Síða 1 af 1

Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fim 04. Des 2014 20:07
af hakkarin
Ákvað að prófa nýjan bjór í dag og sá þennan í ríkinu. Er að kæla hann og get ekki beðið eftir því að prófa þar sem að þetta er fyrsti (held ég) hveitibjórinn eða "wheat beer" sem að ég hef/er að fara að smakka. Hafið þið góða reynslu af honum? Get ekki drukkið fyrir en eftir nokkra klukkutíma :( http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=03613

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fim 04. Des 2014 20:49
af wicket
Fínn hveitibjór.

Passaðu bara að hella honum í glas, ekki drekka hann beint úr flöskunni. Og best ef þú átt hátt glas að drekka hann úr slíku glasi, no joke. Hátt glas : http://craftbeertemple.com/videoblog/wp ... glass.jpeg

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fim 04. Des 2014 20:53
af krat
Erdinger gera mikið upp úr að hella bjórnum rétt úr flöskunni og er ákveðinn aðferð við það hjá Erdinger þar sem ákveðið magn er skilið eftir og best er að rúlla flöskunni á borði þegar 1/10 er eftir

https://www.youtube.com/watch?v=BLBCUiCX138

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fim 04. Des 2014 21:38
af hakkarin
krat skrifaði:Erdinger gera mikið upp úr að hella bjórnum rétt úr flöskunni og er ákveðinn aðferð við það hjá Erdinger þar sem ákveðið magn er skilið eftir og best er að rúlla flöskunni á borði þegar 1/10 er eftir

https://www.youtube.com/watch?v=BLBCUiCX138


Á ekki svona glass en á svipað kók glass sem er sirka 33cl. Er það ekki bara fínt?

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fim 04. Des 2014 21:57
af cartman
Fáðu þér svona næst þegar þú ferð í vínbúðina :happy

http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=09321

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fim 04. Des 2014 22:47
af hakkarin
Er byrjaður að drekka hann. Fýlaði hann ekki það mikið fyrst en er núna búinn með svona 30-40% of finnst hann bara mjög fínn. Fýla það að það er lítið um beiskt eftirbragð þegar maður er búinn með svona hálft glassið eins og er oftast þegar maður er að drekka típískan fjöldaframleidan bjór. Hann er góður þótt að maður sé hálfnaður með hann. Efa að ég tími 2k í þetta glass. Finnst kók glassið mitt vera nóg :)

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fim 04. Des 2014 23:04
af cartman
þetta er glasið og tveir erdinger með

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fim 04. Des 2014 23:07
af hakkarin
cartman skrifaði:þetta er glasið og tveir erdinger með


Það er samt alveg 1100kr sirka fyrir glassið. Myndi hugsanlega kaupa þetta ef að ég ætti ekki alveg ok glös fyrir, þótt að það séu ekki einhver ofur fín bjórglös.

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fim 04. Des 2014 23:16
af halldorjonz
þú ert með 33cl kókglas.

keyptu þetta bjórglas á 1k ... það worth

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fös 05. Des 2014 00:39
af svanur08
Maður þarf að prófa þennan bjór. :happy

Hvaða dökka bjóra mæla menn með?

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fös 05. Des 2014 09:41
af Daz
svanur08 skrifaði:Maður þarf að prófa þennan bjór. :happy

Hvaða dökka bjóra mæla menn með?

Meinarðu dökkan lager/öl (sem þú sérð í gegnum) eða t.d. porter/stout (sem þú sérð ekki í gegnum)?

Guiness er alltaf klassískur sem stout, dökkur Kaldi ef þú vilt lager og Leffe Brown ef þú vilt öl. (Mér finnst þeir allir góðir :happy )

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fös 05. Des 2014 17:30
af BjarkiB
Daz skrifaði:
svanur08 skrifaði:Maður þarf að prófa þennan bjór. :happy

Hvaða dökka bjóra mæla menn með?

Meinarðu dökkan lager/öl (sem þú sérð í gegnum) eða t.d. porter/stout (sem þú sérð ekki í gegnum)?

Guiness er alltaf klassískur sem stout, dökkur Kaldi ef þú vilt lager og Leffe Brown ef þú vilt öl. (Mér finnst þeir allir góðir :happy )


Get mælt með Leffe Brune. Getur líka prufað belgísku/hollensku Trappista bjórana, La Trappe Quadrupel er hrikilega góður.

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fös 05. Des 2014 20:00
af NiveaForMen
Erdinger Dunkel fyrst þú ert að kynnast Erdinger á annað borð?

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Lau 06. Des 2014 02:46
af machinefart
svanur08 skrifaði:Maður þarf að prófa þennan bjór. :happy

Hvaða dökka bjóra mæla menn með?


Myndi persónulega mæla með myrkva frá borg brugghúsi, ef þú fílar hann vel og vilt meira þá er garún rosalega góð.

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Mið 10. Des 2014 20:04
af hakkarin
Fannst vera of mikið ávaxtarbragð af þessum Erdinger, en mér langar að smakka fleiri hveitibjóra. Einhverjar uppástungur?

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Mið 10. Des 2014 20:44
af cartman
weihenstephaner frá elsta brugghúsi í heimi :happy

Re: Erdinger wheat beer, er varið í þennan?

Sent: Fim 11. Des 2014 01:01
af dabbiice
Mæli með Hoegaarden belgískur hveitibjór. Reyndar mikið sítrus og ávaxtabragð af honum en ekki láta það stoppa þig ;)