Síða 1 af 1

Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 06:49
af BaldurÖ
Daginn spyr sá sem ekki veit :)
Afhverju skaffar ekki rúv myndlykla ?
Afhverju er ég háður símafyrirtækjum til að horfa á sjónvarp allra landsmanna :)

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 07:39
af stefhauk
Átt að geta náð rúv í gegnum loftnet

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 07:43
af brain
Það er verið að leggja þá þjónustu niður sbr:


Mynd

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 07:48
af stebbz13
Búið að leggja niður loftnetið niður hér fyrir norðan

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 08:13
af berteh
Flestöll ný sjónvörp eru með innbygðan DVB-T(2) mótakara og þurfa því ekki myndlykla Það er ekki verið að hætta með loftnetið bara færa það í stafrænar útsendingar sem nýrri sjónvörp og afruglarar skilja :)

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 09:47
af BaldurÖ
Hhahahhahaha ég var að prufa þetta tengdi gamla loftnet snúru í vegg tengið það virkar bara fínt náði 15 stöðvum bæði útvarp og sjónvarp :)
Lét tækið leita á DTV þá virkaði þetta :) Las þetta á rúv :)
http://www.ruv.is/hjalp/stafraent-sjonvarp

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 11:13
af snaeji
Af sömu ástæðu og þú fékkst aldrei frí lofnet hjá þeim :lol:

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 11:21
af BaldurÖ
hahaahaha það er satt en ég held að það séu örugglega fleiri en ég sem eru eitthvað að misskilja þessa breytingu
ég hélt að það ætti að leggja niður gömlu loftnets tengin en þau virka bara fínt ég er með flatskjá sem
er 2007 árgerð hann er með loftnets tengi og virkar bara vel :)

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 11:44
af hagur
BaldurÖ skrifaði:hahaahaha það er satt en ég held að það séu örugglega fleiri en ég sem eru eitthvað að misskilja þessa breytingu
ég hélt að það ætti að leggja niður gömlu loftnets tengin en þau virka bara fínt ég er með flatskjá sem
er 2007 árgerð hann er með loftnets tengi og virkar bara vel :)


Já, virkar svo framarlega sem sjónvarpstækið er með digital móttakara (DVB-T/DVB-T2) sem öll tæki yngri en c.a 8 ára ættu að hafa. Margir að misskilja þetta eða bara ekki skilja yfir höfuð.

RÚV er að hætta analog loftnetsútsendingum, þið vitið ... þessu gamla drasli með suðinu, draugunum og snjókomunni :happy

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 12:19
af depill
Svo ég hijacki þræðinu pinku lítið.

Er eithvað analog eftir ( höfuðborgarsvæðinu ) t.d. Omega, Stöð 2 ( veit að S1 er ekki og hefur ekki verið lengi ). Eða er þetta loksins bara að verða allt dautt ?

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 12:47
af zetor
í sumar var analog útsendingum hætt á Suðurlandi. Ég hef aldrei séð eins mikið af túbusjónvörpum á gámasvæðinu. Fullt af fínum tækjum.

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Þri 20. Jan 2015 12:50
af wicket
Analog sendingar eru aflagðar með öllu. Það er verið að loka tíðnisviðinu sem analog útsendingar hafa notað og þær notaðar í eitthvað annað. Væntanlega 4G tíðnir eða eitthvað álíka.

Það eru nokkuð mörg ár síðan að Danmörk og Svíþjóð gerðu það sama. Svona er þetta bara.

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Fös 23. Jan 2015 13:58
af JReykdal
depill skrifaði:Svo ég hijacki þræðinu pinku lítið.

Er eithvað analog eftir ( höfuðborgarsvæðinu ) t.d. Omega, Stöð 2 ( veit að S1 er ekki og hefur ekki verið lengi ). Eða er þetta loksins bara að verða allt dautt ?


Analogue deyr 2. febrúar.

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Fös 23. Jan 2015 14:51
af tlord
JR

Er ruv með hd strauma á netinu, sem er mögulegt að sækja án þess að vera með myndlykil í leigu + greidda vod þjónustu frá síma/skjárinn/voda ?

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Fös 23. Jan 2015 15:14
af Viktor
tlord skrifaði:Er ruv með hd strauma á netinu, sem er mögulegt að sækja án þess að vera með myndlykil í leigu + greidda vod þjónustu frá síma/skjárinn/voda ?


Nei, RÚV er ekki með HD á netinu.

Þú nærð RÚV HD í gegnum loftnet ef sjónvarpið er með DVB-T2 móttakara(sem 99% af sjónvörpum sem seld hafa verið á sl. 5 árum eru með).

Svo geturðu keypt DVB-T2 USB kort ef þú vilt horfa á útsendingar í tölvunni:
http://www.ebay.com/itm/400743472307

Hægt er að horfa á RÚV HD í háskerpu ef sjónvarpið er merkt HD eða HD Ready en aðeins á dreifikerfum símafélaganna yfir ADSL, Ljósnet og ljósleiðara með myndlyklum frá þeim. Einnig er RÚV HD í boði á örbylgjudreifingu Vodafone en þá dugar sjónvarp með stafrænum móttakara.

Þegar RÚV mun sjálft fara að dreifa rásum sínum í háskerpu yfir UHF þá mun duga sjónvarp með stafrænum móttakara (DVB-T2) ásamt UHF loftneti, en sú dreifing mun ekki ná um land allt fyrr en síðla árs 2014.

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Fös 23. Jan 2015 20:00
af elight82
tlord skrifaði:JR

Er ruv með hd strauma á netinu, sem er mögulegt að sækja án þess að vera með myndlykil í leigu + greidda vod þjónustu frá síma/skjárinn/voda ?


RÚV HD á netinu verður væntanlega ekki í boði fyrr en RÚV fer í HD með sitt efni, þ.e. fréttir o.þ.h. En ef þú ert með loftnetstengi á flatskjá eins og fram kemur hérna að ofan geturðu nýtt þér stafrænar útsendingar án þess að greiða nokkuð til þjónustuaðila.

Re: Afhverju skaffar Rúv ekki fría myndlykla???

Sent: Lau 24. Jan 2015 20:24
af JReykdal
Það sem hann sagði. Notaðu loftnet.