Síða 1 af 2
Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 16:17
af flottur
Sælir Vaktarar.
Datt í hug að pósta þessu í koníaksstofuna þar sem ég hef ekkert að gera í dag.
Fyndið hvað lífið breytist þegar ða maður á börn, hér fyrir stuttu póstaði ég myndum af tölvukassanum mínum ásamt gríðarlega fallegum skjákortum
Áður en ég veit af endar þetta svona
Ætli þetta sé ekki svona before & after þráður
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 16:38
af Frikkasoft
Haha,
Svo eru krakkar líka svo forvitnir að þeim tekst oft að skemma tölvudótið manns:
- Ca viku eftir að ég keypti mér XBOX360 þá kom sonur minn (þá tæplega 2ja) og braut geisladrifið. Sem betur fer er ég líka radeindavirki þannig að ég náði að laga það.
- Einum degi eftir að ég keypti mér 15þkr þráðlausa mús þá kom sonur minn og þrykkti henni í gólfið, hún hætti að virka en mér tókst einnig að laga hana.
- Dóttir mín steig einu sinni ofan á ferðatölvuna mína og eyðilagði hana
- Þráðlausa lyklaborðið sem ég hef í stofu var einn daginn næstum því takkalaust (sonur minn fannst gaman að taka takkana)
- Flotta mekaníska lyklaborðið mitt eyðilagðist eftir að sonur minn komst í það, ég náði að laga það en endaði á að gefa það
- Hef líka lent í ýmsum vatnsskemdum (1 sími amk) sem ég hef þó alltaf náð að laga líka.
- Svo fyrir utan allar fjarstýringar sem eru farnar...
Ég er eflaust að gleyma einhverju...
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 16:49
af flottur
Frikkasoft skrifaði:Haha,

hahahaha, kannast við svona vandamál
strákurinn minn 2ára ætlaði að laga músina sem er tengd við tölvuna í stofuni með því að rífa hana í sundur og taldi svo að hún væri biluð, sem betur fer er pabbi hans ágætis pússlari þannig að hann náði að púsla músinni saman og er hún við góða heilsu í dag.......svona nokkur vegin.
Öllum krökkunum á heimilinu finnst voðalega gaman að pota í viftur sem liggja á borðstofuborðinu á meðan ég er að dunda mér í tölvunum þannig að ég er alltaf af segja : ekki vera pota í þetta.
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 17:10
af rapport
Það eina sem ég man eftir að mínar hafi skemmt er dót sem þeir hafa átt sjálfar...
En það hafa týnst GSM símar og svo fundist í skólatöskum mánuðum/árum seinna (í beltinu sem fer yfir axlirnar).
Þær eru nálægt því að stúta rafmagnsinputinu á fartölvunum sínum og gerðu það við eina spjaldtölvu sem ég gaf heimilinu í jólagjöf 2012.
En ég hef það frá vinnufélaga að opna ekki neitt tæknilegt, tölvu eða bíl nema hafa börnin nálægt, sýna þeim hvað er hvað og hvernig á að bera sig að.
Þannig að þær sáu hvað þær brutu inn í spjaldtölvunni, þær vita hvaðan reimavælið kemur í bílnum mínum, þær vita hvernig á að skipta um dekk, losa örgjörva og nota skrúfjárn o.þ.h.
Svo þegar ég ætlaði að sýna þeim hvað væri hvað í Ubuntu á sínum tíma, þá fékk ég bara "Við kunnum þetta!" og var vísað út...
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 18:14
af Squinchy
Kannast ekki við þetta vandamál
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 19:01
af kunglao
Hlakka til að sjá það sem kemur á eftir. Er það nokkuð Titan X Flottur ?
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 19:15
af Tiger
Ég fór úr þessu:
Yfir í þetta:
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 19:19
af flottur
kunglao skrifaði:Hlakka til að sjá það sem kemur á eftir. Er það nokkuð Titan X Flottur ?
jebb 2 x titan x on the way
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 19:20
af flottur
Tiger skrifaði:Ég fór úr þessu:
Yfir í þetta:
ætli þetta verði ekki endirin hjá mér þegar að ég er kominn með nóg.
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 19:38
af kunglao
Tiger skrifaði:Ég fór úr þessu:
Yfir í þetta:
úff hvað þetta er sexí caselabs Turn. áttu hann ennþá ?
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 19:39
af kunglao
flottur skrifaði:kunglao skrifaði:Hlakka til að sjá það sem kemur á eftir. Er það nokkuð Titan X Flottur ?
jebb 2 x titan x on the way
Enda bara einn Flottur hér á vaktinni...
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 19:42
af flottur
kunglao skrifaði:flottur skrifaði:kunglao skrifaði:Hlakka til að sjá það sem kemur á eftir. Er það nokkuð Titan X Flottur ?
jebb 2 x titan x on the way
Enda bara einn Flottur hér á vaktinni...
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 20:58
af jojoharalds
Ég verð nù að segja,þetta fer allt eftir uppeldið :-)
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 21:24
af Tiger
kunglao skrifaði:úff hvað þetta er sexí caselabs Turn. áttu hann ennþá ?
Neibb. Hef átt 2stk, bæði farin. Þessi þarna hvíti er sá minni sem ég átti
Í mínum huga er bara til 1 tegund af turnum sem koma til greina.....ever..... og það er Caselabs.
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 23:03
af lukkuláki
Ef maður á smákrakka og langar til að eiga eitthvað fallegt þá er best að líma það við loftið
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 23:45
af Minuz1
Hvernig er þetta þráður fyrir barnlausa, þetta er bara eitthvað bland kerlinga kvabb.
Barnlausir hafa lítinn áhuga á hvað barnfólki gengur illa að halda tölvudótinu sínu í lagi.
Viljið þið heyra hversu oft kattareigendur þurfa að ryksuga oft?
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Lau 28. Mar 2015 23:59
af Yawnk
Minuz1 skrifaði:Hvernig er þetta þráður fyrir barnlausa, þetta er bara eitthvað bland kerlinga kvabb.
Barnlausir hafa lítinn áhuga á hvað barnfólki gengur illa að halda tölvudótinu sínu í lagi.
Viljið þið heyra hversu oft kattareigendur þurfa að ryksuga oft?
Haha Nonni neikvæði mættur á svæðið
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Sun 29. Mar 2015 00:11
af rapport
Minuz1 skrifaði:Hvernig er þetta þráður fyrir barnlausa, þetta er bara eitthvað bland kerlinga kvabb.
Barnlausir hafa lítinn áhuga á hvað barnfólki gengur illa að halda tölvudótinu sínu í lagi.
Viljið þið heyra hversu oft kattareigendur þurfa að ryksuga oft?
Á kött líka... Bengal.
Þegar verið var að leita að þessum stolnu um daginn þá slapp hann fram á stigagang og nágranninn hringdi á lögguna.
Þurfti að leysa köttinn úr haldi lögreglunar seinna um kvöldið, var úti að borða (það var bóndadagur)
Skv. sögunni sem ég heyrði frá öðrum nágranna, þá komu þrir lögreglubílar og 5-6 lögregluþjónar inn í húsið að sækja litla greyjið.
En já, hann fer ekki mikið úr hárum og fyrir vikði þarf lítið að ryksuga e-h spes...
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Mán 30. Mar 2015 09:31
af Jón Ragnar
Ættuð að prufa að vera með Maine Coon kött, þá fyrst fer ryksugan að vinna
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Mán 30. Mar 2015 09:40
af flottur
Ég er líka með norskan skógarkött og...... Það er minnsta vesenið á honum
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Mán 30. Mar 2015 09:44
af Jón Ragnar
flottur skrifaði:Ég er líka með norskan skógarkött og...... Það er minnsta vesenið á honum
Erum reyndar með 2 aðra. bara venjulega húsketti, Fara líka úr hárum þessi grey.
Tókum uppá því að raka Cooninn. varð margfalt betra fyrri vikið
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Mán 30. Mar 2015 13:56
af DJOli
rapport skrifaði:Á kött líka... Bengal.
Hvar fékkstu Bengal kisu?
Mig langar persónulega í Ocelot
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Mán 30. Mar 2015 15:48
af rapport
DJOli skrifaði:rapport skrifaði:Á kött líka... Bengal.
Hvar fékkstu Bengal kisu?
Mig langar persónulega í Ocelot
Ég fékk hann notaðann á bland.is reyndar... en borgðuðum e-h smá fyrir hann.
Hann kemur frá Nátthaga -
http://notendur.centrum.is/~natthagi/Við vorum með kisur sem Dýrahjálpin hjálpaði okkur að koma í ættleiðingarferli og við vorum búin að ákveða að hjálpa öðrum þegar við gætum.
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Mán 30. Mar 2015 15:54
af nidur
Held að ég hafi nú bara aldrei séð annað eins hijcaking á þráð áður
Re: Til vaktara sem eru ennþá barnlausir
Sent: Mán 30. Mar 2015 16:51
af Jón Ragnar
rapport skrifaði:Ég fékk hann notaðann á bland.is reyndar... en borgðuðum e-h smá fyrir hann.
Hahahaha
Vel orðað