Síða 1 af 1

@leikir_a_insta

Sent: Mið 19. Nóv 2014 21:23
af rapport
Sælir

Þessi síða er búin að valda usla í vinahóp krakkana fyrir að lofa vinningum en standa ekki við neitt.

Skv. krökkunum þá hafa tvær stelpur unnið eitthvað en svo er myndunum/svörunum bara eytt og ekkert gerist.

Fyrst hélt ég að þetta væri bara einhver vinkona þeirra að stríða þeim þar til að ég sá að síðan er me 500+ followers og fylgir þeim nánast öllum til baka.


Þá fór maður að pæla hvort þetta væri einhver creepy pervert að nálgast myndir af krökkum.

Sérstaklega vegna t.d.

Mynd

http://instagram.com/leikir_a_insta



Get ég komist að því hver er á bakvið þetta?

Re: @leikir_a_insta

Sent: Mið 19. Nóv 2014 21:27
af pattzi
Creepy :pjuke

Re: @leikir_a_insta

Sent: Mið 19. Nóv 2014 21:46
af Viktor
Þú ert ekki með neinn link #-o

Re: @leikir_a_insta

Sent: Mið 19. Nóv 2014 21:46
af vesi
Þetta er frekar óspennandi, ég persónulega myndi ekki vilja að barnið mitt myndi deila myndum með þessum aðila.

Miðað við stafsetninguna þá ber þetta ekki þess merki að vera eithvað official eða merkilegt apparat, heldur nákvæmlega eins og þig fór að gruna,
Efast líka stórlega um að eithvað official dæmi setti það sem skilyrði um að vera private follower.

http://ig-viewers.com/leikir_a_insta

Re: @leikir_a_insta

Sent: Mið 19. Nóv 2014 22:29
af Gúrú
rapport skrifaði:Get ég komist að því hver er á bakvið þetta?


Nei.

Re: @leikir_a_insta

Sent: Mið 19. Nóv 2014 23:29
af capteinninn
Í nýjustu myndinni commentar einhver að hann hafi unnið og að þeir ætli að senda honum símann.

Engar myndir og sá profile er læstur, þetta lítur hrikalega út.
Er ekki hægt að búa til fake profile og adda þessu til að sjá eitthvað hver þetta gæti verið?

Re: @leikir_a_insta

Sent: Mið 19. Nóv 2014 23:32
af rapport
capteinninn skrifaði:Í nýjustu myndinni commentar einhver að hann hafi unnið og að þeir ætli að senda honum símann.

Engar myndir og sá profile er læstur, þetta lítur hrikalega út.
Er ekki hægt að búa til fake profile og adda þessu til að sjá eitthvað hver þetta gæti verið?


Ég ætla a.m.k. að benda foreldrum stelpnana á að þetta geti verið e-h dúvíus.

Re: @leikir_a_insta

Sent: Fim 20. Nóv 2014 01:25
af zedro
Þetta er svo fake að það sést langar leiðir :lol:

Núna mæli ég með því að þú setjist niður með barni þínu og sýnir því hvernig eigi að sjá hvort eitthvað sé löglegt eða ekki.

  • EF stafsetning er útúr kortinu þá er það líklegast fake
  • EF notandinn er mjög nýr þá er það líklegast fake
  • EF það er engin tenging við official heimasíðuna þá er það pottþétt fake
    Dæmi: Coke instagram er með leik, Coke heimasíðan er ekki með neina tengingu við þann instagram aðgang
  • EF síðan biður þig um aðgang að lokuðum/persónulegum upplýsingum
  • EF nöfnin eru ótengd td. iPhone væri með iPhoneFanClub eða td.PEPSI leikur væri með notandan ViðHötumKók

Svo ert alltaf sterkur leikur á láta barnið segja pabba frá svona "leikjum" svo hann geti tekið þátt og "aukið líkur" á því að vinna. (aka. vita hvar barnið er að taka þátt)

Það sem mig dettur í hug í augnablikinu.

Re: @leikir_a_insta

Sent: Fim 20. Nóv 2014 09:08
af rapport
Zedro skrifaði:Þetta er svo fake að það sést langar leiðir :lol:

Núna mæli ég með því að þú setjist niður með barni þínu og sýnir því hvernig eigi að sjá hvort eitthvað sé löglegt eða ekki.

  • EF stafsetning er útúr kortinu þá er það líklegast fake
  • EF notandinn er mjög nýr þá er það líklegast fake
  • EF það er engin tenging við official heimasíðuna þá er það pottþétt fake
    Dæmi: Coke instagram er með leik, Coke heimasíðan er ekki með neina tengingu við þann instagram aðgang
  • EF síðan biður þig um aðgang að lokuðum/persónulegum upplýsingum
  • EF nöfnin eru ótengd td. iPhone væri með iPhoneFanClub eða td.PEPSI leikur væri með notandan ViðHötumKók

Svo ert alltaf sterkur leikur á láta barnið segja pabba frá svona "leikjum" svo hann geti tekið þátt og "aukið líkur" á því að vinna. (aka. vita hvar barnið er að taka þátt)

Það sem mig dettur í hug í augnablikinu.


Not my child...

Það var akkúrat málið, mín sagði mér frá þessu brasi vinkvenna sinna af því að ég hef svo mikið agiterað fyrir því að treysta ekki öllu á internetinu.

Re: @leikir_a_insta

Sent: Fim 20. Nóv 2014 09:26
af trausti164
Creepy.

Re: @leikir_a_insta

Sent: Fim 20. Nóv 2014 10:00
af hfwf
Það sem grípur mig strax, er "aðgang að private IG", það biður enginn um það nema hafa eitthvað í hyggju. Ef einhverjir hér hafa einhvern timan tekið þátt í alvöru leik á fb t.d, þá sjá þeir strax að þarna er eitthvað dubious í gangi.