Síða 1 af 1
Hvað einkennir íslensk stjórnmál?
Sent: Þri 18. Nóv 2014 21:31
af rapport
Ég smelli inn könnun, en endilega kommentið líka ef könnunin nær ekki að endurspegla ykkar viðhorf...
Re: Hvað einkennir íslensk stjórnmál?
Sent: Þri 18. Nóv 2014 21:36
af Bjosep
Mér finnst vanta orðið "spilling"
Re: Hvað einkennir íslensk stjórnmál?
Sent: Þri 18. Nóv 2014 21:50
af steinarorri
Bjosep skrifaði:Mér finnst vanta orðið "spilling"
I concur
Re: Hvað einkennir íslensk stjórnmál?
Sent: Þri 18. Nóv 2014 21:57
af GuðjónR
hahhaha ég var líka að leita af orðinu "spilling" ... reyndar hægt að segja það með öðrum orðum
Ef maður sleppir efsta og neðsta og byrjar á næstefsta þá passar að haka við annaðhvort box niður úr.
Re: Hvað einkennir íslensk stjórnmál?
Sent: Þri 18. Nóv 2014 22:11
af hagur
"Eiginhagsmunapot" vantar líka ....
Re: Hvað einkennir íslensk stjórnmál?
Sent: Þri 18. Nóv 2014 22:59
af tdog
hagur skrifaði:"Eiginhagsmunapot" vantar líka ....
Sammála...
Re: Hvað einkennir íslensk stjórnmál?
Sent: Mið 19. Nóv 2014 01:05
af rapport
Ég vildi bara tékka hvort að ég væri eitthvað klikkaður.
Ég hef aldrei orðið jafn reiður út í stjórnvöld og þegar ég hrofði á kastljós í gær.
http://www.ruv.is/frett/blindir-og-heyr ... -einangrunMér finnst svo klikkað að 4,5 milljón sé vandamál fyrir túlkaþjónustu en á sama tíma er ekkert mál að eyða tugum milljóna í bíla handa ráðherrum.
Fyrir utan það ... fólk fékk leiðréttinguna sína vegna þess að það var sparað hjá fólki í þessari stöðu... það er m.a. það sem fjármagnar "leiðréttinguna".
Re: Hvað einkennir íslensk stjórnmál?
Sent: Mið 19. Nóv 2014 08:40
af hagur
rapport skrifaði:....
Mér finnst svo klikkað að 4,5 milljón sé vandamál fyrir túlkaþjónustu en á sama tíma er ekkert mál að eyða tugum milljóna í bíla handa ráðherrum.
Nákvæmlega, var einmitt að hugsa þetta í gær. Þarna sést svo svart á hvítu hvað forgangsröðunin hérna er
biluð að maður veit ekki hvort maður eigi að hlægja eða gráta.
Re: Hvað einkennir íslensk stjórnmál?
Sent: Mið 19. Nóv 2014 08:50
af jericho
Spilling, klíka, græðgi
Re: Hvað einkennir íslensk stjórnmál?
Sent: Mið 19. Nóv 2014 19:56
af Stuffz
váá voða neikvæðni
verst að það er engin hæfur á pláhnetunni jörd til að koma hlutunum í samt horf, þegar allt var í lagi.