Síða 1 af 1

Vinur minn er fiskur og ég kalla hann Nemo, howtofix?

Sent: Fös 20. Mar 2015 13:28
af Dazy crazy
Halló

Ég er í smá vanda, þegar ég tala við einn vin minn í símann þá á hann það til að detta hálfpartinn út, eða þannig að ég heyri bara í honum eins og hann sé ofaní sundlaug.
Hef ekki lent í þessu þegar ég tala við aðra og hann hefur ekki fengið kvartanir um þetta frá öðrum viðmælendum sínum.

Hjá hvorum er líklegast að vandamálið liggi?

Ég er með nýlegan cat b15q
hann er með nýjan samsung s4

Re: Vinur minn er fiskur og ég kalla hann Nemo, howtofix?

Sent: Fös 20. Mar 2015 21:37
af capteinninn
Þetta gerist oft þegar síminn er að skipta á milli GSM senda, annaðhvort þinn eða hans.

Er þetta bara að gerast þegar hún hringir í bara þennan aðila og er það eitthvað tengt við eitthvað ákveðið svæði eða tíma ?

Re: Vinur minn er fiskur og ég kalla hann Nemo, howtofix?

Sent: Fös 20. Mar 2015 23:27
af Moldvarpan
Þetta er besta nafn á þræði sem ég hef séð :)

Re: Vinur minn er fiskur og ég kalla hann Nemo, howtofix?

Sent: Lau 21. Mar 2015 20:08
af Dazy crazy
Þetta virðist vera tengt við svæði, og þá dugar að skella á og hringja til baka en getur komið aftur fljótlega. Stundum lagast það af sjálfu sér.

Re: Vinur minn er fiskur og ég kalla hann Nemo, howtofix?

Sent: Lau 21. Mar 2015 20:42
af Glazier
Hef nefnilega verið að lenda slatta í þessu líka, hélt fyrst þetta væri síminn vegna þess að ég hafði aldrei lent í þessu áður en ég keypti hann í ágúst..
Er með LG G3, ekki bundið við einn aðila.. en alveg fokk pirrandi þegar þetta gerist !