Síða 1 af 4
Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 14:37
af slapi
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 14:47
af AntiTrust
Ég held að þetta sé ekkert nema púðurskot til að róa meðlimi í STEF, reyna að sýna fram á að þetta félag sé ekki bara til sýnis og innheimtu. Mér finnst t.d. það að þeir séu bara að fara fram á lokun frá tveim ISPum styðja það að þeim er ekki nægilega alvara með þessu.
Hef algjörlega enga trú á því að þessi dómur falli þeim í dag.
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 14:49
af slapi
Vilja samt meina að ef þetta fellur þeim í hag verði það fordæmisgefandi (döh)
Pressan er meiri, en ég segji það með þér ég held að Sýsli muni gera það sama og síðast bara á réttan hátt núna svo dómstólar geti ekki skotið þessu til hans aftur.
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 14:59
af AntiTrust
Það er líka bara grátbroslegt djók að þessi úrskurður liggi hjá Sýslumanni. Þetta er eins og að fara með stríðsglæpi á e-rja lögfræðistofu niðrí bæ og biðja þá um að dæma réttilega.
Ég held líka, eða vona innilega að Sýslumaður geri sér grein fyrir því hvað slíkur dómur myndi þýða.
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 14:59
af thehulk
Lifi lýðræðið
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:01
af thehulk
AntiTrust skrifaði:Það er líka bara grátbroslegt djók að þessi úrskurður liggi hjá Sýslumanni. Þetta er eins og að fara með stríðsglæpi á e-rja lögfræðistofu niðrí bæ og biðja þá um að dæma réttilega.
Ég held líka, eða vona innilega að Sýslumaður geri sér grein fyrir því hvað slíkur dómur myndi þýða.
Ég held að sýslumanni sé alveg sama. Ef þeir sjá að einkarekinn fyrirtæki eru að tapa pening, þá taka þeir svona hlutum alvarlega. Þeir fara eftir lögum ekki eftir hvenær næsti Walking dead þáttur verði á netinu
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:02
af Minuz1
Hann fer eftir fyrirmælum Héraðsdóms, það væri mjög undarlegt ef hann gerði það ekki.
Héraðsdómur er búinn að fyrirskipa honum að framfylgja þessu.
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:04
af Captaintomas
En geta meðlimir Deildu þá ekki notað aðrar slóðir til að komast inn á síðuna til dæmis deildu.co.uk?
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:04
af Minuz1
Captaintomas skrifaði:En geta meðlimir Deildu þá ekki notað aðrar slóðir til að komast inn á síðuna til dæmis deildu.co.uk?
Jú.
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:08
af Stutturdreki
Eigum við að stofna félagasamtök og fara svo fram á að fjarskiptafyrirtækin takmarki aðgang allra annara að einhverjum siðum á netinu sem þóknast okkur ekki?
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:19
af GuðjónR
Netið verður alltaf ritskoðara og ritskoðara...
Slæm þróun.
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:23
af KermitTheFrog
GuðjónR skrifaði:Netið verður alltaf ritskoðara og ritskoðara...
Slæm þróun.
Því gamlir fýlupokar skilja ekki hvernig það virkar.
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:24
af rango
Mér finst ekki tilviljun að þetta komi rétt eftir að isnic stúti léni isis og líka í raun rétt áður enn netflix kemur til íslands.
Enn ég raun ætti þetta að vera nóg til að þessi áform þeirra takist ekki.
Ég geri ráð fyrir því að þetta brjóti ekki í bága við lög það sem þetta er bara bendill.
Rétt eins og linkur af dv.is er bara bendill á deildu.net.
deildupointer.udc.is > deildu.co.uk
deildu.fjeldsted.is > 37.187.74.47
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:25
af thehulk
Minuz1 skrifaði:Captaintomas skrifaði:En geta meðlimir Deildu þá ekki notað aðrar slóðir til að komast inn á síðuna til dæmis deildu.co.uk?
Jú.
Það er nú mjög auðvelt að loka á allar torrent síður, ef þeir eru byrjaðir á þessu
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:31
af AntiTrust
Minuz1 skrifaði:Hann fer eftir fyrirmælum Héraðsdóms, það væri mjög undarlegt ef hann gerði það ekki.
Héraðsdómur er búinn að fyrirskipa honum að framfylgja þessu.
Getur Sýslumaður þá ekki vísað þessu til Hæstaréttar, eða þurfa Voda og Hringdu að gera það?
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:34
af hkr
AntiTrust skrifaði:Minuz1 skrifaði:Hann fer eftir fyrirmælum Héraðsdóms, það væri mjög undarlegt ef hann gerði það ekki.
Héraðsdómur er búinn að fyrirskipa honum að framfylgja þessu.
Getur Sýslumaður þá ekki vísað þessu til Héraðsdóms, eða þurfa Voda og Hringdu að gera það?
til hæstaréttar?
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:35
af AntiTrust
hkr skrifaði:AntiTrust skrifaði:Minuz1 skrifaði:Hann fer eftir fyrirmælum Héraðsdóms, það væri mjög undarlegt ef hann gerði það ekki.
Héraðsdómur er búinn að fyrirskipa honum að framfylgja þessu.
Getur Sýslumaður þá ekki vísað þessu til Héraðsdóms, eða þurfa Voda og Hringdu að gera það?
til hæstaréttar?
Meinti það auðvitað
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:38
af Captaintomas
Nei, sýslumaður verður að fara eftir þessu en fer fyrst fram á tryggingu frá samtökunum
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:41
af Stutturdreki
rango skrifaði:.. rétt áður enn netflix kemur til íslands.
Eh? Missti ég af einhverju?
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:41
af thehulk
dómurinn
http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/ ... l=2&Words=Í lögbannsbeiðni sóknaraðila til sýslumanns eru gerðar eftirfarandi kröfur:
· Að lagt verði lögbann við þeirri athöfn gerðarþola að veita viðskiptamönnum sínum aðgang að vefsíðunum
http://www.deildu.net,
http://www.deildu.com,
http://www.thepiratebay.se, www. thepiratebay.sx og
http://www.thepiratebay.org.
· Jafnframt er þess farið á leit við sýslumann að lagt verði fyrir gerðarþola að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til þess að hindra að viðskiptamenn þeirra geti heimsótt vefsíðurnar
http://www.deildu.net,
http://www.deildu.com,
http://www.thepiratebay.se, www. thepiratebay.sx og
http://www.thepiratebay.org.
· Í þeim tilgangi er þess farið á leit að lagt verði fyrir gerðarþola að hindra allan gagnaflutning að og frá IP-tölum sem vísa á fyrrnefndar vefsíður, undirsíður og undirlén, sem og að hindra allan gagnaflutning að og frá nafnaþjónum sem vísa á fyrrnefndar vefsíður, undirsíður og undirlén þeirra.
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:42
af Bjosep
rango skrifaði:Mér finst ekki tilviljun að þetta komi rétt eftir að isnic stúti léni isis og líka í raun rétt áður enn netflix kemur til íslands.
Þetta er reyndar eins mikil tilviljun og það gerist. Heldurðu að stofnandi khilafah.is hafi verið að fylgjast með íslenskum dómsmálum og ákveðið að fjárfesta í léni með .is endinguna rétt áður en dómur félli varðandi lögbannskröfu stef?
Er netflix á leiðinni til landsins ?
AntiTrust skrifaði:Minuz1 skrifaði:Hann fer eftir fyrirmælum Héraðsdóms, það væri mjög undarlegt ef hann gerði það ekki.
Héraðsdómur er búinn að fyrirskipa honum að framfylgja þessu.
Getur Sýslumaður þá ekki vísað þessu til Héraðsdóms, eða þurfa Voda og Hringdu að gera það?
Vodafone og Hringdu geta væntanlega kært úrskurðinn/áfrýjað til hæstaréttar. Ég sé ekki hvers vegna sýslumaður ætti að gera það þar sem hann er ekki hagsmunaðili að málinu bara framkvæmdavald.
thehulk skrifaði:Minuz1 skrifaði:Captaintomas skrifaði:En geta meðlimir Deildu þá ekki notað aðrar slóðir til að komast inn á síðuna til dæmis deildu.co.uk?
Jú.
Það er nú mjög auðvelt að loka á allar torrent síður, ef þeir eru byrjaðir á þessu
Á meðan eingöngu er lokað fyrir aðgang að léninu deildu.net og deildu.com (sem dæmi) en ekki aðgang að sjálfum netþjónunum þá þarf stef (eða aðrir) að höfða dómsmál í hvert skipti sem nýtt lén skýtur upp kollinum. Það verður tímafrekt og hægt ferli (og mjög þreytt). Þar fyrir utan gildir þetta væntanlega bara um viðskiptavini hringdu og vodafone. Síðan er ennþá uppi og viðskiptavinir geta væntanlega notað proxyþjón til að nálgast deildu.net slóðina.
Uppfært - Ég sé að í dómnum er lokað á þessa leið.
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:44
af Stutturdreki
STEF fer þá væntanlega næst fram á lögbann á notkun á proxy, VPN ofl
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:45
af hkr
Um leið og ég póstaði fann ég dómana:
hringdu
http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/ ... l=2&Words=vodafone
http://www.domstolar.is/domaleit/nanar/ ... l=2&Words=thehulk skrifaði:Í þeim tilgangi er þess farið á leit að lagt verði fyrir gerðarþola að hindra allan gagnaflutning að og frá IP-tölum sem vísa á fyrrnefndar vefsíður, undirsíður og undirlén, sem og að hindra allan gagnaflutning að og frá nafnaþjónum sem vísa á fyrrnefndar vefsíður, undirsíður og undirlén þeirra.
Er sem sagt verið að biðja um að loka á alla DNS þjóna sem vísa á deildu.net? dafuq?
google dns? alla netflix dns'ana? etc. etc...
edit:
eflaust að miskilja þetta að ofan, frekar átt við þá þjóna sem t.d. deildu.net notar. En það myndi þá eflaust loka á fleiri vefsíður heldur en bara þessari, ekki satt?
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:45
af emmi
Þeir tala líka um að hindra aðgang að IPtölum sem vísa á fyrrnefndar vefsíður.
Re: Á að loka fyrir Piratebay , Deildu og fleiri?
Sent: Þri 14. Okt 2014 15:50
af Minuz1
http://proxybay.info/ Þessar líka?
If there's a will...there is a way.