra sem undirbúningur fyrir háskóla nám.
Er þá að pæla í
tölvubraut (TBR13) í Tækniskólanum og hyggst halda áfram síðan upp í háskóla í vonandi
Kerfisstjórnun (HR) eða svipað nám.
Er að vona að einhver hér þekki til námssins í annaðhvort TS eða HR og geti sagt til um hvort svona nám eins og TS býður upp á borgi sig yfirhöfuð sem undirbúningur fyrir þetta eða svipað háskólanám eða hvort það sé í raun og veru jafn gott þannig séð að vera í bókmenntanámi og klára stúdent þaðan. Þá fyrir mig að halda áfram í Kvennaskólanum.
Re: Menntaskóla nám - Undirbúningur fyrir háskóla
Sent: Fim 28. Maí 2015 09:40
af Predator
Það sem skiptir mestu máli vegna undirbúnings fyrir háskólanám að mínu mati er að klára mikla stærðfræði og grunn í raungreinum. Hjálpar alveg örugglega að taka einhverja forritun en er alls ekki eitthvað sem þarf að gera.
Re: Menntaskóla nám - Undirbúningur fyrir háskóla
Sent: Fim 28. Maí 2015 17:40
af Frantic
Ef ég væri að fara í menntaskóla núna þá myndi ég reyna að fara shortest/easiest way possible að stúdentsprófi og í skóla með félagslíf.
Tækniskólinn er ekki með neitt félagslíf.
Ég myndi ekki eltast við að læra forritun eða einhverja tölvunarfræði í menntaskóla. (But I did and I regret it)
Það sem skiptir máli er að vera með stærðfræði uppí 600 áfanga. (21 einingar minnir mig)
Ef þú hefur áhuga á kerfisfræði þá mun ekki vera neitt mál fyrir þig að byrja í kerfisfræði í HR þó svo þú sért ekki búinn með einhvern grunn í menntó.
Þeir hugsa alveg fyrir því að það er fólk að koma inn með enga reynslu.
Edit-TL;DR Haltu bara áfram þínu striki í Kvennó, kláraðu 21 einingar í STÆ (ef það er rétt hjá mér), útskrifastu eins hratt og þú getur, farðu í HR, profit...
Re: Menntaskóla nám - Undirbúningur fyrir háskóla
Sent: Fös 29. Maí 2015 00:14
af Tesy
Algjörlega sammála Frantic.
Vertu í skóla með félagslíf og fáðu connections þannig fyrir framtíðina. Ég útskrifaðist sjálfur úr viðskiptafræðabraut í Verzló og fór svo beint í tölvunarfræði í HR. Hafði enga grunn en gríðarlega mikinn áhuga þannig að þetta var ekkert mál fyrir mig (Fyrsta árið, ekki kominn lengra).
Ef þú hefur áhuga á því sem þú ert að spá í að fara í þá ætti það ekki að vera vandamál.
Re: Menntaskóla nám - Undirbúningur fyrir háskóla
Sent: Fös 29. Maí 2015 00:44
af GullMoli
Það sem þeir segja, fínt að vera með góða stærðfræði.
Fór sjálfur í Tölvunarfræðina með enga forritunarkunnáttu þannig lagað. Ef áhuginn er til staðar þá er þetta ekkert mál.
Tveir sem ég þekki sem fóru í TS og eru með mér í HR. Sure, þeir eru alveg með betri grunn þekkingu í forrituninni, en ekki í stærðfræðinni. Hef líka heyrt margt fáránlegt úr náminu í TS, þegar verið er að kenna á vélbúnaðinn í tölvum. Reyndar sömu sögu að segja úr einhverjum tölvu áfanga í Verzló; ég ætlaði ekki að trúa spurningunum sem krakkarnir voru að fá (Hvaða tvær týpur af minni eru í tölvu? Svarið var gefið upp sem read og write).
Re: Menntaskóla nám - Undirbúningur fyrir háskóla
Sent: Fös 29. Maí 2015 00:59
af marijuana
Okei, þá held ég klári einfaldlega í Kvennó eða sleppi því allavega að fara í TS og verð hið minnsta í skóla með vinum mínum. Var líka efins nákvamlega vegna einhvers dæmis eins og þú nefndir GullMoli, að sumt sem er kennt þarna upp í TS sé einfaldlega kjánalegt og pointless nám í rauninni, allavega sumt og þannig nám sé ég mjög lítinn tilgang í. Vissi að í háskóla væri auðvitað búið að búast við því að þú hefðir engann grunn utan áhugans og í raun er það ekki vandamál, hvert og hvar sem ég spyr er bara bent á stærðfræði þannig mér sýnist það einfaldlega vera betra að halda áfram í kvennó einfaldlega vegna þess að það er félagslíf þar.
Þakka ykkur kærlega fyrir svörin.
Re: Menntaskóla nám - Undirbúningur fyrir háskóla
Sent: Fös 29. Maí 2015 14:24
af Pandemic
Félagslífið er örugglega eitt það mikilvægasta sem þú lærir í Menntaskóla. Færð tengsl, reynslu, félagslega færni og annað sem kemur þér að góðum notum í framtíðinni.