Síða 1 af 1
Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Þri 02. Des 2014 16:53
af haywood
Nú hefur komið upp sú staða að íslendingum býðst að kaupa lista með upplýsingum frá skattaskjólum.
Heyrði viðtal á bylgjunni sem var með áhugaverða hugmynd í sambandi við karolina fund til að fjármagna listann og birta hann opinberlega. Hver er ykkar skoðun á málinu? Mér persónluega finnst að það ætti að kaupa hann og sækja fólk til saka.
Viðtalið sem um ræðir
http://www.visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP31760
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Þri 02. Des 2014 17:04
af dori
Mér finnst bara að skattrannsóknarstjóri eigi að fá heimild til að kaupa listann og fara á eftir öllum sem eru þarna af fullri hörku. Mætti kannski gefa smá frest fyrir fólk að koma sjálft fram og fá þá smá afslátt af sektum/refsingu (en samt auðvitað borga fullan skatt+vexti).
Algjör óþarfi að fara að crowdsourcea þetta. Þá myndi líka hugsanlega poppa upp eitthvað "hey, við sjáum að þetta er þarna en við megum ekki nota þetta útaf...." eða einhver álíka asnaleg afsökun.
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Þri 02. Des 2014 20:38
af rapport
Danska að ferðin er líklega best....
Kaupa listann og gefa fólki 6 mánuði til að greiða skattinn með vöxtum, annars tvöfalldast upphæðin og vextirnir.
Þar komu margir fram sem ekki voru á listanum, en þorðu ekki að taka sénsinn.
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Þri 02. Des 2014 21:55
af depill
dori skrifaði:Mér finnst bara að skattrannsóknarstjóri eigi að fá heimild til að kaupa listann og fara á eftir öllum sem eru þarna af fullri hörku. Mætti kannski gefa smá frest fyrir fólk að koma sjálft fram og fá þá smá afslátt af sektum/refsingu (en samt auðvitað borga fullan skatt+vexti).
Sammála. Finnst hreinlega að ef fólk kemur fram áður en ríkið kaupir listann og greiðir up skuldina sína. Þá á það að fá 100% afslátt af sektum/refsingu sem hvati ( bara greiða vexti + skatt ).
Þeir sem verða gripnir eftir að listinn er keyptur eiga að fá stóra sekt.
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Þri 02. Des 2014 22:12
af snaeji
Mér finnst að einstaklingar ættu að fá að koma fram með peninginn næstu 3 mánuði.
Að þessum 3 mánuðum loknum færi fram peningakast í umsjón Jón Trausta Reynissonar uppá hvort listinn yrði keyptur.
Þeir aðilar sem brot kæmu í ljós hjá á þessum lista ættu síðan að fá fimmfaldan fangelsisdóm.
Endurtekið á 3 ára fresti.
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Þri 02. Des 2014 22:16
af lukkuláki
Veit enginn hvað þessi listi á að kosta?
Já auðvitað eigum við að kaupa þennan lista en ég stórefast um að það verði gert vegna tengsla og spillingar.
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Mið 03. Des 2014 15:31
af tlord
einhver sagðist hafa séð BB í bókabúð að kaupa tippex
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Mið 03. Des 2014 16:17
af Squinchy
Klárlega á ríkið að kaupa þennan lista og vinna úr þeim lista eins og önnur lönd í kringum okkur hafa gert
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Mið 03. Des 2014 16:50
af brain
lukkuláki skrifaði:Veit enginn hvað þessi listi á að kosta?
Já auðvitað eigum við að kaupa þennan lista en ég stórefast um að það verði gert vegna tengsla og spillingar.
Svona listar eru yfirleitt seldir með ákveðni % af því sem innheimtist.
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Mið 03. Des 2014 17:32
af Bjosep
Mig grunar að fyrri ríkisstjórn hefði mögulega verið viljugri til þess að kaupa listann. Annars hef ég ekki hugmynd um hversu gamalt tilboðið um að kaupa listann er. Einhver sem veit hvenær stjórnvöldum var fyrst boðið að kaupa listann?
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Mið 03. Des 2014 18:04
af stefhauk
Squinchy skrifaði:Klárlega á ríkið að kaupa þennan lista og vinna úr þeim lista eins og önnur lönd í kringum okkur hafa gert
Þeir kaupa ekki listann ef nöfnin þeirra eru á honum.
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Mið 03. Des 2014 18:06
af rapport
Held að hann verði keyptur en svo lítið gert enda búið að klippa alla peninga af skattrannsóknastjóra sem verður að fækka fólki hjá sér, sem og sérstakur saksóknari sem þyrfti að sækja málin...
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Mið 03. Des 2014 18:18
af haywood
Nu er mbl komið með frétt að Ráðneytið sé tilbúið í það að kaupa listann, en fyrst þarf að skipa nefnd sem á að fara yfir listann og
Leggja mat á það hvort hægt sé að nota hann
á að skila af sér skýrslu í síðasta lagi í febrúar 2015
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/12/03/raduneytid_tilbuid_ad_borga_fyrir_gognin/
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Fim 04. Des 2014 02:10
af brain
Þú ert nú aðeins að rugla þarna.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/ ... ir_gognin/Fjármálaráðuneytið hefur gefið grænt ljós á að Skattrannsóknarstjóri kaupi listam.
Nefndin sem þú ert að tala um :
Þá hefur fjármála- og efnahagsráðherra tekið ákvörðun um að skipa starfshóp sem mun skoða hvort ástæða sé til að taka upp svokölluð „Amnesty“ ákvæði í íslensk skattalög, svipað og gert hefur verið í nágrannalöndunum okkar. Hópurinn mun jafnframt leggja mat á það hvort lagaheimildir skattyfirvalda til öflunar upplýsinga í baráttunni gegn skattsvikum séu fullnægjandi. Hópurinn skilar niðurstöðum til ráðherra eigi síðar en 15. febrúar 2015.
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Fim 04. Des 2014 06:31
af Viktor
Já. Mér fannst Bjarni Ben koma með ágætis punkt í gærkvöldi. Það verður aðeins greitt ef það verður hægt að nýta hann til þess að innheimta glatað fé.
Re: Eiga íslendingar að kaupa listann?
Sent: Fim 04. Des 2014 09:17
af Squinchy
stefhauk skrifaði:Squinchy skrifaði:Klárlega á ríkið að kaupa þennan lista og vinna úr þeim lista eins og önnur lönd í kringum okkur hafa gert
Þeir kaupa ekki listann ef nöfnin þeirra eru á honum.
Touche