Síða 1 af 3

Tölvuvirkni.is - [Komin leiðrétting]

Sent: Fim 27. Nóv 2014 22:10
af Dúlli
Eru þeir byrjaðir að skíta á sig ? eftir þessa sameiningu við tölvutek, hef upplifað þessa þjónustu hjá tölvutek en er byrjaður að heyra svona í fyrsta skipti um tölvuvirkni.

Facebook - Umræða

Mynd

Bætt Við :
Björgvinn henti inn flottu innleggi af hvað skeði og það er gott að fá báðar hliðar af málinu :happy

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 22:13
af capteinninn
Ég er alltaf svo hrifinn af svona one sided arguments.

Hvað ef að sá sem seldi diskinn setti enga kennitölu á kaupin hjá sér? Er það þá versluninni að kenna?

Á ekkert í þessu máli en þetta er alltaf svo fáránlegt þegar maður heyrir bara aðra hliðina á málinu.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 22:14
af Dúlli
capteinninn skrifaði:Ég er alltaf svo hrifinn af svona one sided arguments.

Hvað ef að sá sem seldi diskinn setti enga kennitölu á kaupin hjá sér? Er það þá versluninni að kenna?

Á ekkert í þessu máli en þetta er alltaf svo fáránlegt þegar maður heyrir bara aðra hliðina á málinu.


Er allveg samála þér þar finnst það mjög líklegt að það skeði fyrst hann greiddi cash en samt sem áður ég verð að hugsa að þetta sé orðið sama skítarugl og tölvutek er að gera.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 22:18
af Moldvarpan
Það er val þegar verslað er hvort viðkomandi vilji skrá kennitölu á nótuna. Ef engin kennitala var skráð, þá er ekki hægt að fletta því upp í kerfinu ef nótan er týnd.

En þetta er svosem ekkert nýtt, fyrir mörgum árum lenti ég í atviki þarna. Minni sem voru í ábyrgð og ég fékk stanslaust BSOD með þeim undir miklu álagi. Ég prófaði að setja þau í aðrar tölvur, sem komu alltaf með sama BSOD.
Hann bað mig um að koma með þau, sem ég gerði, og ætlaði að álagsprófa þau. Hann sagði að þeir fundu ekkert að minnunum og rukkaði mig fyrir vinnuna við að prófa minnin.
Ég notabene þekkti hann persónulega, og ég varð svo hneykslaður að ég verslaði aldrei þarna aftur.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 22:20
af Dúlli
Moldvarpan skrifaði:Það er val þegar verslað er hvort viðkomandi vilji skrá kennitölu á nótuna. Ef engin kennitala var skráð, þá er ekki hægt að fletta því upp í kerfinu ef nótan er týnd.

En þetta er svosem ekkert nýtt, fyrir mörgum árum lenti ég í atviki þarna. Minni sem voru í ábyrgð og ég fékk stanslaust BSOD með þeim undir miklu álagi. Ég prófaði að setja þau í aðrar tölvur, sem komu alltaf með sama BSOD.
Hann bað mig um að koma með þau, sem ég gerði, og ætlaði að álagsprófa þau. Hann sagði að þeir fundu ekkert að minnunum og rukkaði mig fyrir vinnuna við að prófa minnin.
Ég notabene þekkti hann persónulega, og ég varð svo hneykslaður að ég verslaði aldrei þarna aftur.

Ha ? varstu rukkaður ? spess fyrst þeir auglýsa þessa fría bilanagreiningu.

Mynd

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 22:22
af Moldvarpan
Þetta var töluvert áður en að þeir fóru að auglýsa þetta...
Hann var nýlega kominn í Hlíðarsmárann úr Grindavík þegar þetta átti sér stað. Minnir að þetta hafi verið 400mhz HyperX DDR minni.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 22:23
af Dúlli
Moldvarpan skrifaði:Þetta var töluvert áður en að þeir fóru að auglýsa þetta...
Hann var nýlega kominn í Hlíðarsmárann úr Grindavík þegar þetta átti sér stað. Minnir að þetta hafi verið 400mhz HyperX DDR minni.

Ah svoleiðis. Finnst vera svo rosalegur skortur á reynslusögum um verslarnir, finnst gaman að heyra góða eða slæma hluti um verslanir svona maður viti í framtíðinni hvað er gott fyrirtæki og hvað er slæmt.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 22:25
af Gúrú
Þetta gæti ekki verið skringilegri kvörtun.

Þessi viðskiptavinur er ekki með neitt í höndunum og vill fá bókstaflega frían harðan disk.

Magnað að búðin sé ekki æst í að gefa honum stykki.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 22:28
af Dúlli
Gúrú skrifaði:Þetta gæti ekki verið skringilegri kvörtun.

Þessi viðskiptavinur er ekki með neitt í höndunum og vill fá bókstaflega frían harðan disk.

Magnað að búðin sé ekki æst í að gefa honum stykki.

Væri mjög mikið til að sjá svar frá tölvuvirkni og heyra þeirra hlið en ég hugsa líka hvað ef þetta er satt ? hvað ef hann setti kennitölu og starfsmaðurinn klúðraði kannski ferlinum. Kannski voru þeir að uppfæra tölvukerfið og eithvað hvarf ? Maður á aldrei að taka séns á eithverjum til að geyma draslið manns.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 22:34
af J1nX
ég er sammála Gúrú í þessu.. ef viðskiptavinurinn sjálfur er ekki með nótuna eða eitthvað í höndunum sjálfur fyrir þessu, þá vorkenni ég honum ekkert..
Annars gæti ég bara farið til þeirra á morgun með eitthvað af ónýta dótinu mínu og sagt bara "hæ ég keypti þetta með cash og þetta er bilað og ég vill fá nýtt takk"

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 23:06
af Hannesinn
Allar tölvuverslanir sem ég hef verslað við seinustu ár bjóða manni að skrá hlutinn á kennitölu. Ef maður vill það ekki, þá er sölunótan orðin ábyrgðarnóta, og lítið við því að segja ef maður týnir henni.

Svo lifum við reyndar á tölvuöld, þar sem vörur eru skannaðar inn og út úr verslunum. Það ætti því að vera ekkert mál að sjá hvort og hvenær diskurinn var keyptur þarna með skannanum. Eða það hefði ég haldið allavega.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 23:14
af Gúrú
Dúlli skrifaði:hvað ef þetta er satt ? hvað ef hann setti kennitölu og starfsmaðurinn klúðraði kannski ferlinum.


Maðurinn heldur því ekki einu sinni fram sjálfur.

Hann gefur bara í skyn að hann hafi borgað með seðlum og ekki skráð kennitölu og vill samt fá frían harðan disk.

Kannski voru þeir að uppfæra tölvukerfið og eithvað hvarf ?


Hvað hvarf kannski? Hvernig myndi það skipta máli?

Þetta er bara maður sem kemur inn í búðina segist hafa keypt þennan bilaða harða disk hjá þeim og hefur ekkert, ekki neitt til að sýna fram á það.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 23:23
af rapport
Mér finnst margt spes við þessa kvörtun og þessi viðskipti.

1) Viðkomandi er ekki með nótu/ábyrgðarskýrteini = engin ábyrgð í boði og algjörlega á ábyrgð viðkomandi.

2) Ef það er verslað með pening, þá er ekki gefin út nóta... WTF, hver játar svona á sig að svindla á skattinum?

3) Eru HDD ekki keyptir/seldir út á serialnúmer? Ef svo er þá ætti búðin að geta fundið úr þessu í innkaupakerfinu hjá sér en ekki sölukerfinu EF þeir vilja ganga svo langt.

Annars bara bíð ég eftir piparkökunum....

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 23:32
af hkr
rapport skrifaði:3) Eru HDD ekki keyptir/seldir út á serialnúmer? Ef svo er þá ætti búðin að geta fundið úr þessu í innkaupakerfinu hjá sér en ekki sölukerfinu EF þeir vilja ganga svo langt.


Hélt það, sérstaklega þar sem að það er (held ég) _alltaf_ á öllum RMA og það er engin undantekning á því fyrir HDD.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 23:34
af appel
Svona skítakvart sprettur alltaf upp einstaka sinnum, mjög algengt á facebook síðum fyrirtækjanna.

Einkennismerkin fyrir svona skítakvart eru:

1. Viðkomandi einstaklingur byrjar á að úthúða fyrirtækinu og kalla það öllum illum nöfnum og drita yfir það skíti
2. Svo næst er lýst því sem kom upp, mjög einhliða frásögn þar sem einstaklingurinn gerði ekkert rangt, allt fyrirtækinu að kenna
3. Lýsir því svo að lokum að hann ætli aldrei aftur að eiga viðskipti við þetta fyrirtæki

Allt er þetta orðað einsog svindlað hafi verið á viðkomandi, hann féflettur og nánast felldur í gólfið og sparkað í hann.

Stundum fattar fólk ekki alveg að hlutirnir virka ekki alveg einsog þeir gerðu ráð fyrir. Í þessu tilfelli er lágmark að viðkomandi geti framvísað kvittun sem sönnun fyrir því að hafa keypt vöruna á þessum stað. Fyrirtæki eru engar góðgerðarstofnanir, þau þurfa að vera réttum megin við núllið annars loka þau bara, þannig að það er skiljanlegt að þau vilji ekkert með einhverja vöru að hafa sem þau veita engan deili á, rétt einsog einstaklingar vilja ekkert taka að sér vinnu fyrir aðra sem þeir fá ekkert greitt fyrir.


En svo er álitamál hvort rukka eigi fyrir bilanagreiningu á vöru sem er í ábyrgð en reynist svo ekki biluð. Ég veit ekki hvað lög og reglur segja um það. Það gæti reynst erfitt að sannreyna að eitthvað sé bilað, varan gæti virkað undir ákveðnum kringumstæðum en bilar undir öðrum kringumstæðum sem þó eru eðlilegar. En svo gæti ekkert verið að vörunni, það er bara vandamál með notandann, en hann veldur miklum kostnaði því hann kemur alltaf með tölvuna í "viðgerð" því hann er búinn að fokka henni upp með vírusum eða álíka.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fim 27. Nóv 2014 23:38
af Minuz1
rapport skrifaði:Mér finnst margt spes við þessa kvörtun og þessi viðskipti.

1) Viðkomandi er ekki með nótu/ábyrgðarskýrteini = engin ábyrgð í boði og algjörlega á ábyrgð viðkomandi.

2) Ef það er verslað með pening, þá er ekki gefin út nóta... WTF, hver játar svona á sig að svindla á skattinum?

3) Eru HDD ekki keyptir/seldir út á serialnúmer? Ef svo er þá ætti búðin að geta fundið úr þessu í innkaupakerfinu hjá sér en ekki sölukerfinu EF þeir vilja ganga svo langt.

Annars bara bíð ég eftir piparkökunum....


3) finnst mér ætti að vera standard.

Eina sem ber að varast er þjófnaður, að þjófur geti ekki claim-að ábyrgð á stolinni vöru, og kannski að fyrirtæki gætu notast við lengri ábyrgð vegna neytendaverndar einstaklinga.

Sem er dálkur útaf fyrir sig.

Jæja, út í ingress, síminn að vera kominn í 100% :D

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fös 28. Nóv 2014 00:22
af GoDzMacK
Ekkert svakalegt en reyndu að bjóða mér extra tryggingu sem ég afþakkaði en reyndi svo að rukka mig fyrir það hvo sem er og þrætti svo fyrir það þó verð væri lærra í hillu og á neti

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fös 28. Nóv 2014 00:56
af Glazier
Flest/öll fyrirtæki geta flett upp svona sölum í kerfinu hjá sér..
Ég hef unnið í verslun og tekið á móti gölluðum vörum þar sem nótan var löngu týnd og ekki keypt á neina kennitölu,
það tekur mig max 5-6 mín að fletta þessu upp í kerfinu EF viðkomandi man sirka dagsetninguna hvenær varan var keypt og er bara sjálfsagt mál að gera það fyrir viðkomandi.
Alveg sama hvernig varan var borguð þá skráist það alltaf í kerfið en hinsvegar ef þetta var borgað með cash og hann stakk því í vasann í staðinn fyrir að setja söluna í gegnum kerfið
þá er það hans vandamál ekki viðskiptavinarins, ég vil heyra báðar hliðar á þessu máli og ef Björgvin neitar að fletta upp sölunni í kerfinu (að því gefnu að þeir viti ca. dagsetningu) þá má mín vegna kalla hann asna !

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fös 28. Nóv 2014 00:59
af Squinchy
Dúlli skrifaði:Eru þeir byrjaðir að skíta á sig ? eftir þessa sameiningu við tölvutek, hef upplifað þessa þjónustu hjá tölvutek en er byrjaður að heyra svona í fyrsta skipti um tölvuvirkni.

Facebook - Umræða

[ Mynd ]


Það er á ábyrgð kaupanda að sýna fram á ábyrgð vöru sem hann verslað með t.d. kaupnótu. þetta mun vera klassískur rass haus sem skrifar þessa færslu á fésið hjá þeim

Dúlli skrifaði:hvað ef hann setti kennitölu og starfsmaðurinn klúðraði kannski ferlinum.

VV fær afrit af nótu og á auðvitað að fara yfir upplysingar sem standa á nótunni, eins og KT

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fös 28. Nóv 2014 01:39
af Viktor
Eiga fyrirtæki ekki að skrá serial númer á þeim pöntunum sem þau taka við? Þeas. ef þú kaupir 100 harða diska - þá færðu lista yfir serial númer á þeim öllum, sem ætti að vera hægt að fletta upp.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fös 28. Nóv 2014 01:50
af krat
Hef unnið hjá Tölvutek, það er mikið lagt á það að hafa Serial númer á öllum nótum og kennitölu. Einungis í serstökum tilfellum er leyft vöru að fara út án þess að setja inn kennitölu en slíkt kemur þó fyrir þá er um að ræða smávöru líkt og loftbrúsa eða annað slíkt og er það sett í staðgreitt en að sjálfsögðu er ávalt prentuð út nóta.

Frá mínu sjónarhorni gera eigendur Tölvutek og yfirmenn þess allt í þeirra valdi til að hafa þessa hluti á hreinu og er Atrex sölu kerfið þeirra mjög vel sett upp bæði til að kanna aftur í tíman SN og KT hjá viðskiptavinum og lítið mál að flétta upp. Einnig fær fyrirtækið hluti sem eru bilaðir bætta og hljómar þessi frásögn mjög skringilega.

En hérna er verið að ræða um Tölvuvirkni sem er nýlega keypt af Tölvutek.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fös 28. Nóv 2014 08:59
af chaplin
rapport skrifaði:2) Ef það er verslað með pening, þá er ekki gefin út nóta... WTF, hver játar svona á sig að svindla á skattinum?

3) Eru HDD ekki keyptir/seldir út á serialnúmer? Ef svo er þá ætti búðin að geta fundið úr þessu í innkaupakerfinu hjá sér en ekki sölukerfinu EF þeir vilja ganga svo langt.

2. Að öllum líkindum var gerð nóta, skráð á enga kt. en borgaður skattur af vörunni.

3. Sammala en mér finnst að seríal númber á vörum ættu að vera skráð í sölukerfinu, það tekur 0.1 sekúndu að skrá það inn í með skanna, getur sparað verslunum svona skítpósta og leiðindi.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fös 28. Nóv 2014 09:38
af Televisionary
Undirritaður hefur átt viðskipti við Tölvuvirkni í yfir áratug. Aldrei hefur ég upplifað neitt af þessu sem ofanritaður telur upp. Alla jafna hef ég greitt í reiðufé og hafa útskipti á búnaði jafnan gengið vel fyrir sig og uppfletting á raðnúmerum hefur ekki verið til vandræða.

En ég myndi halda að bein samskipti í tölvupósti myndu gera meira heldur en svona skrif.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fös 28. Nóv 2014 11:08
af Stutturdreki
Æji maður hefur heyrt álíka sögur um flestar ef ekki allar þessar verslanir en hef aldrei lent í vandræðum sjálfur. Hugsa að þetta sé jafnvel frekar vandamál í viðskiptavininum heldur en starfsfólkinu.

Re: Tölvuvirkni.is að skíta á sig ?

Sent: Fös 28. Nóv 2014 11:28
af KermitTheFrog
Hæst glymur í tómri tunnu eins og sagt er.

Svona einhliða opinberar úthúðanir sem skrifaðar eru í reiðiskasti gera fátt annað en að minnka trúverðugleika einstaklingsins.