Síða 1 af 1

"Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fim 29. Jan 2015 21:28
af hakkarin
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/ ... njallsima/

„Velta má fyr­ir sér hvort full­orðnir á vinnu­markaði myndu sætta sig við að sími væri tek­inn af þeim, til dæm­is ef sím­notk­un hefði trufl­andi áhrif á vinnustað,“

"Á vefsvæði umboðsmanns er að finna grein um efnið og seg­ir meðal ann­ars í henni að sýna beri börn­um að minnsta kosti sömu virðingu og full­orðnum"

Er barnadekrið þá semsagt orðið það mikið að núna eru börn orðinn jöfn fullorðnum í virðingarstiganum? \:D/

Hvað finnst vaktverjum um þetta?

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fim 29. Jan 2015 21:41
af GuðjónR
Banna snjallsíma í grunnskólum á skólatíma, punktur - basta.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fim 29. Jan 2015 22:00
af AntiTrust
GuðjónR skrifaði:Banna snjallsíma í grunnskólum á skólatíma, punktur - basta.

Það er greinilega langt síðan þú varst 16 ára ;) Annars veit ég ekki hvernig ætti að framfylgja slíku banni, unglingar eru ekki að fara að skilja símana sína eftir heima á skólatíma. Ég er þó auðvitað á því að símar séu bannaðir tíma, að sjálfsögðu.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fim 29. Jan 2015 22:06
af HalistaX
AntiTrust skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Banna snjallsíma í grunnskólum á skólatíma, punktur - basta.

Það er greinilega langt síðan þú varst 16 ára ;) Annars veit ég ekki hvernig ætti að framfylgja slíku banni, unglingar eru ekki að fara að skilja símana sína eftir heima á skólatíma. Ég er þó auðvitað á því að símar séu bannaðir tíma, að sjálfsögðu.

Geymir síman bara í vasanum í tíma.
Ætli Guðjón hafi ekki að hluta til verið að tala um það sem þú sagðir.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fim 29. Jan 2015 22:11
af Viktor
Það er ekki góð leið að taka snjallsíma af einu og einu barni.

Það er búið að finna lausn á þessu, í byrjun hvers kennslutíma setur hver og einn símann sinn í "vasa" merktum sér og síminn er þar á meðan á kennslu stendur.

hakkarin skrifaði:Er barnadekrið þá semsagt orðið það mikið að núna eru börn orðinn jöfn fullorðnum í virðingarstiganum? \:D/

Ertu að grínast eða fæddist þú á 18. öld?

Að sjálfsögðu á að bera jafn mikla virðingu fyrir börnum eins og fullorðnum.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fim 29. Jan 2015 22:13
af GuðjónR
AntiTrust skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Banna snjallsíma í grunnskólum á skólatíma, punktur - basta.

Það er greinilega langt síðan þú varst 16 ára ;) Annars veit ég ekki hvernig ætti að framfylgja slíku banni, unglingar eru ekki að fara að skilja símana sína eftir heima á skólatíma.

Það eru nokkur ár já :)

En málið er að ég á tvö börn í grunnskóla og síðar á árinu verða þau þrjú, skólinn er í 6-7 klst. á dag og börnin hljóta að lifa þann tíma af án þess að vera með skjá fyrir framan sig.
Þið sem eigið börn vitið alveg hvernig þetta er, tölvur, símar, snjalltæki eða sjónvarp nánast í öllum frítímanum.

Fyrir utan það að þessi tæki eru farin að trufla kennslu þá trufla þau líka krakkana, krakkarnir líta varla upp úr símunm í frímínútunum og taka video/myndir og senda snapchat sín á milli eins og það sé engin morgundagurinn og skiptir þá engu máli hvort sá sem vídeoið er tekið af vill það eða ekki. Hvað með friðhelgi þeirra?

Ef skjáfíknin hjá börnum undir 15 ára aldri er orðin slík að þau eiga erfitt með að klára skóladaginn án þess vera með skjá í andlitinu þá er ílla komið og tími til kominn að gera eitthvað.

Ég hef líka tekið eftir því hérna í þorpinu að á sumrin sér maður alltaf færri og færri börn að leik, það skildi þó ekki vera að þau nenni ekki út að leika af því að þau eru inni í tölvunni?

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fim 29. Jan 2015 22:15
af Viktor
Æji ætla menn aldrei að læra Guðjón?

Manstu ekki eftir þessu rausi þegar þú varst ungur?

Það að eitthvað sé ekki eins og það var þegar þú varst ungur þýðir það alls ekki að það sé slæmt.

Að sjálfsögðu eru færri börn úti að leika þegar það eru fullkomin íþróttahús í nánast hverju einasta hverfi.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fim 29. Jan 2015 22:18
af GuðjónR
Sallarólegur skrifaði:Að sjálfsögðu eru færri börn úti að leika þegar það eru fullkomin íþróttahús í nánast hverju einasta hverfi.

hahahaha ... núna hló ég upphátt!!!

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fim 29. Jan 2015 22:21
af steinarorri
hakkarin skrifaði:"Á vefsvæði umboðsmanns er að finna grein um efnið og seg­ir meðal ann­ars í henni að sýna beri börn­um að minnsta kosti sömu virðingu og full­orðnum"

Er barnadekrið þá semsagt orðið það mikið að núna eru börn orðinn jöfn fullorðnum í virðingarstiganum? \:D/

Hvað finnst vaktverjum um þetta?

Mér finnst það að sýna börnum virðingu ekki jafngilda dekri. Mér finnst það bara eðlilegt að virða börn til jafns við annað fólk. Börn eru ekki second class citizens. En auðvitað eiga börn (og fullorðnir) að fylgja settum reglum í skóla og á vinnustað.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fim 29. Jan 2015 23:12
af Viktor
GuðjónR skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Að sjálfsögðu eru færri börn úti að leika þegar það eru fullkomin íþróttahús í nánast hverju einasta hverfi.

hahahaha ... núna hló ég upphátt!!!

Nú?

Ég æfði skipulagðar íþróttir frá því að ég var 4 ára gamall í rúmlega 10 ár og á þeim tíma fóru æfingar fram innanhúss í allavega 50% tilvika, ef ekki meira. Ég sé ekki hvað er svona neikvætt við það að börn æfi íþróttir og stundi hreyfingu í öruggu umhverfi.

Það er líka alger sprenging í ýmsum íþróttagreinum eins og fimleikum og handbolta.

Re: Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fim 29. Jan 2015 23:34
af KermitTheFrog
Sallarólegur skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Að sjálfsögðu eru færri börn úti að leika þegar það eru fullkomin íþróttahús í nánast hverju einasta hverfi.

hahahaha ... núna hló ég upphátt!!!

Nú?

Ég æfði skipulagðar íþróttir frá því að ég var 4 ára gamall í rúmlega 10 ár og á þeim tíma fóru æfingar fram innanhúss í allavega 50% tilvika, ef ekki meira. Ég sé ekki hvað er svona neikvætt við það að börn æfi íþróttir og stundi hreyfingu í öruggu umhverfi.

Það er líka alger sprenging í ýmsum íþróttagreinum eins og fimleikum og handbolta.

Ég held að upphaflega hafi hann ekki verið að tala um krakka úti í skipulögðu íþrótta- og félagsstarfi. Heldur sjálfviljugir úti að leika sér.

Þú segir líka sjálfur "úti að leika" og svo "skipulagðar íþróttir."
Það er ekki alveg sama pakkinn. Allavega ekki í mínum augum.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 01:42
af urban
GuðjónR skrifaði:Fyrir utan það að þessi tæki eru farin að trufla kennslu þá trufla þau líka krakkana, krakkarnir líta varla upp úr símunm í frímínútunum og taka video/myndir og senda snapchat sín á milli eins og það sé engin morgundagurinn og skiptir þá engu máli hvort sá sem vídeoið er tekið af vill það eða ekki. Hvað með friðhelgi þeirra?

Ef skjáfíknin hjá börnum undir 15 ára aldri er orðin slík að þau eiga erfitt með að klára skóladaginn án þess vera með skjá í andlitinu þá er ílla komið og tími til kominn að gera eitthvað.

Skiptu út krakkarnir út fyrir fullorðið fólk
skiptu út orðunum kennslu og frímínútur út fyrir vinnu og kaffitíma/hádegismat.

Þá sérðu ótrúlega stóran hluta fólks í dag.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 06:54
af Danni V8
Ég er nú í skóla sjálfur og það með fólki sem á að kalla fullorðið fólk (20+), og símar eru samt vandamál. Við erum ekkert skárri en börnin.

En ég tek samt strax eftir því að þegar námsefnið er áhugavert og kennarinn er að ná að halda okkur við efnið, er enginn að spá í símanum.

Þetta eru börn. Að sjálfsögðu gera þau frekar það sem er skemmtilegra ef þau geta það. Ég er nú viss um að dæmið væri nákvæmlega eins ef að þetta eldra fólk sem kvartar mest yfir þessu hefði haft síma eða einhvern annan time-killer í vasanum þegar þau voru í grunnskóla.

Það hlýtur að vera hægt að þróa námsefnið með tækninni og finna einhverja leið til að nota símana sem aðstoðar kennslutæki.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 09:23
af Xovius
Ég átti nú ekki síma flest grunnskólaárin mín og hvað þá snjallsíma en samt fann maður sér alltaf eitthvað annað til að gera ef manni leiddist í tímum. Líkamskrot, teikningar, skemmdarverk á skólabúnaði...
Annars ef þið lesið greinina þá er ekki verið að segja að það eigi bara að leyfa börnum að vera í símanum alla kennslustundina. Það sé bara ekki rétt (né lögleg) lausn að taka símann frá þeim. Það er meiraðsegja þessi fíni listi í greinninni.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 10:45
af Gúrú
GuðjónR skrifaði:skiptir þá engu máli hvort sá sem vídeoið er tekið af vill það eða ekki. Hvað með friðhelgi þeirra?

Það hefur aldrei skipt neinu máli og tengist friðhelgi ekki neitt. Ef maður er á almannafæri tengist ekkert þar friðhelgi einkalífs.

GuðjónR skrifaði:Ég hef líka tekið eftir því hérna í þorpinu að á sumrin sér maður alltaf færri og færri börn að leik, það skildi þó ekki vera að þau nenni ekki út að leika af því að þau eru inni í tölvunni?

Kannski það eða blanda af því og að þú manst bara eftir góðu minningunum af börnum úti að leika yfir árin en ekki ómerkilegu minningunum
af engum börnum úti að leika (sem heilinn þinn hunsar skiljanlega) og svo safnast það saman í helling af góðum minningum af börnum úti að leika
svo þér líður eins og að það hafi alltaf verið endalaust af börnum úti að leika þegar að þú hrjáist í rauninni bara af confirmation bias.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 13:10
af wairdon
börn eru jafn skilyrt og fullorðnir

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 13:38
af bigggan
Þegar ég var i skóla var simar bannað að nota, ef það hringdi eða folk var að nota hann, þá var han tekinn af manni og sett i skúffu hjá kennarann og maður fékk merking i kladdann sem skilaði lægri einkunn i "hegðunar einkunninni". mér finnst þetta alveg finn leið til að leysa þetta vandamál. En reyndar var þetta i Noregi.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 14:15
af hakkarin
steinarorri skrifaði: Börn eru ekki second class citizens.

Þau eru það víst. Börn hafa ekki sömu réttindi og fullorðnir. Börn geta ekki tekið lán, keyrt bíl, eða drukkið áfengi. Þau eru víst second class þangað til að þau eru orðinn eldri.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 15:05
af Gúrú
hakkarin skrifaði:
steinarorri skrifaði: Börn eru ekki second class citizens.

Þau eru það víst. Börn hafa ekki sömu réttindi og fullorðnir. Börn geta ekki tekið lán, keyrt bíl, eða drukkið áfengi. Þau eru víst second class þangað til að þau eru orðinn eldri.

Fullorðnir hafa ekki sömu réttindi og börn. Goes both ways.

Þú veist ekki hvað second class citizen er ef þú heldur að börn séu það.
Fullorðnir eru nær því í samanburði við börn heldur en börn í samanburði við fullorðna.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 15:24
af tlord
Börn undir 18 eru ekki sjálfráða, það er ekki að ástæðulausu.

Fullorðið fólk á vinnustað má búast við íþyngjandi afleiðingum ef það fer ekki eftir fyrirmælum stjórnanda.

Þegar barn er statt í skóla er álitamál hvort einhver á vegum skólans hefur vald yfir krakkanum.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 16:56
af hakkarin
Gúrú skrifaði:
hakkarin skrifaði:
steinarorri skrifaði: Börn eru ekki second class citizens.

Þau eru það víst. Börn hafa ekki sömu réttindi og fullorðnir. Börn geta ekki tekið lán, keyrt bíl, eða drukkið áfengi. Þau eru víst second class þangað til að þau eru orðinn eldri.

Fullorðnir hafa ekki sömu réttindi og börn. Goes both ways.

Þú veist ekki hvað second class citizen er ef þú heldur að börn séu það.
Fullorðnir eru nær því í samanburði við börn heldur en börn í samanburði við fullorðna.

Segðu mér þá eitt, fynnst þér að skoðun barns eigi sömu virðingu skilið og skoðun fullorðins einstaklings? Ef að barn í fjölskyldu vill stærra herbergi til dæmis og faðirinn væri ekki sammála ættu þá hinir fjölskyldumeðliminir að hafa jafna virðingu fyrir skoðun barnsins og skoðun föðurins?

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 17:57
af I-JohnMatrix-I

úff þessi dæmasaga er svo léleg á svo marga vegu ](*,), auðvitað á að bera sömu virðingu fyrir skoðuna barnsins en það þýðir ekki að það fái stærra herbergið. Geri nú ráð fyrir því að það séu foreldrarnir sem eiga/borga leigu á húsnæðinu.

Re: "Eng­in heim­ild til að taka snjallsíma af börnum"

Sent: Fös 30. Jan 2015 19:46
af steinarorri
Gúrú skrifaði:
hakkarin skrifaði:
steinarorri skrifaði: Börn eru ekki second class citizens.

Þau eru það víst. Börn hafa ekki sömu réttindi og fullorðnir. Börn geta ekki tekið lán, keyrt bíl, eða drukkið áfengi. Þau eru víst second class þangað til að þau eru orðinn eldri.

Fullorðnir hafa ekki sömu réttindi og börn. Goes both ways.

Þú veist ekki hvað second class citizen er ef þú heldur að börn séu það.

Það er alveg rétt hjá þér, hafði ekki slegið upp skilgreiningunni á second class citizen. Mér fannst bara sláandi hvernig orðalagið hjá hakkaranum var enda finnst mér fáranlegt að ætla börnum að vera neðar í einhverri virðingarkeðju eingöngu vegna þess að þau eru börn.

hakkarin skrifaði:Segðu mér þá eitt, fynnst þér að skoðun barns eigi sömu virðingu skilið og skoðun fullorðins einstaklings? Ef að barn í fjölskyldu vill stærra herbergi til dæmis og faðirinn væri ekki sammála ættu þá hinir fjölskyldumeðliminir að hafa jafna virðingu fyrir skoðun barnsins og skoðun föðurins?

Já mér finnst að skoðunin sem slík eigi "sömu virðingu skilið" og skoðun hins fullorðna einstaklings. En börnin eiga jafnframt að virða skoðanir foreldra sinna til baka og í þessu skrítna dæmi sem þú setur fram eiga foreldrar auðvitað lokaákvörðunarréttinn enda forráðamenn barnanna sinna (og eigendur húsnæðisins).