Síða 1 af 1

Bulls eye !

Sent: Sun 30. Nóv 2014 17:51
af GuðjónR
Allt í einu datt allt í dúnalogn, við erum að nálgast miðjuna á þessu skítaveðri:
http://earth.nullschool.net/#current/wi ... 63.03,1056

Re: Bulls eye !

Sent: Sun 30. Nóv 2014 17:54
af Bjosep
Núna er rétti tíminn til að fara á CrossFit æfingu! :fly

Re: Bulls eye !

Sent: Sun 30. Nóv 2014 18:07
af GuðjónR
Bjosep skrifaði:Núna er rétti tíminn til að fara á CrossFit æfingu! :fly

Já! drífa sig! það brestur aftur á eftir nokkra klukkutíma.

Annars þá finnst mér fjölmiðlar alveg mega slaka á dómsagsveðurspám sínum.
Þetta er í þriðja sinn í vetur sem spáð er nátturuhamförum og lítið sem ekkert gerist.
Það var svipað rok hérna á föstudagskvöldið en er núna, það þarf að vera
töluvert verra áður en maður gefur krökkunum frí í skólanum.

Re: Bulls eye !

Sent: Sun 30. Nóv 2014 18:08
af depill
GuðjónR skrifaði:viðhengi


Bíddu lægir á Kjalarnesi ?

Re: Bulls eye !

Sent: Sun 30. Nóv 2014 18:19
af GuðjónR
depill skrifaði:
GuðjónR skrifaði:viðhengi


Bíddu lægir á Kjalarnesi ?

Já, "logn" á okkar mælikvarða er rok á ykkar.
Hef upplifað 64Msec hérna.

Re: Bulls eye !

Sent: Sun 30. Nóv 2014 18:21
af Glazier
Haldið ykkur bara inni.. sprengjan kemur um 21 í kvöld...
Má vel vera að Vísir og Mbl séu að ýkja þetta en Veður.is er ekki að ýkja neitt og það er von á snar vitlausu veðri eftir smá stund.
Þetta logn sem er núna.. var líka í veðurspánni ;)

En þetta er búið að vera mikið á mörkunum hvort versta veðrið myndi yfir höfuð lenda á höfuðborgarsvæðinu eða ekki og þetta kemur til með að ganga hratt yfir :)

Re: Bulls eye !

Sent: Sun 30. Nóv 2014 19:52
af GuðjónR
Byrjað að blása aftur, núna úr gagnstæðri átt!
Bara gaman.

Re: Bulls eye !

Sent: Sun 30. Nóv 2014 20:55
af svanur08
Ætli rafmagnið fari ekki af bráðum.

Re: Bulls eye !

Sent: Sun 30. Nóv 2014 21:11
af appel
Ha er eitthvað óveður úti? Tek ekki eftir því, bara enn eitt rokrassgatsveður einsog vanalega á þessum sjókletti.

Re: Bulls eye !

Sent: Sun 30. Nóv 2014 21:43
af GuðjónR
appel skrifaði:Ha er eitthvað óveður úti? Tek ekki eftir því, bara enn eitt rokrassgatsveður einsog vanalega á þessum sjókletti.

Hvað má ég það segja :wtf

Re: Bulls eye !

Sent: Sun 30. Nóv 2014 22:19
af CendenZ
Finn/fann varla fyrir þessu, lindahverfi Kópavogi...